Vikan - 22.10.1987, Qupperneq 39
Þegar ég lýk við að skrifa
bók þá líður mér eins og
fæðing sé afstaðin.
líkar öll undirbúningsvinnan og
að vegna hennar virðast sögurn-
ar næstum sannar. Lesendur
bókanna eru af öllum stéttum
þjóðfélagsins og jafnt konur
sem karlar.“
Jean var spurð hvers vegna
Ayla væri svona fullkomin; besti
veiðimaðurinn, hefði fallegasta
líkamann o.s.frv. Jean svaraði
því til að hún liti ekki á Aylu
sem fullkomna; hún óhlýðnaðist
off og ástæðan fyrir því að hún
væri besti veiðimaðurinn væri
vegna þess munar sem væri á
Neanderdalsmanninum og okk-
ur. Fólkinu í sögunni finnst Ayla
ljót af því fætur hennar eru
beinir, ekki bognir og loðnir
eins og þeirra, hakan á henni
furðuverk, að hún sé alltof stór
og þau skilja ekki hvers vegna
vatn lekur stundum úr augun-
um á henni og í gegnum þessi
viðbrögð Neanderdalsfólksins
skynja lesendur um leið muninn
sem er á milli kynstofnanna
tveggja.
Þegar Jean kom til íslands var
hún að ljúka löngu ferðalagi um
Evrópu þar sem hún hafði skoð-
að marga merka staði — sem hún
á kannski eftir nota við um-
hverflslýsingar í næstu bókum
sínum. Hún varð djúpt snortin
af Gullfossi og landslaginu þar
og sagði að það líktist djúpum
dal sem hún hefði lýst í öðru
bindinu, The Valley of Horses,
en íslenska þýðingin á þeirri
bók er rétt um það bil að koma
út.
í Bandaríkjunum var fyrsta
bókin endurprentuð sjö sinnum
og var á lista yfir mest seldu
bækurnar í meira en ár. Bækurn-
ar seljast einnig stöðugt í harð-
spjalda útgáfu, sem er mjög
óvenjulegt þar í landi því þar
eru það aðallega kiljur sem selj-
ast eitthvað að ráði. Auk þessa
hefur verið gerð kvikmynd eftir
fyrstu sögunni, „því miður,“ seg-
ir Jean, vegna þess að hún telur
að myndin hafa gefið mjög
ranga mynd af sögunni. Það eina
sem hún var ánægð með þar var
valið á leikkonunni sem lék
Aylu, Daryl Hannah, sem þekkt
er sem hafmeyjan í SPLASH, og
segir að hún sé alveg eins og
hún h;ifði hugsað sér Aylu.
Bækurnar hafa því auðvitað
fært Jean drjúgar tekjur og
nú búa þau hjónin í stóru húsi
niðri við sjó í Portland í Oreg-
onfýlki í Bandaríkjunum þar
sem Jean hefur vinnustofia á
efstu hæð og útsýni yfir Kyrra-
hafið. Ray starfar nú sem um-
boðsmaður eiginkonunnar og
sér um fjármálin — „og sér um
að bægja gestum frá heimilinu
þegar ég er að vinna," segir
Jean, og af öllum samskiptum
þeirra er auðséð að mikil ástúð
og umhyggja ríkir þeirra á milli.
Vænst, sagði Jean, að sér þætti
um, að geta nú hringt til barn-
anna sinna, sem öll eru flutt að
heiman og búa mörg langt frá
foreldrum sínum, og sagt þeim
að taka næstu flugvél og korna í
heimsókn með alla fjölskylduna
— og að mamma borgi!
VIKAN 39