Vikan


Vikan - 22.10.1987, Side 6

Vikan - 22.10.1987, Side 6
/ LEIKLIST Viðgerð á sv Aldrei hefl ég unnið á bílaverkstæði enda hef ég ekkert vit á bílum. Þetta kemur þó ekki að sök þegar fylgst er með leikriti Ólafs Hauks Símonarson- ar, Bílaverkstæði Badda, sem frumsýnt var á sunnudaginn. Þar er Iítið rætt um bíla eða bílaviðgerðir heldur önnur og viðameiri mál. Litla sviðið er svo sem ekki stórt í sniðum og má segja að þarna sé Ieikið upp í opið geðið á áhorf- endum, líkt og þeir sitji sinn hvorum megin við Iangborð þar sem leikendur æða fram og aftur og bera fram veitingar í formi texta Ólafs Hauks. Þeir sem sjá um þá uppvart- ingu eru Bessi Bjarnason, Arnar Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Guðlaug María Bjarna- dóttir, Sigurður Sigurjónsson og Árni Tryggvason. Þetta eru allt stórleikarar sem Þórhallur Sigurðsson stýrir af stakri snilli. Nú er það svo, að leikrit byggist ekki síður á texta en leik. Og það er engin ládeyða í textanum því þar fljúga háfleygar setningar um lífið og tilveruna, í bland við framvindu verksins. Þarna eiga sér stað mikil átök og stigvaxandi spenna. Hins vegar finnst mér ákefð höfundar kannski fullmikil við að koma að snjöllum setningum sem eru dálít- ið út úr kortinu eins og það er lagt þarna á borð. Maður fer svona að velta því íýrir sér hvernig standi á að það séu eingöngu heim- spekingar sem eru að dudda þarna á bíla- verkstæði Badda. En það fer ekkert milli mála að þarna er góð sýning á ferðinni þótt sjálfúr hefði ég kosið stofúsvið frekar en bílaverkstæði svona miðað við innihald textans. Litla sviðið er ekki stórt, en þarna er það nýtt til fullnustu og sýnir enn einu sinni að möguleikar leikhússins eru nær óendanleg- ir, því gott leikhús fer ekki alltaf eftir því hvað sviðið er stórt eða hvað þar rúmast margir áhorfendur. Og þessi mikla nálægð við sviðið er skemmtileg reynsla útaf fyrir sig. Ég þorði hvorki að hósta né snýta mér af ótta við að Bessi sussaði á mig. En allir sem hafa áhuga á leikhúsi ættu að drífa sig á verkstæðið þarna við Lindargötuna og ekki að vita nema ýmsir fari þaðan út með ein- hverja viðgerð á sálinni -SG Sigurður Sigurjónsson, Jóhann Sigurðarson og Bessi Bjarnason; flókin tengsl á bílaverkstæði. UNDIR STRIKINU Áfram með Litla sviðið! Litla svið Þjóðleikhússins í gamla íþróttahúsinu hefúr á svipstundu sannað tilveru- ó VIKAN rétt sinn sem þýðingarmikið svið í leikhúslífl Reykjavík- ur. Reyndar er það einn leik- stjóri sem hefúr stýrt þar tveimur afbragðssýningum frá opnun. Þórhallur Sig- urðsson hefúr hóað til sín frábærum kröftum og laðað fram það besta úr hverjum einstökum, leikurum og höfúndum. Litla sviðið er einfaldlega sú smiðja sem margan í Þjóðleikhúsinu hefúr lengi dreymt um. „í smásjá" eftir Þórunni Sig- urðardóttur sem sýnt var á Litla 7 sviðinu á seinna misseri síðasta leikárs var verulega vönduð smíð, þarft innlegg í umræðu tíðarinnar og anda. Verkinu var búin stílhrein, fáguð umgjörð — leikritið raunar eitt vandaðasta byrjandaverk sem hér hefúr sést. En Þórunn Sigurðardóttir telst naumast byrjandi — og Þór- hallur Sigurðarson er atvinnu- maður í besta skilningi þess orðs. Hann sannar ferni sína aft- ur nú í haust með „Bílaverk- stæði Badda“ eftir Ólaf Hauk, sem fjallað er um hér að ofan. Vinnubrögð Þórhalls eru trú- lega það sem ffam úr skarar og eftir situr í listrænni vinnu í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. f þeim leikhúsum sem yfir fleiri en einu sviði ráða, er það næsta algengt að fela tilgreind- um hópum umsjón eða ábyrgð á viðbótarsviði — láta þýðingar- mesta vaxtarbroddi hússins í té vettvang til að starfa á og byggja áfram á lærdómi og reynslu. Þjóðleikhúsið hefúr borið gæfu til að nýta sér Litla sviðið upp á síðkastið — vonandi verður þar framhald á. —GG

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.