Vikan


Vikan - 22.10.1987, Blaðsíða 55

Vikan - 22.10.1987, Blaðsíða 55
Eddie Chaplin? Eddie Murphy er tvímæla- laust eitt stærsta nafnið í kvikmyndaheiminum i dag. Það er sama nálægt hverju hann kemur, það selst. Hann er Michael Jackson kvikmynd- anna. Sjálfur hefur hann ekki hugmynd um hvað hann er búinn að þéna mikið á ferli sínum, en finnst það ekki nóg. Nú vill hann nefnilega gera meira en að leika í kvikmyndum. Hann vill verða hinn nýi Charlie Chaplin. - Ég vil gera eins og hann. Ég vil sjálfur skrifa handritin, leika aðalhlutverkin, framleiða myndirnir og hirða gróðann. Af hverju ekki að hirða sjálfur stærstu kökusneiðina? Margir hafa eytt ferli sínum í að hlaða undir rassinn á mönnum sem standa á bak við tjöldin. Það ætla ég ekki að gera. Hann er stjarna og lifir sem stjarna. Dýrir bílar og dýr föt. Ef honum leiðist fer hann og kaupir sér bíl. Ef ekki þá kaupir hann bara föt, og þau ekki í ódýrari kantinum. - Ég nýt lífsins og það er ekkert athugavert við það. Ég bið Ifka til Guðs tvisvar á dag. Ekki af því að ég sé svo trúaður, heldur er það eins konar baktrygging. Það eina sem vantar uppá til að fullkomna hamingju Murphys er að kærastan hans, Lisa Figueroa, sem hann leitar alltaf til aftur þrátt fyrir önnur ævintýri, neitar að flytja inn til hans. Hún vili fyrst tryggja sig með skriflegum samningi, en það hefur ekki komið til greina hjá Murphy sem er greinilega varkár eftir að hafa séð hvernig vinkona hans, Gitte Stallone gekk út úr hjónabandinu við Sly. Skilnaöur vegna sjónvarps Bandarískur sálfræðingur segir að sjónvarpið sé orðið einn helsti skilnaðarvaidurinn í Bandaríkjunum nú. Þessu til staðfestingar nefnir hann könnun sem hann gerði sjálfur á þeim hjónum sem leituðu til hans. Niðurstöðurnar fengu hann til að halda því fram að nútíma samband byggist ekki upp á tveimur aðilum eins og áður var, heldur þremur: manni, konu og sjónvarpi. Sjónvarpið er orðið svo stór hluti tilveru okkar að það er orðið fullgildur meðlimur í sam- böndum hjóna, og oft sá sem má Fínt, við náum að sjá seinni hálf- leik áður en bíómyndin byrjar. sín mest, segir hann. Öfgakenndasta dæmið sem hann nefndi var samband nýgiftra hjóna þar sem eiginkonan tók ástfóstri við sjónvarpið og þýddi ekkert fyrir manninn að fitja upp á umræðum eða að fá hana til að fara út með sér. Þessi sjónvarps- sýki ungu konunnar leiddi til skilnaðar eftir aðeins hálft ár. Sálfræðingurinn segir sjón- varpið hafa áhrif á fleiri vegu en að ræna athygli annars makans. Fólk ber sjálft sig og aðstæður sínar nefnilega ósjálfrátt saman við það sem það sér í sjónvarpi. Þar af leiðir að fólk getur orðið óánægt með líf sitt vegna þess að það virkar ekki eins spennandi og það sem sést á skjánum. Hvernig á líka hinn venjulegi meðaljón að standa undir því að vera borinn saman við fyrirmynd- arföðurinn Bill Cosby í hvert sinn sem hann missir stjórn á skapi sínu og öskrar á krakkaormana? Bobby draugur? Patrick Duffy er farinn að halda framhjá í sjónvarpinu. Ekki svo að skilja að þar sé neitt ósiðsam- legt á ferðinni, heldur er hann ein- ungis að skipta um hlutverk. Hann tók nefnilega að sér að koma fram sem gestur í þáttaröð- inni Our House, sem er feikivin- sæll í Bandaríkjunum. Hlutverk Duffys verður að leika föður einnar söguhetjunnar í þátt- unum og vitjar hennar að handan. Duffy ætti að fara létt með að leika draug, því æfingu fékk hann næga er hann var skrifaður inn í Dallas á ný sem draugur Bobby Ewing. Framleiðandi Our House þvertekur þó fyrir að það sé á- stæðan, heldur segir hann Duffy einfaldlega vera svo góðan leikara. STJÖRNUFRÉTTIR Fréttir Stjörnunnar vekja athygli. Stjörnufréttir eru alvörufréttir, fluttar á ferskan hátt. Fréttir fyrir fólk. Stjörnufréttir alian sólarhringinn: Kl. 8, 10, 12, 14, 16, 18 og 23 alla virka daga, kl. 10, 12 og 18 um helgar, *kl. 2 og 4 um nætur. A Skínandi fréttir á FM 102 og 104 VIKAN 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.