Vikan - 02.07.1987, Blaðsíða 45
eins og þú snúist áfram eða þá að þú
standir kyrr en heimurinn sé á fleygi-
ferð. Þessi tilfmning hverfur þó fljótlega.
Nú spyrðu kannski: En hvað kemur
þetta ógleðinni við þegar ég sit í aftur-
sætinu á bílnum á leið til ömmu minnar
fyrir norðan?
Og svarið er: Heilmikið. Þó svo að
þú snúist ekki í hringi þegar þú ferðast
í bíl - nema ef foreldrar þínir eiga mjög
sérstæðan bíl - ertu samt á stöðugri
hreyfingu. Hlutir fyrir utan bílinn þjóta
hjá og augu þín hvarfla til og frá. Þú
reynir að lesa á vegarskiltin eða festa
augun á skjöldóttu kúnni á túninu
þarna. Heilinn hefur ærinn starfa. Hann
tekur sífellt við skilaboðum frá augun-
um og reynir að komast til botns í því
hvort þú sitjir kyrr eða sért á hreyfmgu
- og í raun gerirðu hvort tveggja í senn.
Meðan á ferðalaginu stendur fær heilinn
tvenns konar og andstæð skilaboð. Þeg-
ar skilaboðin fara að ruglast líður þér
á svipaðan hátt og eftir að hafa snúist
lengi í hringi. Tilfmningin ágerist og þér
fer að líða hræðilega.
Sumir verða aldrei ferðaveikir en aðr-
ir verða það jafnvel þó að um stutt
„ferðalög“ sé að ræða, til dæmis í lyftu
upp nokkrar hæðir.
Það liggur í augum uppi hvert er besta
ráðið við bílveiki, sjóveiki og flugveiki,
það er að hætta að ferðast með bíl, skipi
eða flugvél. Ef þú ert um borð í skipi
og ert sjóveikur verðurðu frískur um
leið og þú stígur á bryggjuna og ef þú
ert í flugvél hverfur ógleðin um leið og
flugvélin lendir.
En við getum ekki alveg hætt að ferð-
ast og viljum það fæst heldur. Lyf geta
komið að gagni við að vinna bug á sjúk-
dómseinkennum en mörg þessara lyíja
eru ekki holl börnum og oft eru auka-
verkanirnar jafnógeðfelldar og bílveikin
eða sjóveikin sjálf. Fyrir þá sem verða
mikið veikir á ferðalögum geta lyfin þó
hjálpað.
Þú getur reynt að hafa bílgluggann
opinn næst þegar þú ferðast í bíl eða
hlustað á útvarp til að dreifa huganum.
Ef þér líður illa skaltu reyna að liggja
og halda höfðinu kyrru. Ekki reyna að
lesa eða horfa á landslagið sem þýtur
framhjá. Það ruglar bara vesalings
innsta eyrað og heilann.
Þú getur beðið bílstjórann að stoppa
oft til að innsta eyrað geti framið jafn-
vægislistir sínar. Það er kannski lítil
huggun meðan þér líður illa en þú mátt
treysta því að innsta eyrað kemur á jafn-
vægi á nýjan leik um leið og þú hefur
fast land undir fótum.
Töframaðurinn
Þarna skaust ein kanína upp úr hattinum hjá þessum skrautlega
töframanni. En það eru fleiri kanínur sem hafa skotist upp úr
hattinum. Getur þú séð hvað þær eru margar?
Umsjón:
Hólmfríður Benediktsdóttir
27 TBL VIKAN 45