Vikan


Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 28

Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 28
Hljómsveitin Living in a Box varð til fyrir stuttu og það er enn styttra síðan hún kom fram á sjónarsviðið. Þetta byrjaði þegar Marcus Vere heimsótti vin sinn. Verið var að gera við íbúðina, þar var að sjálfsögðu allt á hvolfi og hann hafði sáralítið pláss fýrir sjálfan sig eða eins og hann orðaði það: „Þetta er eins og að búa í boxi.“ Þá flaug Marcus í hug að þetta væri nú ekki svo galið nafn á lagi og samdi eitt með þessu nafni. Hann og vinur hans, Antony „Titch“ Critchcow, ákváðu að slá til og taka þetta upp. í þeim tilgangi fóru þeir til Manchester. Þar er lítið vöruhús sem er útbúið sem stúdíó og þar er hægt að taka upp plötur fyrir tiltölulega lítinn pening. Þarna var í sömu erindagjörðum ung- ur maður sem heitir Richard Darbys- hire. Þeir þekktust ekki neitt, það eina sem þeir áttu sameiginlegt var upptöku- stjórinn. Hann spilaði lagið Living in a Box fyrir Richard sem varð stórhrifmn af laginu. Þá voru Marcus og Titch búnir að fá mann frá hljómplötufyrir- tæki til að koma og hlusta á sig og Richard búinn að fá annan mann frá sama fyrirtæki! Þarna voru þeir í sitt hvoru herberginu og spiluðu verk sín, Marcus og Titch Living in a Box með söng Richards og Richard að spila sóló- efni sitt. Þetta hefði nú ekki verið í frásögur færandi ef ekki hefði verið hægt að heyra á milli. Áheyrandi Ric- hards varð nokkuð forvitin um hvað væri að gerast hinum megin við þilið. Að þeirra sögn var þetta nokkuð bros- leg aðstaða svo ekki sé meira sagt. Þetta endaði þó með þvi að hljóm- sveitin Living in a Box fékk hljómplötu- samning út á lagið Living in a Box og hljómsveitarmeðlimirnir voru þessir þrír félagar okkar. Meðan lagið var að vinna sér sess veittu þeir engin viðtöl. Það var ákveðið að láta músíkina vinna á, ekki láta útlit þeirra koma nálægt vinsældum lagsins. Þegar blaðamenn höfðu sam- band við hljómplötufyrirtækið fengu þeir að vísu að vita hver söngvarinn væri en nafnið Richard Darbyshire sagði þeim ekki mikið svo þeir báðu um viðtal. Það var víst ekki til umræðu svo það var ekki laust við að nokkur dulúð ríkti í kringum þá. Enginn vissi hvort þeir voru svartir eða hvítir og menn vissu jafnvel ekki hvað þeir voru margir. Stuttu seinna var lagið komið inn á topp 10 í Bretlandi og þá fékk almenn- ingur að vita hverjir þeir eru og blaða- menn þau viðtöl sem þeir vildu. Nú er komin út breiðskífa sem ber nafnið Living in a Box (hvað annað?). Á henni mun vera sambland af þvi efni sem Marcus og Titch voru með og sóló- el'ni Richards. Framhaldið kemur brátt i Ijós, ekki síst ef næsta smáskífa fetar í fótspor lagsins Living in a Box. \ 28 VIKAN 22. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.