Vikan - 02.07.1987, Síða 24
Hugur og heilsa - 2. grein
Að endurbeimta
líkamann
Um lífeflismeðferð Wilhelms Reich
í bókinni Your Body Works skilgreinir breski
sállæknirinn David Boadella lífeflismeðferð sem
„keríi af aðferðum til að virkja líforku líkamans
þegar ýrnis tjáningarform hennar hafa á einhvem
hátt raskast". Hann segir einnig: „Meðan flest
sállækningakerfi notast að mestu við orðrænar
aðferðir til að meðhöndla einkenni taugaveiklunar
beinum við athygli okkar að heildaratferli einstakl-
ingsins. Þannig höfum við meðal annars áhuga á
spennumynstri líkamans, hreyfihæfni og hryn-
bundnu ferli hans, eins og til dæmis önduninni."
Dr. Wilhelm Reich og mikilvægi kynlífsins
Lífeflismeðferð hefur vaxið upp úr verkum og
starfi dr. Wilhelms Reich. Wi'.helm Reich fæddist
árið 1897 á sveitabýli við landamæri Ungverja-
lands og Austurríkis. Þegar Reich stundaði nám
í læknisfræði við háskólann í Vínarborg ritaði
hann í dagbók sína:
Ef til vill stríðir siðgæðisvitund mín gegn því
en hvað sem því líður þá hef ég, út frá rninni eig-
in reynslu og athugun á sjálfum mér og öðmm,
komist að þeirri niðurstöðu að kynferðislíf er sú
miðja sem allt félagslíf, sem og innra líf einstakl-
ings, snýst í kringum.
Á námsárum sínum kynntist hann starfi Sig-
munds Freud og aðeins 23 ára gamall gekk hann
í Samband sálgreinenda og varð fljótlega einn
efnilegasti nemandi Freuds. í starfi sínu sem sál-
greinandi varð Reich sannfærður um að meginor-
sök taugaveiklunar væri truflun á orkubúskap
einstaklingsins. Reich gerði ráð fyrir því að ork-
an, sem hér ætti hlut að máli, væri orka kyn-
hneigðanna og væri lífiræðilegs eðlis. Heilbrigt
kynlíf er þess vegna forsenda almenns heilbrigðis
í geðheilsufræði Reichs.
Truflun á þessari náttúrlegu starfsemi er hins
vegar algeng í nútímasamfélagi. Félagslegar rann-
sóknir hafa leitt í ljós að margar konur fá ekki
fullnægingu og þó að karlmönnum risi hold og
þeir fái sáðlát þá er kynlífsánægjan oft fjarver-
andi. Ástæðumar taldi Reich meðal annars vera
vöntun á þeirri ánægju sem líkamssnerting veitir
ásamt alntennri tilhneigingu til að bæla tilfmninga-
lega og kynferðislega tjáningu í fjölskyldugerð
samtímans.
Samkvæmt kenningum Reichs felur heilbrigð
kynfullnæging í sér munúðarkenndan skjálfta alls
vöðvakerfisins, tilfinningalegt ástríki og vitundar-
legt algleymisástand. Hlutverk hennar er algjör
afhleðsla hinnar lífiræðilegu orku. Þegar slík af-
hleðsla á sér ekki stað sökum líkamlegra og tilfinn-
ingalegra hafta verður til umframorka.
Umframorkan verður síðan aflgjafi taugaveiklun-
ar og fær meðal annars útrás í formi vöðvaspennu,
kvíða, árásarhneigðar og ýmissa sállíkamlegra
sjúkdóma.
Reich taldi því mikilvægt að endurheimta hjá
skjólstæðingum sínurn náttúrlegan hæfileika til
ásta. I upphafi notaði hann sálgreiningaraðferð
Freuds en uppgötvaði fljótt annmarka hennar.
Hlutverk vödvabrynjimnar
Sálgreining var upphaflega bein túlkun á frá-
sögn sjúklingsins. Markmið hennar var að finna
rætur vandans í bældri tilfinningareynslu bemsku-
áranna. Fljótlega kom þó í ljós að upprifjun á
löngu gleymdri bemskureynslu hafði engan bata
í for með sér nema hin innibyrgða tilfinning kæmi
fram af endumýjuðum krafti. Freud breytti þess
WILHELM REICH
Wilhelm Reich (1897-1957) var austur-
rískur vísindamaður sem þróaði á
kerfisbundinn hátt heillandi og um-
deilda kenningu um alheimslega
lífsorku. Strax á fjórða áratugnum
sagði hann fyrir um stórfelldar breyt-
ingar í kynferðismálum og samskipt-
um innan hjónabandsins og fjölskyld-
unnar. Hann setti fram djarfar tillögur
varðandi uppeldismál, menntamál og
stjórnmál sem fyrst nú er verið að
taka til alvarlegrar umhugsunar. Upp-
götvanir hans á sviðum eins og
læknisfræði, líkamstjáningu og sam-
bandi líkama og hugar hafa haft djúp
áhrif á vísindi og menningu okkar
tíma.