Vikan - 02.07.1987, Page 59
Fegurðardrottning árið 2007
Kristjana Geirsdóttir, betur þekkt sem
Jana, eignaðist dóttur nýlega. Litla
stúlkan er fædd 2. júní og er því ekki
enn búin að fá nafn. En hún á einn stór-
an bróður sem er átta ára og heitir
Geir Ólafur.
Eins og margir vita hefur Jana starfað
mikið við undirbúning og framkvæmd
fegurðarsamkeppna. Það er því ekki að
undra þótt búið sé að spá þvi að nýfædd
dóttir hennar verði fegurðardrottning
íslands árið 2007.
Jana geislar af ánægju þegar hún talar
um dótturina: „Þetta eryndislegt. Þegar
hún var fædd fannst mér svo skritið
hvernig hún gat komist fyrir inni í mér.
Mér finnst það bara vera kraftaverk að
hafa eignast heilbrigt og rétt skapað
barn. Ég er svo miklu viðkvæmari núna
heldur en áður og í raun nýt ég þess
miklu meira núna að eignast barn. Ég
veit alveg að hverju ég er að ganga,
maður er ekki eins óöruggur og í fyrra
skiptið, og svo er náttúrlega munur að
nú erum við hjónin búin að koma okk-
ur vel fyrir."
Jana segist helst halda að það sé eitt-
hvað í loftinu þessa dagana sem geri
það að verkum að mjög margir í kring-
um hana séu að eiga börn. „Ætli þetta
sé bara ekki smitandi," segir hún og
hlær. Hún verður svo alvarleg í bragði
og segir: „Það sem ég varð hissa á þeg-
ar ég átti dótturina var að það voru
engar mjög ungar stelpur sem lágu með
mér á fæðingardeildinni, eins og svo oft
er, þá meina ég undir tvítugu. Sennilega
er það frekar fólk á mínum aldri sem
er að eignast börn í dag, svona i kringum
þrítugt."
Jana segir að nú sé hún eiginlega kom-
in með óskabörnin. Samt hefur hún
alltaf látið sig dreyma um þrjú. „Ann-
ars þýðir ekki fyrir mig að hugsa um
þetta núna, ekki strax eftir fæðinguna.
Ég verð að fá að jafna mig aðeins fyrst.
í dag mundi ég örugglega segja nei við
þriðja barninu. Maður sér bara til,“
segir hún. Jana segir að það sé sennilega
misjafnt hvort foreldrar hafi tíma fyrir
börn sín. Svo heldur hún áfram: „í mínu
tilfelli hefur verið nógur tími fyrir son
minn og það verður eins með dótturina.
Ég er heppin með vinnutíma. Honum
er þannig háttað að ég er heima á dag-
inn en vinn á kvöldin og um helgar. Það
gerir maðurinn minn líka þannig að við
getum sinnt krökkunum allan daginn. í
gegnum tíðina hefur það verið þannig
að þegar við höfum farið i vinnuna hef-
ur Geir Ólafur verið að fara að sofa
þannig að hann hefur ekki orðið mikið
var við fjarveru okkar.
Okkar frítími er einmitt þegar aðrir
eru að vinna. Við förum til dæmis í úti-
legur i miðri viku en ekki um helgar.“
Jana segist varla trúa því að foreldrar
líti á börnin sín sem byrði. Það sé að
minnsta kosti ekki algengt. „Það þarf
enginn að eignast börn í dag ef hann
vill það ekki, það eru til svo margar
aðferðir til að koma í veg fyrir það. Svo
finnst mér ólíklegt að fólk sé ósátt við
að eiga börn þegar þau eru komin -
þetta er bara svo yndislegt,“ segir Jana
brosandi.
27. TBL VIKAN 59
50% Super Balance Kreuzmiren C 50% Suner m 50% Suœr
50% Suner B 50% 50%