Vikan


Vikan - 21.01.1988, Blaðsíða 8

Vikan - 21.01.1988, Blaðsíða 8
„Alþýðubandalagið heffur aldrei gert brottför úr NATO að skilyrði fyrir stjórnarmyndum“ Sem dæmi um breytingar á al- þjóðavettvangi nefhir Ólafur af- vopnunarsamninginn sem Reag- an og Gorbasjov undirrituðu á síðasta ári, þróun Evrópu í við- skiptalegt og stjórnmálalegt samband þar sem komið er á daginn að í ríkjum eins og Nor- egi, Svíþjóð og Austurríki sem verið hafa í EFTA, er farið að ræða hvort eigi að ganga í EBE eða efla tengslin við það á annan hátt. „Við íslendingar getum staðið firammi fyrir því á næsta áratug að ákveða hvort við viljum til- heyra Evrópu í stjórnmálalegu og viðskiptalegu tilliti eða hvort við verðum bundin við Banda- ríkin. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að við eigum að fylgj- ast að með ríkjum Evrópu þótt svo að við getum ekki gengið í EBE vegna ákvæða Rómarsátt- málans sem myndu veita öðrum ríkjum aðgang að auðlindum okkar," segir Olafur. „Innan NATO hefur einnig í auknum mæli borið á sjálfstæði gagnvart og gagnrýni á hernað- arstefhu Bandaríkjanna sem mótað hefur afstöðu NATO. Til dæmis má nefha sjálfstæða stefnu Grikklands, Danmerkur og Spáns í því sambandi. Sú þróun gerir það að verkum að mikilvægt er fyrir okkur að geta átt samleið með bæði ríkis- stjórnum innan NATO og stjórnmálaflokkum í öðrum NATO ríkjum sem hafa sömu af- stöðu til afvopnunarmála og við.“ Áfangar og skref „Við höfum lagt áherslu á slagorðið „ísland úr NATO, her- inn burt“ og þótt það hljómi fallega og lýsi lokatakmarkinu segir það lítið eða ekkert um áfanga eða skref að því. Þetta slagorð má ekki verða til þess að við lýsum ekki ákveðnum áföng- um. Við viljum umræður um þá áfanga og hvaða breytingar er hægt að gera stig af stigi," segir Ólafur. „í þessu sambandi má benda á þrennt. í fyrsta lagi að ekki verði haldið áfram þeirri vígbúnaðar- uppbyggingu sem hér er. í öðru lagi að Island fylgi fordæmi Ný- sjálendinga og Spánverja og 8 VIKAN Ólafur Ragnar heilsar mótframbjóðanda sínum, Sigríði Stefánsdóttur, á landsfundi Alþýðubanda- lagsins. banni umferð skipa og flugvéla sem geta borið kjarnorkuvopn og í þriðja lagi að hafhar verði formlegar samningaviðræður um afvopnun á höfunum. Við viljum leita samstöðu með öðr- um flokkum hér á landi um þessi atriði hver svo sem afstaða þeirra er til NATO.“ Þýðir þetta þá að Alþýðu- bandalagið geti að öðru leyti sætt sig við aðildina að NATO? „Þótt Alþýðubandalagið hafi þá stefhu að ísland eigi að vera utan hernaðarbandalaga hefur flokkurinn aldrei gert brottför úr NATO að skilyrði fyrir stjórn- armyndun hvorki 1956, 1971, 1978 né 1980. Við höfúm hins- vegar haft þá stefhu að herinn fari eða minnki umsvif sín og gert slíkar kröfúr að skilyrðum í stjómarmyundun. Við höfúm því í reynd skilið þarna á milli að öðru leyti. Hið nýja í þessu máli eru hins vegar að nú setjum við fram ná- kvæmar tillögur um hvernig hægt sé að þrepa niður vígbún- aðinn hér á landi til þess að um- ræðan snúist ekki um allt eða ekkert og jafhvel stuðnings- menn NATO ættu að geta tekið þátt í viðræðum við okkur á þessum línum.“ Nú fór Svavar Gestsson ný- lega í NATO boðsferð til Norfolk. Munið þið taka þátt í þessum boðsferðum í framtíð- inni? „Ég tel rétt að eiga viðræður um þessi mál við hvern sem er. Ég hef rætt við starfsmenn bæði Hvíta hússins og Þjóðaröryggis- ráðsins í Bandaríkjunum auk þingmanna þar um öryggismál og sé engan mun þar á og við- ræðum og skoðanaskiptum við aðila innan NATO. Ef rætt er við húsbændurna á höfúðbólinu er ekkert sem mælir á móti við- ræðum við hjáleiguna í Brussel." Áttu ekki von á að þessi sjón- armið eigi erfitt uppdráttar í flokknum? „Það held ég ekki. Ég tel að þessi sjónarmið hafi mætt skiln- ingi og eigi víðtækan stuðning innan flokksins. Er við ákváðum að Svavar Gestsson þægi boðið til Norfolk var það mál rætt í þingflokknum. Engar gagnrýnis- raddir hafa komið úr flokknum gagnvart þeirri ferð. Viðræður á borð við þær sem þar fóru fram og opin samskipti að öðru leyti eru til bóta. Við verðum að hafa augun opin og sá sem einangrar sig frá málefnum sem þessum tapar á því fyrr eða síðar." „Við höfum lagt áherslu á slagorðin „island úr NATO og herinn burt“ og þótt það hljómi fallega og lýsi lokatakmarkinu, segir það lítið eða ekkert um áfanga eða skref af því. Þetta slagorð má ekki verða til þess að við lýsum ekki ákveðnum áföng- um og við viljum umræður um þá áfanga og hvaða breytingar er hægt að gera stig af stigi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.