Vikan


Vikan - 08.02.1990, Qupperneq 6

Vikan - 08.02.1990, Qupperneq 6
LOTTÓ Gunnlaugur Helgason, Guðmunda Jónsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Þorgeir Astvaldsson. Þau sjá um útdráttinn á hverju laugardagskvöldi og eru stundum spurð, bæði í gríni og alvöru, hvort það sé einhver möguleiki að velja réttu tölumar! Síðan lottóið tók til starfa hér á landi fyrir þremur árum hafa 136 vinningshafar fengið milljón eða meira. Á síðasta ári hlutu 256.465 manns vinning í lottóinu. Það er nánast vinningur á hvert mannsharn í landinu. „í léttum leik með lottóliði“ Vikan viðstödd útdrdtt í beinni útsendingu Við iifum á lottó- og skaf- miðatímum og það væri synd að segja að við ís- lendingar hefðum ekki tekið þessum nýjungum í þjóðlífinu opnum örmum. Sennilega höfum við enn eignast heimsmet miðað við fólksfjölda með kröft- ugri þátttöku í þessum spilum. Kannski fer það líka saman að þegar harðnar á dalnum efna- hagslega freista menn frekar gæfunnar í hvers kyns peningaspili, ekki síst þar sem tilkostnaður er lítill eins og í lottóinu. „Það er aldrei að vita nema maður detti í lukku- pottinn," hugsa margir. Hver hefur ekki einhvern tíma leitt hugann að því hvernig það væri að verða skyndilega ríkur, eiga nóg af peningum. Fyrstu hug- dettum af þessu tagi skaut upp í kollinum á okkur þegar við fyrst flettum Andrésblaði og sáum Jóa- kim frænda baða sig í peningum. Síðan kynnt- umst við „Frúnni í Hamborg“ í barnaafmæl- um forðum daga. Fyrirtækið íslensk getspá með aðsetur í Laugardalnum hefur rekið lottóið í rúm þrjú ár. Vegna geysigóðra undir- tekta og þátttöku þegar í upp- hafi hefur uppbygging bein- línukerfis til sölustaða víðs vegar um land verið afar hröð. Hægt er að kaupa lottómiða á um 180 stöðum og er þetta kerfi eins fullkomið og það gerist best annars staðar í ver- öldinni. Útdrátturinn í sjón- varpinu á hverju laugardags- kvöldi er sú mynd sem okkur birtist af lottóinu — þegar prúðbúnir stjórnendur fara æfðum höndum um lottóvél- ina og draga þessar réttu tölur sem færa einhverjum heppn- Ó VIKAN 3. TBL. 1990

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.