Vikan - 28.05.1987, Qupperneq 9
Pilla níunda áratugaríns
Megrunarpillan
U.S. Grape Slim eru megrunartöflurnar sem sigrað hafa heiminn.
Stjörnurnar í Hollywood hafa sett traust sitt á þær um nokkurt skeið
og nú er Evrópa komin á bragðið. í fyrsta sinn í langan tíma viður-
kenna læknar og heilbrigðisyfírvöld töflur á borð við þessar, sem
auk þess að minnka matarlyst innihalda bætiefni og hafa engar auka-
verkanir. Vikan er fyrst fjölmiðla hér á landi til að kynna U.S. Grape
Slim töflurnar en þær eru einmitt þessa dagana að koma á markað
hérlendis og munu fást í apótekum.
Svona lita megrunarpillurnar góðu út.
Hollur megrunarkúr
Heiðar Jónsson sér um kynningu á U.S.
Grape Slim hér á landi:
„Eg hef alla tíð verið á móti megrun sem
er eingöngu vatnslosandi því likaminn tekur
strax í sig vatn aftur og fólk stendur í sömu
sporum og áður. Þegar ég sá umfjöllun um
þessar töflur erlendis varð mér Ijóst að þær
hafa aðra og raunhæfari verkan. Þessar töflur
innihalda greipaldinsafa og hafa hressandi
greipaldinbragð en auk þess innihalda þær
náttúrulegar trefjar og ýmiss konar bætiefni,
eplaedik og þaraefni. Samsetningin er þannig
að sum efni draga beint úr matarlöngun, eru
mettandi, önnur hafa áhrif á fitubrennslu lík-
amans og enn önnur styrkja og gera manni
gott. Þetta er því hollur megrunarkúr. Meðal
bætiefna má nefna B6 vítamín sem er mikil-
vægt i megrun vegna þess að það hefur áhrif
á hvernig likaminn vinnur úr sykri, steinefnum
og fítu. Með því að taka eingöngu töflurnar
er hægt að missa 1 'A til 2 kíló á viku en U.S.
Grape Slim er líka tilvalið hjálparmeðal til
að breyta um mataræði. Töflunum fylgir
megrunarmatseðill sem getur aukið þyngd-
artapið upp í.4-6 kíló á viku. Matseðillinn
byggist á fáum hitaeiningum og samanstendur
meðal annars af ávaxtasafa, salati, skelfiski,
kjúklingum, heilkornsbrauði og auðvitað
greipaldini, sem er yfírleitt eitt aðalatriðið í
góðum megrunarkúrum. Megrunarkúrinn
stendur í fjórtán daga í senn og ef svindlað
er pínulítið er skaðinn ekki eins mikill og ella
því U.S. Grape Slim gerir það að verkum að
brennsla líkamans breytist. Töflurnar, sem á
að tyggja, eru teknar tvær í senn um hálftíma
fyrir máltíð og draga þær verulega úr svengd.“
- Stendur þú alfarið á bak við U.S. Grape
Slim á íslandi?
„Að litlu leyti bara. Ég er ekki mjög mikill
forretningsmaður í mér en þegar ég hafði
kynnt mér þessar töflur hafði ég samband við
góða kunningja sem hafa áhuga á svona við-
skiptaumstangi. Þeir höfðu trú á þessu máli
og tóku að sér að flytja inn töflurnar en ég
féllst .á að vera eins konar talsmaður til að
byrja með. Það er athyglisvert að Lyfjaeftirlit
ríkisins hefur ekki leyft megrunartöflur síðan
1981 en þessar töflur hlutu náð og sannar það
gæði þeirra. Töflurnar hafa líka óumdeilan-
lega sannað ágæti sitt og bandaríska fyrirtæk-
ið, sem framleiðir þær, fékk á sínum tíma
nokkrar frægar stjörnur til að nota töflumar
og vera andlit þeirra út á við. Þessar stjörnur
eru meðal annars Joan Collins, Linda Éwans,
Linda Grey og Jane Wyman. Hér hefur svip-
að verið gert, nokkrir þekktir einstaklingar
eru að byrja að nota U.S. Grape Slim og fáum
við að fylgjast með árangri er fram í sækir.“
Vikan mun fylgjast spennt með gangi mála
því eflaust vilja margir losa sig við aukakíló
vetrarins áður en rykið er dustað af léttu sum-
arklæðunum.
22. TBL VIKAN 9