Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 34
V/EITIMGAHU5
Matscdill
Kalkúnakæfa
með mangó og títuberjasósu
Saffranbætt lcrældingasúpa
með tígulegu grænmeti
Hcitt spínatsalat
með reyktum silungi
Heilsteikt lambafillet
með furuhnetum, furusveppum
og portvínssósu
Súkkulaðimintu - og möndluís
á Grand Marnier-sósu
Úlfar hefur mestan áhuga
á paté gerð
Úlfar lærði á Hótel Esju og útskrifaðist
árið 1987. Síðan var hann eitt ár á Holiday
Inn og byrjaði þar um leið og hótelið var
opnað. Hann hefur auðvitað farið til út-
landa, eins og starfsbræður hans. Leið hans
lá til Danmerkur þar sem hann vann á
Bregnekrog í Danmörku í 3 '/2 mánuð.
Einnig gerði hann stuttan stans, eða 1 '/2
mánuð, í eldhúsinu á Norrænu, en síðasta
sumar eldaði hann fyrir landann og aðra
sem leið sína lögðu á Hótel Geysi, en núna
er hann semsagt á Vetrarbrautinni - alla
vega ffam á haustið. Úlfari hefur nefnilega
verið boðið að koma og vinna á General’s
Grants veitingahúsinu í Vancouver, en það
veitingahús er í húsinu sem sá frægi hers-
höfðingi Grant átti heima í áður en hann
fluttist í Hvíta húsið. Veitingstaðurinn í
eigu íslendin gsins Auðuns Einarssonar, en
starfið fékk Úlfar í gegnum starfsbróður
sinn Jóhann Jacobsson sem lengi starfaði í
Santa Barbara í Kaliforníu, en eins og les-
endum er kunnugt þá er Jóhann einnig fé-
lagi í Framanda klúbbnum. Matarkortin
sem eru í blaðinu að þess" sinni sá Úlfar
einnig um, þannig að segja má að þessi
Vik-d matreirírí af IJlfarí.
Marsalasósu, best er svo að reyna að skilja
eftir dálítið pláss fyrir eftirrétt því þeir eru
þess virði. Kokkurinn kemur vanalega
fram í sal til að athuga hvernig fólki hafi
líkað matur hans og gefst þá tækifæri til að
þakka fyrir sig, eða láta vita ef eitthvað hafi
mátt betur fara - sem við teljum þó að lítil
hætta sé á. Borðstofan tekur ekki nema 36-
40 manns í sæti, enda þess gætt að allir
hafi olnbogarými bæði þar og í stóra
salnum. Einnig er sjaldnast tvíbókað á
borðin í matsalnum því ætlast er til að
gestir geta verið við borðin sín eins lengi
og þeir óska; tekið sér langan tíma til að
njóta matarins og notið sín í rólegheitum á
eftir.
Auðvelt að fá sér snúning
Lúdó og Stefán eru í salnum við hliðina
og þegar líða tekur á kvöldið og flestir
búnir að borða, þá er rennihurð sem er á
milli borðstofu og stóra salar opnuð, þann-
ig að matargestir geta nú bæði séð hljóm-
listarmennina og heyrt, auk þess sem nú
er stutt yfir á dansgólfið. Matargestir halda
auðvitað borðum sínum þó þeir bregði sér
í snúning, en einnig er hægt að færa sig
fram í notalega setustofuna. Veitingastjóri
í Vetrarbrautinni er Páll Sigurðsson og
með honum starfar Vignir Guðmundsson
þjónn, auk a nnars aðstoðarfólks. í eldhús-
inu ræður ríkjum Úlfar Finnbjörnsson
matreiðslumaður og með honum starfar
Rúnar Kristinsson matsveinn. Ein af ástæð-
unum fyrir því að okkur er sérlega ljúft að
segja frá þessum veitingastað er sú að þar
starfar einn af kokkun um í Framandi
klúbbnum, sem sér um matarkortin í Vik-
una. Hann heitir Úlfar Finnbjörnsson og er
nýliði í klúbbnum.
Ólafur Finnbjömsson matreiðslumaður sér um matseldina fyrir gesti Vetrarbrautar-
innar ásamt Rúnari Kristinssyni matsveini.
34 VIKAN 9.TBL.1989