Vikan - 22.10.1987, Qupperneq 67
þar vestra árum saman og lifði
mjög góðu lífi á því að koma fram
og gefa út plötur. Hápunktinum á
þessum ferli segist Cosby hafa
náð árið 1969 þegar hann átti
fjórar breiðskífur f einu á banda-
ríska vinsældalistanum. Einnig
þótti honum mikið varið í það að
fá „Emmy“ verðlaunin fyrir grín
sitt.
Cosby segir sjálfur: - Þættirnir
hafa orðið mun vinsælli en ég átti
von á. Ég vildi bara gera þátt um
fjölskyldu sem væri eins raun-
veruleg og hún getur orðið í sjón-
varpi án þess að nota gróft eða
hneykslanlegt málfar. Það fallega
í þáttunum er ástin og samheldn-
in innan fjölskyldunnar og ég held
að það sé þess vegna sem fólk
horfir á þá. Þessir þættir eru
byggðir á mínu eigin fjölskyldulífi,
en ég á fimm börn eins og Cliff
Huxtable og alveg jafn yndislega
konu.
- Auðvitað eru þættirnir stíl-
færðir, en flest sem gerist í þátt-
unum á sér sannleikskorn í fjöl-
skyldulífi mínu. Ég held að þar sé
lykillinn að vinsældunum fólginn.
Fólk sér á skjánum aðstæður
sem það getur heimfært uppá
sjálft sig, eða í það minnsta uppá
einhvern sem það þekkir. Ég held
að fólk fái sömu tilfinningu og ég
eftir þáttinn: Ég brosi og mér líður
vel.
Cosby hefur samt mun meira út
úr því að gera þættina en vellíð-
anina eina. Heildartekjur hans á
árinu eru í kringum einn og hálfur
milljarður, eða svipað og Kringlan
kostaði í byggingu. Minnsti hluti
þessara tekna koma þó beint frá
sjónvarpsþáttunum. Á þriggja ára
samningstímabili við risafyrirtæk-
ið E. F. Hutton fær Cosby 600
milljónir króna fyrir auglýsingar.
Næst stærsta tekjulindin er svo
samningur við Colombia Pictures
um að leika í kvikmynd sem færir
honum 300 milljónir. Bókin hans
um barnauppeldi hefur svo þegar
fært honum yfir 200 milljónir. Að
auki fær hann risaupphæðir fyrir
að koma fram á sviði með gam-
anmál.
Þrátt fyrir að þættirnir skili
Cosby ekki „nerna" 90 milljónum
króna á ári er það þeim að þakka
hversu hátt hann getur verðlagt
sig. Eftir skoðun þessara talna er
auðskilið hvernig hann fer að því
að vera þessi mikli fyrirmyndar-
faðir. Mikið skal til mikils að vinna,
og þegar maður er bæði að gera
það sem maður hefur gaman af
og fær að auki þessar tekjur fyrir
það ætti ekki að vera mikið mál
að sýna sínum nánustu svolítið
umburðarlyndi.
Þaö er ekki von þó Cosby
sé sposkur á svip yfir
tekjunum.
Bandarískir sjónvarpsáhorf-
endur eru svo sannarlega óút-
reiknanlegir. Árið 1984 voru ail-
ir vinsælustu þættirnir einhver
samsuða úr kynlífi, ofbeldi,
græðgi og glimmeri. Þá datt
Bill Cosby í hug að fara í gang
með gamanþátt byggðan á fjöl-
skyldulífi sínu. Þrátt fyrir að
Cosby hafi þegar verið mjög
vinsæll leikari og einn virtasti
skemmtikrafturinn (stand up
commedian) í Bandaríkjunum
spáðu sérfræðingar að þáttur-
inn myndi ekki endast út árið.
Einhverra hluta vegna varð
þessi svarta millistéttarfjölskylda
skyndilega uppáhald allra
Bandaríkjamanna og í kjölfarið
fylgdi sigurganga um gjörvalla
heimsbyggðina og var ísland
engin undantekning þar á. Nú
horfa um það bil 70 milljónir
manna á þáttinn í hverri viku, og
er hann langvinsælasti fram-
haldsþátturinn í heiminum. Talið
er að skýringuna sé helst að finna
í þvi að áhorfendur hafi jafnvel
óafvitað verið orðnir leiðir á þeirri
glæsilegu gerviveröld sem birtist í
öllum vinsælustu þáttunum á
þeim tíma. Skyndilega urðu sak-
leysislegir grínþættir vinsælir á
ný, og er það Cosby þáttunum á
þakka.
Fólk má þó ekki halda að
Cosby hafi ekki verið neitt fyrir
þættina. Eins og fyrr segir var
hann einn virtasti brandarakarlinn
Ein
Kringla
á ári
í tekjur
Staupa-
steinn
besti grín
þátturinn
Að mati Bandarískra sjón-
varpssérfræðinga er þátturinn
Staupasteinn, sem er íslending-
um að góðu kunnur, besti gaman-
þátturinn sem sýndur er i sjón-
varpi um þessar mundir. [ öðru
sæti varð þáttur sem á ensku
nefnist Newhart, og hefur því
miður ekki borist hingað ennþá. í
þriðja sæti varð svo þátturinn
Fjölskyldubönd sem er sýndur á
Stöð 2 um þessar mundir. Á óvart
kom að fyrirmyndin sjálf, Bill
Cosby, skyldi ekki ná nema sjö-
unda sæti með þátt sinn. Það
sem sérfræðingarnir fundu
þættinum til foráttu var einna
helst að fjölskyldan væri of full-
komin.
Einnig voru greidd atkvæði um
besta grínþátt f sjónvarpi frá upp-
hafi. Sigurvegari þar varð Mary
Tyler Moore Show, en þeir þættir
voru á dagskrá Ríkissiónvarpsins
fyrir nokkrum árum. I öðru sæti
urðu þættirnir All in the Family,
sem aldrei hafa komist á skjáinn
hérlendis. Gömlu kunningjarnir
okkar úr M*A*S‘H, eða Spítalalff
eins og þættirnir nefndust á ís-
lensku, urðu svo í þriðja sæti þar.
Eins og sjá má á þessari upp-
talningu hafa íslenskir sjónvarps-
áhorfendur fengið að njóta flestra
bestu grínþáttanna sem hafa
gengið í Bandaríkjunum og
ganga þar nú. Ekki nóg með það,
heldur hafa þeir líka verið lausir
við þá verstu, en enginn af þeim
þáttum sem voru nefndir í þeim
flokki hefur verið sýndur hér á
landi.
VIKAN 67