Vikan - 22.10.1987, Síða 27
Pilsa-
þylur
(yrir
norðan
- þegar 800 skóla-
systur úr Lauga-
landsskóla efndu til
nemendamóts.
Vikan var þar.
Átta hundruð konur á
öllum aldri, prúðbúnar og
með bros á vör. Ærslafullar
og riíjandi upp endur-
minngar fylltu fyrrum
nemendur í Húsmæðra-
skólanum, á Laugarlandi í
Eyjafirði íþróttahöllina á
Akureyri í byrjun þessa
mánaðar. Þá var haldið
stærsta nemendamót sem
sögur fara af. f einkabílum,
rútum og flugvélum mættu
konumar til Akureyrar, alls
staðar að af landinu og
jafnvel erlendis frá.
Minningin um skólann og
gamlar vinkonur laðaði þær
að og glensið var alsráðandi
við endurfúndina.
Það var enginn leikur að
koma öllum hópnum saman.
Allir árgangar ífá upphafi voru
boðaðir, en skólinn var
stofnsettur árið 1937 og hætti
ekki störfum fyrr en 1975. Það
útskrifuðust 1275 úr skólanum
á þessum tíma. „Það var
ótrúlega góð mæting, en
heljarinnar mál að ná sambandi
við allan þennan fjölda. Póstur
og sími var notaður duglega af
fólkinu, sem undirbjó þetta
kvöld," sagði Þóra Hjaltadóttir,
ein af þeim sem skipulagði
nemendamótið.
„Um miðjan ágúst náðum við
saman fulltrúum fyrir hvern
árgang í skólanum, sem síðan
settu sig í samband við
nemendur síns árs. Það þurfti
að leita mikið af sumum, eins
og gefúr að skilja. Það komu
konur alls staðar að af landinu,
400 komu með flugi, aðrar í
rútum og einkabílum. Hver
einasti landshluti geymdi konu,
sem hafði stundað nám í
Húsmæðraskólanum.
VIKAN 27