Vikan - 02.07.1987, Blaðsíða 12
„Furðuleg
tilfínning“
- segir Michael J. Fox
Einn af yngri leikurum Hollywood er Michael J. Fox.
Þrátt fyrir að Fox sé aðeins 26 ára hefur hann getið sér al-
heimsfrægð. Að öllum líkindum hefur hann þó orðið
frægastur fyrir myndina Aftur til framtíðar sem sýnd var í
Laugarásbíói í fyrra. En um þessar mundir geta íslenskir
sjónvarpsáhorfendur fylgst með honum í þáttunum Family
Ties á Stöð 2.
„Það er óneitanlega furðuleg tilfinning fyrir mann á mínum
aldri að vinna sér inn jafnmikla peninga og ég geri. Ég var
orðinn það fjáður að ég dreif mig i að skrifa erfðaskrána
fyrir skömmu. Með því vildi ég sýna ábyrgð. Mér fannst
það gera mér auðveldara að stofna mína eigin fjölskyldu ef
mér byði svo við að horfa. Ég ætlaði mér ekki að giftast
fyrr en ég hefði efni á að sjá fyrir konu og börnum. Og nú
er svo komið að ég er fjárhagslega og andlega reiðubúinn
að stofna mína eigin fjölskyldu. Mér hefur fallið velgengni
í skaut og ég hef öðlast persónulegt öryggi, þægindi og allt
það. En það byggist allt á vinnu og meiri vinnu.
Ég held að peningarnir hafi ekki breytt persónuleika mín-
um að neinu ráði. Ég er varkár þegar peningar eru annars
vegar. Ég kalla ennþá í fjármálastjórann minn ef ég er að
hugsa um að kaupa eitthvað og segi til dæmis: Ég er að
hugsa um að kaupa mér nýtt sjónvarp. Og hann spyr þá
hvort ég sé vitlaus að ætla að eiga tvö. Svo rífumst við svo-
lítið um þetta og málinu lyktar með því að annar hvor lætur
sig; En mér finnst ennþá gaman að telja peningana mína.
Ég held að það mikilvægasta í heiminum sé fjölskylda og
vinir. Sú leið, sem ég fer í samskiptum mínum við vini mína,
er sú rétta, ég virði þá. Til þess að eignast góða vini verður
maður að sýna þeim virðingu.
Gifting er stórkostlegt markmið til að stefna að - að finna
manneskju sem verður besti vinur manns og gagnkvæmt,
einhverja sem ávallt ber blak af manni og maður gerir það
sama á móti. Það er það sem mig hefur alltaf langað til.
Ég kem úr stórri fjölskyldu, ég á þrjár systur, bróður og
foreldra. Ég gerði mig ánægðan ef ég hefði helminginn af
góðmennsku foreldra minna. Migdreymir um að eignast
fallega konu en hún þarf að hafa meira til brunns að bera,
hún þarf líka að vera sjálfstæð. Þegar ég eignast börn er ég
að hugsa um að ala þau upp einhvers staðar annars staðar en
í Bandaríkjunum, til dæmis í Kanada því mér fellur það
land vel. Alls staðar, þar sem ég kem, lætur fólk eins og það
þekki mig. Það kemur og grípur í mig og kemur ekki upp
orði. Það er eins og börn, það er ótrúlegt. Það minnir mig
alltafá þegar ég var fjögurra ára og hitti Bugs Bunny, því
gleymi ég seint. En með frægðinni öðlast maður líka sjötta
skilningarvitið, maður fer að gera sér grein fyrir hverjir eru
að nota mann og hverjir eru vinir í raun.“
J