Vikan - 22.10.1987, Síða 13
Sovét:
Er tregða í Glasnostinu
Ætli Gorbachev viti af þessu?
Eitthvað virðist hin svo-
kaUaða glasnost stefna Gor-
bachevs vera lengi að skila
sér útí ystu afkima hins sov-
éska skrifræðis. Þrátt fyrir
yflrlýsingar um rýmri reglur
í sambandi við leyfi tfl að
ferðast og flytjast úr landi er
fjögurra manna fjölskylda
orðin nokkum veginn úr-
kula vonar um að fá að
heimsækja ættingja sinn sem
búsettur er í Noregi.
Frá því 1979 hefur fjölskyld-
unni verið neitað fimm sinnum
um ferðaleyfi á þeim forsendum
að fjölskyldufaðirinn geti verið
hættulegur öryggi ríkisins, en
hann er verkfræðingur að
mennt og starfaði þar til fyrir 11
árum við verkefhi sem voru
stimpluð sem leyndarmál. Síð-
asta áratuginn hefur hann aftur á
móti starfað í leikfangaiðnaðin-
um og á 15 einkaleyfi á þeim
vettvangi.
Mágkona Matus, Kamilla Kol-
tjinskaja, fluttist frá Sovétríkjun-
um til ísraels fyrir 11 árum, en
hefur búið síðustu árin í Noregi.
Eini fjölskyldumeðlimurinn sem
hefur fengið leyfi til að heim-
sækja hana er móðir hennar, átt-
ræður krabbameinssjúklingur,
sem heilsu sinnar vegna getur
ekki ferðast einsömul.
Þrátt fyrir fjölmargar fyrir-
spurnir ffá norskum yfirvöldum
hefur ekkert svar borist ff á þeim
sovésku, nema það að nú sé
málið til umfjöllunar í sérstakri
nefiid innan æðstu stjórnsýslu
Sovétríkjanna.
Finska Notisbyrán
Danmörk:
HUNDA
(BFUÁL)
ÆÐI?
Það er víðar en hér á landi
sem menn lýsa sig reiðu-
búna til að fóma frelsi, og
jafhvel föðurlandi fýrir
hundana sína. 46 ára
maður frá Fredrikssund í
Danmörku gekk ívið lengra í
þessum málum en Albert
okkar Guðmundsson, þar
sem aldrei reyndi á það
hvort Albert væri fús til að
sitja inni vegna Lucy. Dan-
inn lagði á sig tveggja vikna
fangelsisvist vegna fjár-
hundsins Freys, sem varð að
lokum að láta lífið vegna
þrjósku eigandans.
Aðdragandinn að málinu var
með þeim hætti að hundeigand-
inn keypti Frey af hundabúi sem
hafði tekið hann ffá fyrri eig-
anda á fremur hæpnum forsend-
um. Þegar fyrri eigandinn gerði
svo kröfú til hundsins dæmdi
undirréttur honum í hag, en
Fredrikssundsbúinn var þá orð-
Hundtryggir vinir á meðan allt lék í lyndi.
inn svo elskur að kvikindinu að
hann faldi hundinn og neitaði
að láta uppi hvar hann var.
Okkar maður var þá dæmdur
í varðhald þar til hann léti af
þrjósku sinni og sagði til
hundsins. Tugthússlimurinn lét
ekki þar við sitja, heldur áfrýjaði
hann málinu til hæstaréttar sem
staðfesti dóminn í síðustu viku.
Þrátt fyrir óþægindin og tekju-
tapið af þessu ævintýri var eng-
an bilbug á okkar manni að
finna, heldur sagði hann: „Kon-
an mín og ég erum reiðubúin til
að selja húsið okkar og bílinn og
jafhvel flýja land fyrir hundinn.
Eitthvað hefur hann samt ofmet-
ið tryggð konunnar við hund-
inn, því þegar hún sá ffam á
áframhaldandi fangelsisvist
bónda síns kom hún upp um
felustað hundsins sem var tek-
inn á dýraspítala og aflífaður.
Ritzaus Bureau
Noregur/Nicaragua:
Olía í
þróunar-
hjálp?
Norðmenn ætla að senda
hóp sérfræðinga til Nicar-
agua til að kanna grundvöll
fýrir samvinnu landanna á
sviði oiíuvinnslu. Norski
þróunarmálaráðherrann,
Vesla Vetlesen staðfesti
þetta við fréttamann
norsku fréttastofunnar
NTB þar sem hann var í
opinberri heimsókn í Man-
agua fyrir nokkrum
dögum.
Orkumálaráðherra Nicarag-
ua, Emilio Rappaccioli, sem
var í heimsókn í Ösló fyrir
nokkrum vikum, bryddaði þá
upp á þessum hugmyndum við
norska ráðamenn.
Norski ráðherrann, frú Vesla
Vetlesen,hefúr undanfarið ver-
ið á ferð um ríki Mið- og Suð-
ur-Ameríku, til að kanna ástand
mála í þessum heimshluta fyrir
hönd ríkisstjórnar sinnar.
Meðal þeirrar aðstoðar sem
Sandinistar í Nicaragua fara
ffam á, er túlkun á niðurstöð-
um jarðffæðilegra rannsókna
með það fyrir augum að slá
föstu, hvort olía finnist í land-
inu eða ekki og hvort hún sé
þá vinnanleg, ef hún er til
staðar.
Ef vinnanleg olía finnst í
Nicaragua, þarf landið einnig
hjálp til framleiðslunnar, þar
sem landið ræður hvorki yfir
tækniþekkingu né reynslu til
að gera slíkt hjálparlaust.
Fjölmargar tilraunir hafa
verið gerðar í Nicaragua til að
finna olíu. Fyrstu tilraunirnar
voru gerðar á fjórða áratug
aldarinnar, en Sandinista-
stjórnin í landinu hefúr enga
hugmynd um raunverulegan
árangur þessara tilrauna, þar
sem allar upplýsingar þar að
lútandi hurfii úr landinu með
erlendum olíufélögum sem
flúðu landið í byltingarátökun-
um 1979.
Stjórnvöld segjast þó vita að
olíulindir hafi fúndist, en ekki
hvar eða hversu stórar.
Sovétríkin hafá ffam að
þessu séð Sandinistastjórninni
fyrir olíu, en Kreml tilkynnti
hins vegar í maí á þessu ári,
að Sovétstjórnin treysti sér
ekki til að halda því áffam.
Diis B0hn
VIKAN 13
UTLOND