Vikan


Vikan - 22.10.1987, Side 17

Vikan - 22.10.1987, Side 17
KÍLÓUM er best með forsjá og höfiim við á Vikunni fullan hug á að taka þá til fyrirmyndar í þeim efnum. Breytingarnar á Vikunni hafa ekki verið átakalausar og má með sanni segja að starfsfólk blaðsins hafl lyft Grettistaki við undirbúninginn undanfarna daga, þó ekki sé beinlínis hægt að mæla framlagið í kílóum, eins og árangur íslensku aflrauna- kappanna í keppninni í Kanada. Ritstjórn Vikunnar viður- kennir fúslega, að forsjálninni var dálítið ábótavant, þegar kapp var lagt á að ljúka frágangi forsíðu blaðsins fyrir helgina, þar sem tæknilegar forsendur útilokuðu í þetta sinn, að hægt væri að geyma hana til síðasta dags fyrir útkomu blaðsins. Félagarnir í kraftajötnahópn- um, sem lagði af stað til Kanada fyrir helgi, höfðu samband við Vikuna og buðust til að færa okkur myndir og frásögn af væntanlegum góðum árangri Jóns Páls Sigmarssonar í keppn- inni, þar sem þeir reiknuðu með að Jón Páll myndi halda uppi merki íslands eins og hann hefúr gert svo frækilega undan- farin ár. Á mánudagsmorgun mætti síðan Hjalti Árnason, Úrsus, með umræddar myndir og lét þess síðan getið í forbífartinni, að hann hafi reyndar sjálfur orð- ið fremstur meðal jafningja og sett glæsilegt heimsmet í keppn- inni! Hjalti skráði nafn sitt eftir- minnilega í heimssöguna, þótt hans sé ekki getið á forsíðu Vik- unnar í þetta sinn. Það má því á vissan hátt kenna um hæversku samferð- armanna Jóns Páls á keppnina, að gefið er í skyn á forsíðunni, að Jón Páll hafi verið einn á ferð með kraftakörlum í Kanada. Keppnin reyndist vera örlítið meira mál fyrir Jón Pál, sem náði einungis fimmta sæti. Samanlagður árangur Hjalta kom honum í fjórða sæti, sem er í fyrsta sinn sem Hjalti slær Jón Pál út í keppni af þessu tagi. —MG Danska stúlkan ófundin LÖGREGLAN í Reykjavík leitar nú fimmtán ára danskrar stúlku, Piu Jespersen, sem ekkert hefur til spurst siðan kl. 16.00 á mið- vikudag. Grunur leikur á að hún hafi komist um borð í flugvél til Noregs. Pia er 165 cm á hæð með Ijóst, stutt hár og og þéttvaxin. Þegar hún hvarf var hún klædd í strig- askó, bláar gallabuxur og bláan gallajakka með hvítu loðfóðrí og loðkraga. Hún var með svarta hand- tösku og notar ýmist gleraugu eða linsur. Pia dvaldist á Upptökuheimilinu i Kópavogi og skilaði sér ekki þang- að eftir tojarferð á miðvikudag. vihli jyatnan komart frá íslandi. Þcir scm gætu g“fið upplýsingar nm forðir Piu eftir kl. 16.00 á mið- vikmlag ent heðnir um að hafa sanihand. við lögregluna í Itcykjnvík. Nnkkiir misskilningur kom upp v.-mViuli hvnrf stúll ii'uiar )tegar tilkvnnt vnr að latmiufarþégi gmti v-'rið mn l">rð i Jiíska skijiinu .lanmi'' Wclir, scm f«'r hcðan á mið- vikinlag. Að s.i.r,, .lónasar Hallsson- ar váiðstjóra cr Jmð vcnjan Jtcgar fólk hvciVi.ir, að l::*im;> íivoil Jiað só cf til vill um horð í skijr.im cða flugvóhnn scm fnrið liafn frá ís- lamli. Slaifsinenn strandslöðvá i Sk.it laii.li nu'l"ðust citthvað I ríminu að lauuiufnrþi Þannig skýrði Morgunblaðið frá hvarfi dönsku stúlkunnar í júlí. Ótrúlegur f jölskylduharmleikur Frh. af bls. 15 mikla áherslu á að hún flnnist, þar sem hún er sannfærð um að dóttir sín sé í mikilli hættu, og aðferð Peters til að ná valdi yfir henni jafngildi mannráni! „Hún gjörbreyttist eftir að Peter fór að rugla með hana og við þekkjum hana ekki fyrir sama barn,“ segir amman. Ef frásagnir móður og ömmu Piu eru sannar, er ekki undarlegt, að stúlkan sé ráðvillt. Hreint ótrúleg með- ferð allrar fjölskyldunnar á Piu hefur á endanum skapað ör- vinglaðan ungling, sem lítur allan heiminn með mikilli tor- tryggni. Fjölskyldan virðist hafa látið að mestu óátalið og ekki kært til lögreglunnar fyrr en seint um síðir, að móðurbróðir Piu, Peter Jespersen, hafi byrjað að misnota hana kynferðislega fyrir meira en einu og hálfu ári. Skýringin virðist liggja í djúpstæðum ótta fjölskyldunn- ar við hugsanleg ofsakennd viðbrögð Peters, efyfirvöldum yrði blandað í málið. Þegar amraan, Sine Jespers- en, var innt eftir viðbrögðum fyrrum tengdasonar síns, raun- verulegs föður Piu, við athöfn- um Peters Jespersen, kom ótrúlegur hlutur í ljós. Vikan hefur fengið frásögn Sine Jesp- ersen staðfesta frá fleiri aðilum í Danmörku. Sine Jespersen segir að son- ur hennar, Peter Jespersen hafi ekki aðeins haft kynferðislegt samband við dótturdóttur hennar. Hann hafi einnig stað- ið í kynferðislegu sambandi við fyrrverandi tengdason hennar, föður Piu, sem hafi því einnig verið tilfinningalegur háður Peter. Ingelise Jespersen staðfestir þessa frásögn móður sinnar og segir kynhverfu fyrrum eigin- manns síns hafa verið orsök skilnaðar þeirra. Kynferðislegar uppákomur í þessari dönsku fjölskyldu, áttu þó eftir að setja enn meiri svip á þetta ótrúlega mál. Pia kærði stjúpa sinn til dönsku lögreglunnar, síðast- liðið vor fyrir kynferðislega misnotkun á sér, sem átti að hafa gerst um svipað leiti og hún fór að hafa slíkt samband við móðurbróðirinn. Þessu harðneitar stjúpinn. Móðir Piu og amma leggja ekki trúnað á þessar ásakanir og þær segjast álíta að Peter Jesp- ersen hafi fengið Piu til að ásaka stjúpa sinn fyrir glæp- samlegt kynferðislegt athæfi, þar sem Peter hafi óttast að yfirvöld kæmust að glæpsam- legu sambandi hans sjálfs við barnið. Hafi hann því viljað skella kynferðislegu skuldinni á núverandi eiginmann T> ge- iise Jespersen. Hvort sem Pia Jespersen finnst eða ekki, er þó ljóst, að hún vill undir engum kring- umstæðum fara heim til móð- ur sinnar og stjúpa í Reykjavík. Hún hefur oftsinnis hlaupist að heiman á meðan fjölskyldan bjó í Danmörku. Norsk og íslensk dómsmála- yfirvöld telja þó afar brýnt að hún finnist og afdrif hennar verði kunn. Togstreitunni um yfirráð yfir Piu lýkur þó fljótlega, þar sem hún verður 16 ára 12. nóvember. Þá fær hún loks sjálf lagalegan ákvörðunarrétt yfir eigin framtíð. VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.