Vikan - 28.05.1987, Side 37
Ingi Björn og kona hans, Magdalena Kristinsdóttir. Hann segir að hún
sé hörkudugleg að sjá um heimilið en sjálfur sé hann skammarlega
lítið heima við.
Við erum þessa dagana með
mikil'fundarhöld til að byggja
upp flokkinn fyrir framtíðina,
innra skipulag hans og hvernig
hann á að verða.
„Ég er óhræddur að takast á við stjórnmálin," segir Ingi Björn og
segir ennfremur að af nógu sé af taka af málum í sinu kjördæmi sem
hann vilji vinna að.
lagfæringar þar eins og annars staðar, hús-
hitunarmál eru stórt mál. svo og kvótakerfi í
sjávarútvegi, einnig atvinnumál. Þarna eru
sem sagt ærin verkefni.“
Gafstu þessi fólki einhver kosningalof-
orð?
,,Nei, ég lofaði einungis að gera mitt besta
og það ætla ég að standa við.“
Heldur þú að þú sért kominn inn á þing-
ið til að vera?
„Ætli það fari ekki eftir þvi starfi sem ég
skila al' mér á þinginu og svo hvort fólkið
treystir mér til áframhaldandi starfa í fram-
haldi af því."
Stendur þú þá í þeirri trú að Borgara-
flokkurinn sé llokkur sem eigi eftir að starfa
ál’ram?
„Ég er ekki í neinum vafa um það, enda
voru slagorð okkar, „Flokkur með framtíð"
ekki orðin tóm."
Fyrir þessar kosningar töluðuð þið um
að fara í borgarstjórnarkosningar næst.
„Það er náttúrlega möguleiki sem alltaf er
fyrir hendi. Það liggur ekkert fyrir hjá okkur
um það en þó er cngan veginn hægt að loka
fyrir þann mögúleika."
Áttu skýringu á því hvers vegna Borgara-
flokkurinn fékk slíkt atkvæðamagn?
„Flokkurinn var með mjög góða stefnuskrá
sem fólki líkaði. Hins vegar var löngu orðin
þörf á valkosti hérna út frá þessu tjórfiokka-
kerfi sem hér hefur verið við lýði. Það voru
víða óánægðir tlokksmenn sem þráðu þennan
valkost og þeir sáu hann í Borgarafiokknum.
Eins og við höfum hamrað á er Borgarafiokk-
urinn fiokkur fólksins en sú hefur ekki verið
raunin hjá hinum fiokkunum."
Voru það þá lleiri en óánægðir sjálfstæð-
ismenn sem kusu Borgaraflokkinn?
„Það er alveg greinilegt. Því til staðfesting-
ar getum við litið á Austurland þar sem Sverrir
Hermannsson, sá málglaði maður, er, en þar
vorum við með litið fylgi. Hins vegar stórtap-
aði Sjálfstæðisfiokkurinn. Ég held að það sé
alveg Ijóst að viö fengum okkar atkvæði miklu
víðar en frá Sjálfstæðisfiokknum, þó við höf-
um náttúrlega fengið mikið fylgi þaðan."
Nú varð þessi tlokkur til á mjög skömm-
um tíma. Er ekki mikið starf eftir sem þarf
að vinna núna?
„Jú, þessa dagana erum við með mikil fund-
arhöld til að byggja upp og skipuleggja
flokkinn fyrir framtíðina, innra skipulag hans
og hvernig hann á að verða. Það fer mikill
tími í það. Við viljum að þetta verði lýðræðis-
flokkur með valddreifingu. Við höfum fengið
mikið af ábendingum frá fólkinu og tökum
tillit til þeirra. Við vorum einmitt að koma
af fundi núna um helgina þar sem allir fram-
bjóðendur og þeir sem unnu með flokknum
fyrir kosningarnar voru mættir og komu með
sínar skoðanir. Þær þarf að skoða og það er
því alveg Ijóst að það fer mikill tími í að ganga
frá skipulagi fiokksins. Við viljum einmitt
vanda vel það verk því við viljum að þetta
verði flokkur til framtíðar."
- Varekki Helena, systir þín, aðaldriftjöðr-
in í að koma þessum fiokki á laggirnar?
„Hún hefur verið aðalframkvæmdastjóri
flokksins en hún hefur minna verið í innri
skipulagningu, það eru aðallega þingfiokkur-
inn og þær nefndir, sem hann skipar út frá
sér, sem sjá um það."
Var það ekki henni að þakka að hægt
var að koma þessum flokki upp á svo skömm-
um tíma?
„Jú. jú, hún átti stóran þátt í því. Hún býr
22. TBL VIKAN 37