Vikan - 02.07.1987, Qupperneq 4
Vikan
27. tbl. 49. árgangur. 2.-8. júlí 1987. Verð 150 krónur.
FORSIÐAN I RÖDD RITSTJORNAR
Friðrik Karlsson, gítarleikari
hljómsveitarinnar Mezzoforte, er
í Vikuviðtalinu. Hann prýðir for-
síðuna. En þar er líka Helga
Möller söngkona ásamt ungum
syni sínum. Myndirnar tók Valdís
Óskarsdóttir.
ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf.
RITSTJÓRI: Þórunn Gestsdóttir.
BLAÐAMENN: Guðrún Alfreðs-
dóttir, Jóna Björk Guðnadóttir,
Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Sig-
ríður Steinbjörnsdóttir, Sig-
rún Ása Markúsdóttir.
LJÓSMYNDARI: Valdís Óskars-
dóttir.
ÚTLITSTEIKNARI:
Hilmar Karlsson.
HANDRIT OG PRÓFARKIR:
Guðrún Svava Bjarnadóttir, Hildur
Gunnlaugsdóttir.
RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11,
SlMI (91) 2 70 22.
AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R.
Andersen.
AFGREIÐSLA OG DREIFING:
Þverholti 11, sími (91) 2 70 22.
PÓSTFANG RITSTJÓRNAR,
AUGLÝSINGA OG DREIFINGAR:
Pósthólf 5380,125 Reykjavík. Verð
í lausasölu: 150 kr. Áskriftarverð:
500 kr. á mánuði, 1500 kr. fyrir 13
tölublöð ársfjórðungslega eða
3000 krónur fyrir 26 blöð hálfsárs-
lega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar nóvember, febrúar, maí
og ágúst. Áskrift í Reykjavík og
Kópavogi greiðist mánaðarlega.
Ekki ég
Það gerist ekki hjá mér,
kannski þér. Ég þarf ekki að
tryggja heima hjá mér, þar gerist
aldrei neitt óhapp. Ég þarf ekki
að kaskótryggja nýja bílinn minn
vegna þess að ég er mjög góður
bílstjóri. En það er sjálfsagt að
þú tryggir þinn. Sjúkdómar og
veikindi eru ekki mín deild heldur
hinna. Svona hugsar sá sjálfum-
glaði.
Mín börn detta ekki í forarpytt
eiturlyfjaneyslunnar, kannski
börn nágrannans. Vonandi eru
þeir ekki margir sem hugsa
svona.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
látið gera kvikmynd um fíkni-
efnaneyslu unglinga og verður
hún sýnd í sjónvarpinu innan tíð-
ar. Kvikmyndin heitir Ekki ég,
kannski þú. - Myndin er heiðar-
lega unnin og gefur rétta mynd
af ástandinu í höfuðborginni,
segir unga stúlkan sem leikur
aðalhlutverkið í myndinni og er
nú nafn Vikunnar.
Enginn virðist vera óhultur fyr-
ir þessum vágesti. - Þú tryggir
ekki eftir á, segir tryggingafélag
eitt réttilega í auglýsingum sín-
um. Það á einnig við um börnin
okkar. Það er varhugavert að
fljóta sofandi áfram og segja -
við erum óhult í okkar hreiðri.
Hjá tónlistarmanninum Friðriki
Karlssyni er lífið lag, öll hans til-
vera snýst um tónlistina. Um
tónlistina hans snýst Vikuviðtal-
ið.
Tónlistin teygir anga sína víða,
hún styttir stundum næturstund-
ir þeirra sem vaka og eru öðrum
ósýnilegir. Vikan fór á næturvakt
þvi við getum ekki sagt - ekki ég.
Í ÞESSARI VIKU
6
Á meðan flestir sofa eru ósýnilegu
vaktmennirnir á róli. Blaðamaður
og Ijósmyndari Vikunnar leituðu á
fund þriggja eina bjarta vornótt.
10
Reykjavíkurborg lét gera kvikmynd
umfíkniefnaneyslu unglinga.
Steinunn Ólína leikur aðalhlutverk-
ið í þeirri kvikmynd og er nafn
Vikunnar.
12
Whoopi Goldberg, RenateJohn
og Michael J. Foxeru óllfræg og
einu þeirra finnst það einkennileg
tilfinning að eigg mikið af pening-
um.
18
Við erum öll hjátrúarfull. Nei, en
hvað um Coppingmálið. Sannfærir
þaðeinhvern?
20
Garðveisla í Viku-eldhúsinu með
Ijúffengum fiskrétti, salati og fersku
ávaxtasalati.
24
Hugur og heilsa. Að endurheimta
líkamann. Fróðlegur greinaflokkur.
29
Að bíta í fjallið er í Vikunni og til-
verunni og er skrifað af Hildi
Gunnlaugsdóttur.