Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 14
Tinna Gunnlaugsdóttir leikur Yermu
Yerma er nafnið á aðalpersónu verksins en það mun dregið af orðinu yermo sem
þýðir ósáinn akur eða hrjóstugt landsvæði. Sú nafngift segir nokkuð til um örlög
persónunnar. Tinna var spurð örlítið um efni leikritsins og hlutverkið.
„Leikritið fjallar um ástina og ástleys- ast og eiga börn. Yerma er gift en það
ið, um samskipti fólks í samfélagi þar hjónaband er fremur ástlítið og hefur
sem eina krafan til konunnar er að gift- engan ávöxt borið svo hún fyllist ör-
væntingu yfir tilgangsleysi lífs síns.
Þráin eftir barni verður að þráhyggju.
Eiginmaðurinn veitir henni enga eðlilega
svörun og lögmál samfélagsins og henn-
ar eigin siðferðisvitund banna henni að
leita út fyrir hjónabandið til að fá útrás
fyrir ástríður sínar og hugsanlega að
geta barn með öðrum manni. Eigin-
maður Yermu sættir sig hins vegar við
barnleysið og þegar hann í lokin viður-
kennir að hann vilji engin börn en vill
nálgast hana og girnist sem konu missir
hún stjórn á gjörðum sínum. Hún getur
ekki hugsað sér líkamlegt samneyti við
mann sinn í öðrum tilgangi en þeim að
freista þess að geta barn.
Það má líta á Yermu sem táknmynd
fyrir akur sem þarf að vökva eða móður
jörð. Ef við ekki ræktum garðinn okkar
eða sinnum náttúrunni verður jörðin
þurr og ófrjó. Textinn í þessu leikriti er
mjög fallegur og fullur af táknum. Mín
fyrsta upplifun, þegar ég las verkið, var
mjög sterk. En jafnframt vaknaði spurn-
ing um hvernig maður nálgaðist svona
leikrit sem inniheldur svo mikinn og
fallegan texta en í rauninni litla at-
burðarás. Þetta er harmljóð eins og
Lorca sagði sjálfur og býður upp á aðr-
ar og meiri víddir í túlkun en venjuleg
hversdagsleg samtöl. Og það er einmitt
sú leið sem Þórhildur leikstjóri hefur
valið, allar andstæður eru dregnar mjög
skýrt fram og Ijóðrænan látin njóta sín
til fulls. Frjósemi lífsins og náttúrunnar
flæðir allt í kringum Yermu og einmitt
það undirstrikar þjáningar hennar. Ör-
lög Yermu og viðbrögð hennar eru
harmræna verksins og hennar innri
tragedía er drifkraftur þess, því í raun
eru allar aðrar persónur sáttar við lif sitt.
Þetta er mjög erfitt hlutverk og óvæg-
ið en ég fann fljótt að ég gat treyst
leikstjóranum fullkomlega. Ég vissi að
ég gat gefið mig alla og hún mundi
stoppa mig af ef með þyrfti ogjafnframt
undirbúa jarðveginn fyrir áframhald.
Ég er mjög ánægð með þessa samvinnu
og hef trú á að sýningin sé bæði sterk
og áhrifamikil en um leið ákaflega fall-
Tinna Gunnlaugsdóttir sem Yerma.
eg-
14 VIKAN 22 TBL