Vikan


Vikan - 21.01.1988, Blaðsíða 22

Vikan - 21.01.1988, Blaðsíða 22
og fjandsamleg. Stéttaskiptingin hefur verið mikil og greinilegur munur á þeim sem höfðu völd og valdlausum. Stéttaskipting í dauðanum Helstu vísbendingarnar um þessa stéttaskiptingu er að finna á greftrunarsvæðum þar sem mismunandi greftrunarsiðir voru viðhafðir eftir mikilvægi þeirra sem jarðaðir voru. Ef tek- ið er sem dæmi greftrunarsvæði frá þessum tíma sem fannst við Hunn í Suður-Noregi þá sjást ummerki eftir bæði fátæka og ríka. í útjaðri greftrunarsvæðis- ins þar sem jörðin er mögur og ófrjósöm fúndust margar grafir sem samanstóðu af litlum hol- um með brenndum beinum í. í hreinni andstöðu við þessar grafir fátækra tróna virðulegir greftrunarhaugar á miðju svæð- inu þar sem jörðin er ffjósöm og rík. í þeim gröfum vitna þeir hlutir sem voru jarðaðir með hinum látnu um ríkidæmi og samband við germanska þjóð- flokka sem bjuggu nær ríki Rómverja. Þessir tveir silfúrbikarar og bronskannan eru hluti af borðbún- aði sem fannst í gröf í Danmörku. Á gripunum voru nafn, heimil- isfang og staða Rómverjans sem gaf þá grafin. Hann hét Silius og var umboðsmaður keisarans fyrir stóru svæði í Þýskalandi. Ekki er vitað hver viðtakandinn var, en augljóst er að hann hefúr verið háttsettur. Út frá leifúm af vefnaði sem fúndist hafa í gröfum hefúr verið ályktað hvemig konurnar á þessum tíma klæddust. Kjóllinn er úr fint ofinni ull og honum var haldið saman með þremur spennum þar sem ekki var búið að finna upp töluna. Róstursamir tímar Það er ljóst af fornleifafúnd- um í Norður-Þýskalandi og Dan- mörku að tíminn í kringum árið 1 var róstursamur í meira lagi. Þar er um mikla vopnafundi að ræða og annan útbúnað fyrir þúsundir stríðsmanna. Vopnin Eins og alltaf þegar sýna á veldi koma vopn við sögu — bæði beint og sem tákn. Þannig var málið líka farið í Hunn og ef litið er á dæmigerða gröf stríðs- manns má finna eftirfarandi: Eins og stöðu mannsins hæfði var hann jarðaður óbrenndur. Ásamt jarðneskum leifum mannsins má finna vopn og ann- an útbúnað af bestu gerð. Sverð, spjót og skjöldur eru af sömu gerð og þau sem germanskir stríðsherrar á meginlandinu notuðu. Ef stríðsmaðurinn hefúr verið mjög háttsettur eru sporar (gjarnan silfúrskreyttir) í gröf- inni. en aðeins þeir æðstu voru riddarar. Aðrar heimildir, m.a. Caesar, segja frá því að varla nema einn stríðsmaður af hundrað hafi verið á hesti. Á milli þessara tveggja hópa, hinna allslausu sem voru brenndir og grafnir í litla holu, og höfðingjanna, var svo stétt hinna sem máttu bera vopn. Yfirleitt hafa vopn þeirra verið jörðuð með þeim og af þeim má sjá að menn voru misjafnlega vel búnir, líklega því betur eftir því sem þeir stóðu ofar í mann- virðingarstiganum. Þó að stríðs- maður hafi verið vel búinn vopnum nálgaðist hann ekki riddara að tign. Hálsmenið sem Anders Hagen fann er af þeirri gerð sem var algeng meðal efnuðustu ger- mönsku kvennanna, bæði á Norðurlöndunum og á megin- landinu. Menið er unnið af mikilli fæmi og gullþráðurinn er einungis 0,2 millimetra þykkur. hafa verið notuð í blóðugum á- tökum og síðan verið fórnað til stríðsguðsins. Vopnafúndirnir eru menjar um átök á milli ætt- flokka en einnig um óvini ffá fjarlægari slóðum. Trúlegt er að um sé að ræða stríðsflokka frá Svíþjóð og Noregi en samskon- ar búnaður hefur fundist í gröf- um þar. Þessir stríðsmenn hafa sótt suður til Danmerkur en mætt dauða sínum þar í átökum við innfædda. Átök voru einnig á milli íbú- anna á þessu svæði og Róm- verja. Vissulega voru samskiptin við þá að mestu leyti friðsamleg, verslun og þess háttar, en Norðurlöndin voru mikilvægur markaður fyrir rómverskan varning. Rómverjum var ekki nóg að eiga viðskipti við íbúana í norðri, heldur stefndu þeir á landvinninga á þessu svæði. Þar mættu þeir aftur á móti mun meiri mótspyrnu en þeir höfðu vænst. Til dæmis útrýmdu norrænir íbúar þremur vel þjálf- uðum herfylkjum Rómverja í Teutoborgarskóginum árið 9 eftir Krists burð. Foringi heima- manna hét Armeníus og undir hans stjórn voru u.þ.b. 15.000 hermenn Rómverja felldir. Eftir bardagann sendi hann svo Ágústusi keisara höfuð hins fallna foringja Rómverja, Varus- ar. Þar með var framsókn Róm- verja norður á bóginn stöðvuð á harkalegan hátt. Höfðinglegar gjafir Rómverski keisarinn ákvað þá að venda kvæði sínu í kross og í staðinn fýrir að senda fleiri stríðsleiðangra norður á bóginn tók hann upp diplómatískt sam- band við íbúana á Norðurlönd- um og keypti ffið þeirra með gjöfúm. Sannanir um þetta hafa fúndist í gröfúm háttsettra for- ingja þar sem auðséð er að grip- ir sem þeir hafa haft með sér í gröfina eru höfðinglegar gjafir frá rómverska keisaranum. Það að Rómverjarnir skyldu einungis nokkrum árum eftir að her þeirra hafði beðið sáran ósigur fyrir íbúum norðursins taka upp friðsamleg samskipti við þá sýnir tvímælalaust ffam á að þeir hafa borið virðingu fyrir hermönnum „barbaranna" eins og þeir kölluðu þá. Þá má einnig gera ráð fyrir því að Rómverj- arnir hafi viljað halda markaðin- um í norðri opnum fyrir varning sinn. Niðurstaðan hlýtur því að vera sú að á Norðurlöndum hafi verið blómlegt líf með mikilli verslun og miklum hernaðar- styrk í kringum árið 1. 22 VIKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.