Vikan


Vikan - 21.01.1988, Page 37

Vikan - 21.01.1988, Page 37
Svör: 1. RÉTT. i fitu er tvisvar sinnum meira magn af hitaeiningum en eru í próteini og kolvetni. 2. RANGT. Þessir náttúrlegu sætugjafar eru jafn hitaeiningaríkir og sykur. 3. RANGT. Það er ekki hægt að grennast með því gera æflngar á ákveðnum líkams- hlutum. 4. RÉTT. Fita er mæld eftir því hversu hlut- fallslega mikið er af henni á líkamanum. Fyrir konur er hæfilegt að magnið sé um 20-22%, en 15% hjá körlum. 5. RANGT. Þú þarfhast fjölbreyttrar fæðu þar sem heildarhiteininganotkunin yfir dag- inn inniheldur um 60-65% kolvetni, 20- 25% fitu og aðeins 10-15% prótein. 6. RANGT. Þú þyngist aldrei meira en um hálft kíló af því að borða hálft kíló af ein- hverju. 7. RANGT. Til að halda sér í formi með því að stunda eróbikk þá nægir að gera æfingar 15 mínútur á dag, þrisvar í viku. 8. RÉTT. Erfiðar æfingar gera það að verk- um að gengið er á fituforða líkamans og vöðvarnir styrkjast — verða þyngri og þétt- ari og þú grennist án þess að vigtin breytist. 9. RANGT. Báðar þessar íþróttaæfingar gera það að verkum að líkaminn notar um 900—1000 hitaeiningar á klukkustund. 10. RÉTT. Flestar konur fitna á þessum stað líkamans fyrst. Síðan á mjöðmum, maga og efri hluta líkamans. Þegar þær grennast ger- ist það vanalega í öfugri röð, þannig að fitan á lærunum hverfur seinast. 11. RÉTT. 12. RÉTT OG RANGT. Þetta er besta leið- in til að móta líkamann en þessar æfingar brenna aðeins um 300—400 hitaeiningum. 13. RÉTT. 14. RÉTT fyrir konurnar, en til þess að megrunin beri virkilegan árangur ættu karl- menn ekki að neyta meira en 1500 hitaein- inga. 15. RÉTT (hafa ýmsar skoðanakannanir sýnt.) Rétt svör: 10-15: Frábært, haltu áfram á sömu braut. 8-10: Mjög gott. 5-9: Sæmilegt, þú ert að reyna. Farðu í líl^ amsræktartíma eða í Línuna. 4 eða færri: Lélegt. Nú þarf að kaupa sér kort sem sýnir hitaeiningamagn fæðunnar og fara í stranga líkamsrækt. PIHIIHI |I||HH tHlbili Gmgié Hi að haUaykkwí hmi Var það ekki I dag sem þú ætlaðir að byrja á gönguæfingaprógramminu þínu? Það er ekki of seint að byrja; það er aldrei of seint að fara að stunda lík- amsrækt. Eldra fólk sem er í góðu formi, hreyfir sig álíka mikið og þeir sem eru 20-30 árum yngri og sitja mikið. Það þýðir að kona um sjötugt í góðu líkamlegu ásigkomulagi getur gengið jafhlangt eða lengra en 45 ára gömul kona sem vinnur á skrifstofu og hreyfir sig lítið. Ef það er í dag sem þú ætlar að byrja á gönguferðum til líkamsþjálfunar þá eru hér nokkur heilræði: Settu þér takmark, skráðu hjá þér hvernig gengur og lofaðu sjálfum/sjálfri þér verð- launum að viku lokinni. (Og efhdu loforð- ið!). Fyrsta skrefið er að útbúa tveggja vikna áætlun. Efst gæti staðið: Ég ætla að ganga í fimm mínútur á hverjum degi þessa viku. Ef þú ert við góða heilsu og þér finnst fimm mínútur of lítið hafðu þær þá tíu. Næst skaltu skrifa: í verðlaun fyrir fæ ég... Veldu þér eitthvað sem þig langar í, en ekki mat eða að fara út að borða. Verðlaunin ættu að vera eitthvað alveg sérstakt: Kaupa eitthvað - nýjan fatnað, plötu eða fara og láta laga á þér hárið. Eða fara á einhvern skemmtilegan stað - stutt ferðalag, á fótboltaleik, í sund eða í heim- sókn til einhvers sem þú hefur ekki séð lengi. í hvert sinn sem þú ferð í gönguferð merktu þá inn á áætlunina þann tíma sem þú varst í gönguferðinni. Vertu ekki lengur í byrjun en þú ætlaðir þér, þá eru meiri lík- ur á að þú haldir áætlunina. Það er mjög algengt hjá byrjendum að byrja með mikl- um látum og yfirkeyra sig á æfingum strax í byrjun þannig að úr dregur eftir því sem líð- ur á vikuna og að lokum leggjast gönguferð- irnar. af. Gönguferðir geta verið erfiðar fyrir gam- alt fólk á veturna þegar allra veðra er von og hálka er úti, en þá er hægt að ganga inni. Gangið um herbergið, eftir göngunum, upp og niður stigana og lífleg tónlist gerir gönguferðina skemmtilegri. Verðlaunin eiga að vera eftirsóknarverð Gangtu hægt fýrstu tvær mínúturnar, til að hita upp, auktu síðan hraðann en hægðu á þér þegar líður að lokum ferðarinnar. Einnig geturðu gert teygjuæfingar fýrir og eftir gönguferðina, til að hita upp fyrir og slaka á. Gott er að hita upp inni þegar vöðv- arnir eru afslappaðir, áður en lagt er af stað í gönguferð t köldu veðri. í vikulok færðu verðlaunin, jafnvel þó þér hafi ekki tekist að halda tímaáætlun þá fáerðu verðlaun fyrir að hafa haldið þig við áætlunina. Settu þér að ganga að minnsta kosti 20 mínútur á dag, fimm til sex sinnum í viku. Eftir hálft ár eða ár með þessu áffamhaldi ertu án efa reiðubúin(n) að auka tímann og fjarlægðina. Nú er góður tími til að byrja á stuttum gönguferðum og vera kominn í gott form í sumar til að fara í langar, góðar gönguferðir í miðnætursólinni! VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.