Vikan - 28.05.1987, Síða 23
Stephen Frears.
Stephen
Frears
Enginn breskur leikstjóri hefur
vakið jafnmikla athygli að undan-
fömu og Stephen Frears. Með
síðustu tveimur myndum sínum, My
Beautiful Laundrette og Prick up
Your Ears, skipar hann sér í hóp
fremstu leikstjóra Breta.
Þrátt fyrir nýtilkomna frægð er
Frears enginn nýgræðingur. Hann
er fimmtíu og fimm ára gamall og á
að baki farstelan feril í sjónvarpinu
auk tveggja annarra kvikmynda.
Fyrsta kvikmynd hans sem leik-
stjóra var Gumshoe, gerð 1971. Þar
leikur Albert Finney bingóstjómanda
sem dreymir um að verða leynilög-
regla í íindti Bogarts. Draumur hans
rætist. Þrátt fyrir góða dóma náði
Gumshoe ekki aö trekkja áhorfendur
til sín og leið Frears lá í sjónvarpið.
Þar gerði hann eftirminnilegar
myndir og hefur allavega ein þeirra
verið sýnd i íslenska rikissjónvarpinu.
Saigon: Year of the Cat. Það er svo
ekki fyrr en 1984 að hann leikstýrir
sakamálamyndinni The Hit, með
John Hurt og Terence SUimp í aðal-
hlutverkum. Hlaut sú mynd ágætar
viðtökur en samt ekki í líkingu við
næstu mynd, My Beautiful Laund-
rette, mynd sem nótið hefur mikilla
vinsælda báðum megin Atlantsála.
Og Frears hefur svo enn styrkt stöðu
sína með Prick up Your Ears.
HEAVENLY PURSUIT ★ ★ ★
Leikstjóri: Charles Gormley.
Aöalleikarar: Tom Conti og Helen Mirren.
Sýningartími: 92 mín. - Útgefandi: Tefli hf.
Vic Matthews (Tom Conti) er kennari við skóla sem kenndur er við
Edith er bað svo heitt fyrir ungri stúlku að hún fékk sjónina. Prestur skól-
ans vill að Edith sé tekin í helgra manna tölu en páfagarður telur að það
vanti svo sem eitt kraftaverk til viðbótar. Það er eins og við manninn
mælt, ýmsir óskýranlegir atburðir fara að gerast og tengjast þeir allir aum-
ingja Vic sem til þessa hefur verið trúlaus með öllu. Honum fer ekki að
standa á sama þegar plötuspilarinn hans byrjar sjálfur að spila. Hann fellur
eina fimmtán metra og sleppurómeiddurog það er alveg sama þótt hann
ætli að keyra yfir á rauðu ljósi, alltaf skal vera komið grænt þegar hann
fer ylir... Gott handrit ásamt góðum leik Toms Conti og Helen Mirren,
er leikur samkennara hans, gerir það að verkum að Heavenly Pursuit er
hin besta skemmtun.
★ ★
Leikstjóri: David Holmes.
Aðalleikarar: Jacklyn Smith, Nigel Terry og Shelley Winters.
Sýningartími: 91 mín. - Útgefandi: Tefli hf.
Myndir um endurholdgun eru ekki ný fyrirbrigði enda efni sem hægt er
að leika séraðá margan máta. Déja Vu erslík mynd. Jacklyn Smith leik-
ur leikkonu sem gift er rithöfundinum Gregory Thomas (Nigel Terry).
Þegar þau eru að horfa á gamla ballettmynd tekur Thomas eftir hversu lík
eiginkona hans er aðalballerínunni sem fórst í eldsvoða þrjátíu og fimm
árum áður. Þessi staðreynd ásækir hann mjög og hann fer að grafast fyrir
um ævi ballettdansarans. Um leið fara að sækja á hann hugsanir um at-
burði sem hann getur ekki skýrt. Fer hann til rniðils sem upplýsir hann um
að i honurn búi persóna sem lést um leið og ballettdansarinn... Hingað
til heldur Déja Vu dampi en þegar hér er komið sögu hafa handritshöfund-
ar lent í vandræðum því hinn spennandi söguþráður flosnar upp og verður
vandræðalegur, svo mynd sem lofaði góðu endar sem miðlungsmynd.
HOWARD THE DUCK ★
Leikstjóri: Willard Huyck.
Aöalleikarar: Lea Thompson, Jeffrey Jones og Tim Robbins.
Sýningartími: 105 mín. -Útgefandi: Laugarásbíó.
Með Howard the Duck urðu George Lucas á dýr mistök. Það vantar
ekki að tæknibrellur eru geysivel gerðar og oft áhrifamiklar. Málið er bara
að handritið er fráhrindandi og leiðinlegt og söguþráðurinn sömuleiðis.
Megininntak erað vegna tæknilegra mistaka berst til jarðarinnarönd ein
sem lillr á nákvæmlega eins plánetu ogjörðin nema þar eru cndur í hlut-
verki mannsins. Önd þessi nefnist Howard, talar með eindæmum mikið
og þykir góður bjór. Hann er að sjálfsögðu ekki ánægður með þær við-
tökur sem hann fær í mannheimum. Það er rokkstjarna sem tekur hann upp
á arma sína og veitir honum húsaskjól. Vísindamennirnir gera enn ein mis-
tökin og nú er það ekki gæðablóðið Howard sem kemur heldur hinn myrki
yfirdrottnari... Sjálfsagt hefur hugmyndin að talandi önd þótt sniðug á
pappírnum en komin á hvíta tjaldið skemmtir Howard the Duck fáum.
Myndbönd
ÍSLENSKUR TEXT1
DÉJAVU
AMERICA 3000 ★
Lelkstjóri: David Engelbach.
Aðalleikarar: Chuck Wagner, Laureen Landon og Camilla Sparv.
Sýningartími: 84 min. -Utgefandi: Tefli hf.
America 3000 er gamansöm framtíðarmynd. Eins og í svo mörgum fram-
tíðarmyndum, sem gerast ájörðinni, hefur lifi nánast verið eytt í kjarnorku-
styrjöld. Ný þjóðfélög hala risið upp og eru nú konur allsráðandi. Lífið
gengur fyrir sig eins og í fornöld, engin skotvopn og klæðnaður fólks fábrot-
inn. Kvenfólkið notar karlmennina sem þræla þótt það viðurkenni að til
þess að fjölga kvenþjóðinni séu þeir nauðsynlegir. Þetta gengur svona fyíir
sig þangað til karlmaður nokkur finnur óvænt kjarnorkubyrgi með íbúð
forseta Bandaríkjanna. Þar finnur hann ýmislegt sem breytirstöðunni karl-
mönnum i hag... Sem betur fer erekki ætlast til að fólk taki America
3000 alvarlega og því má hafa gaman af allri vitleysunni þótt ekki risti það
djúpt. í heild er samt ekkert nýtt hér. Maður hefur á tilfinningunni að
hafa séð allt gamanið áður og það oftar en einu sinni.
22 TBL VIKAN 23