Vikan - 02.07.1987, Síða 61
„Ég hefði ekki viljað
missa af þessu“
Pétur Pétursson fótboltakappi er í
hópi þeirra fjölmörgu sem eignast hafa
barn á þessu ári. Hann átti tvær dætur
áður, þær írisi Dögg, sjö ára, og Töru,
tveggja ára, en átjánda apríl síðastliðinn
fékk hann son, Pétur Mar.
Pétur segir að sú uppsveifla, sem virð-
ist vera í barneignum á þessu ári, sé
örugglega ekki tiskufyrirbrigði: „Mjög
margir af þeim sem ég þekki hafa eða
munu eignast barn á þessu ári. Eg veit
ekki hvers vegna þetta er svona algengt
núna. Þetta er hugsanlega vegna þess
að ég er orðinn 27 ára gamall og því
kominn á barneignaaldurinn. Kunn-
ingjarnir eru náttúrlega á svipuðum
aldri. Á þessum aldri er fólk yfírleitt
búið að koma sér sæmilega vel fyrir og
þá eru börnin oft á næsta leiti. Ánnars
er skýringin sennilega ekki svona ein-
föld. Ég man eftir því að þegar ég
eignaðist fyrstu dótturina voru mjög
margir í kringum mig að eiga börn á
sama tíma. Þá var ég ekki nema nítján
ára.“
Pétri finnst að æskilegast sé að byrja
barneignir í kringum 25 ára aldurinn.
Hann segist bara hafa verið krakki þeg-
ar hann átti fyrsta barnið. í dag er hann
þroskaðri. En hann heldur áfram: „Ég
held að allir foreldrar séu ánægðir þegar
börnin þeirra eru komin i heiminn, hvort
sem börnin voru upphaflega velkomin
eða ekki.“
Aðspurður segir Pétur að best sé ef
annað foreldrið geti verið heima hjá
börnunum. Hann er í góðri vinnu að
þessu leyti sem þjálfari hjá KR. Hann
getur skipst á við konuna sína að passa
börnin. „Sjálfur er ég alinn upp í stórum
krakkahópi á Akranesi. Við erum mörg
frændsystkin sem ólumst upp mjög náið
og erum í raun eins og systkin. Nú eru
börnin okkar eins. Við hittumst oft og
þá eru krakkarnir aðalatriðið. Börn eru
mjög mikilvæg í minni fjölskyldu. Sjálf-
ur gæti ég hugsað mér að eiga tíu
krakka. Þeir sem ekki eiga börn fara
að mínu áliti á mis við margt fallegt í
lífmu. Ég hefði ekki viljað missa af
þessu,“ segir Pétur að lokum.
27, TBL VIKAN 61