Vikan


Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 54

Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 54
Maðurinn sem kunni vel við hunda 4 Þegar ég rankaði við mér var herbergið fullt af reyk. Reykurinn lá í loftinu. í mjóum strókum upp og niður eins og perluhengi. Gluggarnir á endaveggnum virtust vera opnir en reykurinn hreyfðist ekki. Ég hafði aldrei séð þetta herbergi fyrr. Ég lá þarna í nokkra stund og hugsaði mitt ráð, svo opnaði ég munninn og öskraði: Eldur! eins og lungun leyfðu. Svo féll ég aftur á rúmið og fór að hlæja. Ég var ekkert hrifinn af hljómnum. Hann var holur, jafnvel í mínum eyrum. Einhvers staðar heyrðist hlaupið stiga, lyk- ill snerist í skrá og dyrnar opnuðust. Maður í stuttum, hvítum sloppi leit á mig, augnaráð- ið var hörkulegt. Ég sneri höfðinu aðeins og sagði: - Treystu ekki þessu, Jack. Þetta er komið af stað. Hann yggldi sig snöggt. Hann var með hörkulegt, lítið andlit, stingandi augu. Ég þekkti hann ekki. - Þú hefur kannski áhuga á einhverju lík- ara spennitreyju? sagði hann lymskulega. - Mér líður ágætlega, Jack, sagði ég. - Prýðilega. Ég ætla að fá mér blund núna. - Það væri skynsamlegt, sagði hann önug- ur. Dyrnar lokuðust, lykillinn snerist í skránni og/ótatakið Ijarlægðist. Ég lá kyrr og horfði á reykinn. Ég vissi að það var í rauninni enginn reykur. Það hlaut að vera nótt því það var kveikt á postulíns- ljósakrónu sem hékk þarna i þrem keðjurn. Meðfram brúninni á henni voru mislitir hnúð- ar og snúrurnar voru appelsínugular og bláar. Á meðan ég horfði á hnúðana opnuðust þeir eins og lítil kýraugu og út úr þeim stungu sér höfuð, pínulítil höfuð eins og á dúkkum, en lifandi. Þarna var maður með skipstjórahúfu, stór, þrýstin ljóska og grannvaxinn maður með krumpað bindi sem sagði í sífellu: Viltu fá steikina lítið steikta eða miðlungi steikta, herra minn? Ég tók í hornið á grófgerðum sængurfötun- um og þurrkaði svitann úr andlitinu á mér. Ég settist og setti fæturna á gólfið. Ég var berfættur. Ég var í grófum flónelsnáttfötum. Ég fann ekki fyrir fótunum á mér þegar ég setti þá á gólfið. Eftir nokkra stund fóru þeir að stinga og voru fullir af nálum og títuprjón- um. Þá fann ég fyrir gólfinu. Ég tók í rúmbrík- ina, stóð upp og gekk um gólf. Rödd, sem var ef til vill mín eigin, sagði við mig: Þú ert með tremma, þú ert með tremma.. .þú ert með trennna... Ég sá viskíflösku á litlu, hvítu borði milli glugganna. Ég lagði af stað í áttina að henni. Það var flaska af Johnny Walker, hálffull. Ég náði í hana, tók vænan sopa úr hálsinum á henni og lagði hana frá mér aftur. Viskíið var skrýtið á bragðið. Meðan ég var að gera mér grein fyrir að það var skrýtið á bragðið sá ég vaskafat í horninu. Mér rétt tókst að komast þangað áður en ég kastaði upp. Ég lagðist aftur í rúmið. Uppköstin höfðu dregið úr mér allan mátt en herbergið var agnarögn raunverulegra að sjá, ekki eins ótrú- legt. Ég sá rimla fyrir gluggunum tveim, stóran og þungan stól úr viði en engin önnur hús- gögn nema hvíta borðið með viskíinu með dópinu í. Þarna var skáphurð, lokuð. kannski læst. Rúmið var spitalarúm og á því voru leður- reimar, tvær hvorum megin, um það bil á móts við úlnliðina á manni. Ég vissi að ég var í einhvers konar fangaklefa. Skyndilega fór mér að líða illa í vinstri handleggnum. Ég bretti upp víða ermina og sá fullt af stunguförum á upphandleggnum og bláa og svarta hringi kringum hvert þeirra. Það hafði verið dælt í mig dópi til að þagga niður i mér á meðan ég fékk köstin. Þess vegna hafði ég séð reykinn og litlu hausana á loftljósinu. Viskíið með eitrinu hafði greini- lega lækningamátt fyrir einhvern annan en mig. Ég fór aftur á fætur og gekk um, hélt áfram að ganga. Eftir smástund drakk ég dálítið af vatninu, hélt því niðri og drakk smávegis í viðbót. Eftir hálftíma eða svo var ég með þessu áframhaldi tilbúinn að tala við einhvern. Skápdyrnar voru læstar og stóllinn of þung- ur fyrir mig. Ég tók allt af rúminu og ýtti dýnunni út í aðra hliðina. Það voru gormar undir, festir með öðrum voldugri til fóta og við höfðalagið. Það tók mig um það bil hálf- tíma og miklar þjáningar að losa einn þeirra. Ég hvíldi mig aðeins, drakk dálítið meira af þalda vatninu og fór bak við hurðina. Ég hrópaði: - Eldur! eins hátt og ég gat, nokkrum sinnum. Ég beið en ekki lengi. Það heyrðist hlaupið eftir gangi fyrir utan. Lykli var troðið i skrána, smellur heyrðist í lásnum. Smávaxni maður- inn með hvössu augun og í hvíta sloppnum ruddist inn með offorsi og hvessti augun á rúmið. Ég brá gorminum um kjálkann á honum og siðan aftur á höfuð um leið og hann hneig niður. Ég náði hálstaki á honum. Hann barð- ist talsvert um. Ég notaði hnéð á andlitið á honum. Ég meiddi mig í því. Hann sagði ekkert um það hvernig honum liði í andlitinu. Ég náði í kylfu úr vasa hans hægra megin, tók lykilinn úr skránni að utan- verðu og læsti að innanverðu. Það voru fleiri lyklar á kippunni._ Einn af þeim gekk að skápnum mínum. Ég leit inn í hann og fann þar fötin mín. Ég fór í þau, hægt, með fálmandi höndum. Ég geispaði töluvert. Maðurinn á gólfinu haggaðist ekki. Ég læsti hann inni og fór. 5 Stigagangurinn var víður, þögull, með parketgólfi og mjóum dregli í miðju. Flatt, hvítt handrið úr eik lá í miklum sveig niður í anddyrið. Þar voru luktar dyr, stórar hurð- ir, þungar og gamaldags. Ekkert hljóð heyrðist handan þeirra. Ég læddist á tánum niður teppið. Innri dyrnar voru með hurð með steindu gleri og milli þeirra og aðaldyranna var for- stofa. Þegar ég var kominn þangað hringdi sími. Karlmannsrödd svaraði í hann handan við hálfopnar dyr. Þaðan barst ljósglæta inn í myrkt anddyrið. Ég fór til baka, gægðist inn um dyragætt- ina, sá mann við skrifborð að tala í símann. Ég beið þar til hann lagði á. Þá fór ég inn. Hann var með fölt, beinabert andlit með háum kollvikum og á höfði hans var þunnt, skollitað hár sem var vatnsgreitt í sveig um höfuðkúpuna. Hann var toginleitur. fölur og gleðisnauður á svip. Hann leit snöggt á mig og höndin á honum fór í rykk að hnappi í skrifborðinu hans. Ég brosti, vældi í honum: - Ekki, ég er ekki sjálfráður gerða minna, gæslumaður. Ég sýndi honum spennitreyjuna. Hann brosti stirðlega eins og freðin ýsa. Fölleitar og fingralangar hendurnar á honum hreyfðust eins og lasin fiðrildi yfir skrifborðs- plötunni. Önnur þeirra leitaði í áttina að hliðarskúffu á skrifborðinu. Honum tókst að losa um tunguhaftið. Þú hefur verið mjög veikur. herra minn. Mjög veikur maður. Ég myndi ekki ráðleggja... Ég veifaði spennitreyjunni að fiöktandi hendinni á honum. Hún hvarf inn í sjálfa sig eins og snigill á heitum steini. Ég sagði: - Ekki veikur, gæslumaður, bara dópaður, út úr heiminum. Nú vil ég út úr þessu og smávegis af hreinu viskii. Láttu mig fá. Hann hreyfði fingurna lítillega. - Ég er Sundstrand læknir, sagði hann. Þetta er einkasjúkrahús - ekki fangelsi. - Viskí, kvakaði ég. - Ég er búinn að ná hinu. Einkageðsjúkrahús. Geðugasta fjár- plógsstarfsemi. Viskí! - Það er í lyfjaskápnum, sagði hann og andaði rykkjótt og títt. - Settu hendurnar á hnakkann. - Ég er hræddur um að þú sjáir eftir þessu. Hann setti hendurnar á hnakkann. Ég fór hinum megin við skrifborðið, opn- aði skúffuna, sem höndin á honum hafði leitað í átt til_, tók sjálfvirka skammbyssu upp úr henni. Ég lagði spennitreyjuna frá mér, fór í kringum skrifborðið og aftur fyrir það, að lyfjaskápnum sem var á veggnuni. Þar var hálfslítrafiaska með eðlu viskíi og þrjú glös. Ég tók tvö þeirra. Ég hellti í þau bæði. - Þú fyrst, gæslumað- ur. - Ég - ég drekk ekki. Ég er alger bindindis- maður, tautaði hann með hendurnar á hnakkanum. Ég tók spennitreyjuna aftur til handar- gagns. Hann setti aðra höndina niður í fiýti og hvolfdi i sig úr öðru glasinu. Ég horfði á hann. Það var ekki að sjá að honum yrði neitt meint af þessu. Ég þefaði af mínurn skammti, svo hvolfdi ég honum í kverkarnar, fékk mérannan og setti svo fiöskuna í vasann. 54 VI K A N 22. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.