Vikan - 02.07.1987, Síða 22
Vikan — Kvikmyndir/IMyndbönd
• WSm
James Fox og Jacqueline Bisset í hlutverkum sínum í High Season.
Ný kvikmynd - High Season
Grískt sumar
Það færist í aukana að kvenfólk
stjórni kvikmyndum. Þónokkrar nýjar
kvikmyndir státa af kvenleikstjórum
vestanhafs og í Englandi. High Season
er ein þeirra. Leikstjóri þeirrar myndar
er Clare Peploe og er þetta frumraun
hennar sem leikstjóra. Þykir henni hafa
tekist ágætlega þótt ýmsir haldi því fram
að henni hafi ekki tekist að sameina
efnismikla parta í eina heild. Allir eru
þó sammála um að High Season sé hin
ágætasta skemmtimynd.
Myndin gerist á Rhodos, eða nánar
tiltekið í hinu forna og fallega þorpi
Lindos sem margir Islendingar hafa
áreiðanlega komið til. Þar býr ensk íjöl-
skylda er lifir rólegu lífi að því er virðist.
Húsmóðurina, Katherine, leikur Jacqu-
eline Bisset. Hún er atvinnuljósmyndari
í örvæntingarfullri leit að efni. Maður
hennar, Patrick (James Lox), er mynd-
höggvari. Þau eiga eina dóttur, Chloe,
sem virðist hafa vit fyrir þeim. Lastur
heimilisvinur er sagnfræðingurinn Sharp
sem á pólitíska fortíð i Englandi sem
hann vill helst ekki minnast á. í mynd-
inni eiga innfæddir sinn fulltrúa, ungan
mann, Yanni, sem lifir á ferðamönnum.
Umsjón: Hilmar Karlsson
Líf þessa fólk breytist snögglega þegar
til bæjarins koma ung hjón, Rick stjórn-
arerindreki og Carol, rómantísk eigin-
kona hans...
High Season er rómantísk gaman-
mynd með úrvalsleikurum. Jacqueline
Bisset og James Lox eru í aðalhlutverk-
um. Vel þykir hafa tekist til með
persónusköpun í aukahlutverkunum.
Helstu leikarar þar eru Irena Papas,
Sebastian Shaw, Lesley Manville og
Kenneth Branagh.
22 VIKAN 27. TBL