Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 40
Hvað er langt síðan
þú hefur gefið þér
tíma til að gefa
sjálffi þér góða
handsnyrtingu? Líklega allt of
langt síðan. Sagt er að aldurinn
sjáist fyrst á höndunum og það
vilja áreiðanlega faestar konur
að gerist, enda eru mjúkar og
vel snyrtar hendur prýði
hverrar konu.
Brynhildur Þorsteinsdóttir
snyrtiffæðingur gefur lesend-
um Vikunnar góð ráð varðandi
handsnyrtingu í þessu blaði og
því næsta. Brynhildur sér um
kynningu á REVLON snyrti-
vörum fyrir fyrir íslensk-
ameríska verslunarfélaginu og
leiðbeinir um notkun þeirra
og í handsnyrtiþættinum hér
notar hún REVLON hand-
snyrtivörur.
Handsnyrting einu
sinni í viku
Gefa þarf sér góðan tíma og
koma sér vel fyrir þar sem
hægt er að vera í ffiði. Allt sem
nota á er tekið til og haft við
höndina. Handsnyrtivatn er
sett í skál, en það er volgt vatn
sem í er örlítið af mildu sjamp-
ói og gott er að setja einnig ör-
lítið af næringu þar með. Einn-
ig þarf eftirfarandi að vera til
staðar. Naglalakkseyðir, nagla-
þjöi, naglabandakrem, hand-
áburður, nagiabandaeyðir,
nagiabandapinni, undirlakk,
naglalakk, yfíriakk, handkiæði
eða bréíþurrkur og þá er hægt
að hefja handsnyrtinguna.
Gamalt naglalakk
fjarlægt
Byrja þarf á því að fjarlægja allt
gamalt lakk og það er gert með
naglalakkseyði. Naglalakkseyð-
irinn ffá Revlon er án acetons,
sem er afar mikilvægt því acet-
on þurrkar neglurnar og við
það klofna þær.
Neglurnar þjalaðar
Þá eru neglumar þjalaðar ffam
í ávalan boga, annað hvort
með pappaþjöl eða demants-
þjöl. Brynhildur segir að sér
finnist betra að nota demants-
þjöl á fíngerðar og þunnar
neglur, en pappaþjöl á þær
grófari.
Krem á naglaböndin
Naglabandakrem er borið á
naglaböndin og því nuddað
aðeins inn í böndin. Nagla-
bandakremið nærir böndin og
kemur í veg fyrir að þau
harðni. Best er að nota það á
hverjum degi og það er hægt
að nota jafnt á lakkaðar sem ó-
lakkaðar neglur. Handáburður
er að lokum borinn á hendum-
ar.
Fingurgómarnir
lagðir í bleyti
Næst er fingurgómunum difið
Áður en handsnyrting hefst er allt tekið til sem nota á.
í handsnyrtivatnið, þar sem
þeir eru í bleyti í 3-5 mínútur.
Hendurnar síðan þerraðar.
Naglaböndin snyrt
Á naglaböndin er borinn
naglabandaeyðir. Böndunum
ýtt upp með naglabandapinna.
Allt dautt skinn fjarlægt og má
segja að vinnan við naglabönd-
in sé í raun sú mesta varðandi
handsnyrtinguna. Að lokum er
eyðirinn skolaður af í vatninu.
Nöglinni „lokað“
Þar sem nöglin er í þrem lög-
um og á milli laga er bæði fita
og raki, þá er mjög nauðsyn-
legt að „Ioka“ nöglinni. Það er
gert með því að fyrst er farið
með þjöl undir nöglina og slíp-
að aðeins uppá við, einu sinni
til tvisvar sinnum, og síðan far-
ið aðeins yfir ofan ffá.
Lökkun
a) Undirlakk
Fyrst er sett ein umferð af undir-
lakki (base coat) á hverja nögl,
en undirlakk er mjög nauðsyn-
legt því það ver nöglina fyrir
litnum í lakkinu auk þess sem
það veitir henni næringu.
Brynhildur segir að best sé að
byrja alltaf á nöglinni á litla
fíngri vinstri handar og enda á
litla fingri hægri handar, því þá
er fýrsta nögl vanalega orðin
þurr þegar byrjað er á næstu
umferð.
b) Naglaherðir
Eins og nafhið gefur til kynna
þá styrkir naglaherðir neglum-
ar og er því betra að nota hann
á linar og ónýtar neglur í stað
undirlakks. Einnig er hægt að
nota herðinn einan sér, t.d. ef
hvíla neglurnar á naglalakki,
því óvarðar em neglumar yfir-
leitt of viðkvæmar og vilja þá
brotna. Herðirinn er til glær
eða hvítur og em settar 2-3
umferðir á hverja nögl.
b) Litur og yfirlakk
Tvær umferðir em lakkaðar
með litnum og að lokum er
sett 1 umferð af yfirlakki, en
það herðir naglalakkið og gef-
ur því gljáa. Brynhildur segir
að við vanalegar aðstæður
haldist lökkun með Revlon
Iakki í viku, enda sé þá kominn
tími til að huga að næstu viku-
legu handsnyrtingu.
En til að vernda hendurnar
sjálfar þarf að vera iðinn við að
bera á þær góðan handáburð
og vernda þær fyrir kulda með
því að nota hanska og gúmmí-
hanska þegar unnið er með
kemísk efhi.
38 VIKAN 9. TBL 1989