Vikan


Vikan - 08.02.1990, Side 17

Vikan - 08.02.1990, Side 17
VIÐTALIÐ „Kirkjan hefur aldrei haft fyrir því að kynna sér fólk eins og mig. Ég hef aidrei fengið fólk úr prestastétt eða úr sértrúar- söfhuðum í heimsókn til mín. Það er ein- ungis sagt að þetta séu rangir hlutir. Kirkj- an auðveldar ekki dulrænu fólki að þrífast. Hún er enn að fordæma og það er ná- kvæmlega ekkert kristilegt við það. Mér finnst skrítið hvað kristnir menn eru fljótir að dæma því Kristur lagði mikla áherslu á að dæma ekki. Aflt sem er ekki nákvæm- lega á þeim nótum sem við kjósum er dæmt rangt. Þetta tefur okkur því sá sem dæmir stendur í stað. Sá sem stendur í stað er ekki á framfarabraut. Þarna erum við því að vinna á móti framförum í okkur sjálfum. Ég hef lesið tvo kafla í Biblíunni í mörg ár til að auðvelda mér að skilja sjálfa mig og annað fólk. Þetta eru versið um kær- leikann í fyrra Korintubréfinu og svo sag- an um týnda sauðinn í Mattheusarguð- spjalli. Sumu í kærleiksversinu get ég breytt eftir en öðru ekki. Það er einfald- lega af því að maður er ekki fullkominn og hefur sínar takmarkanir. Svo finnst mér heillandi að okkur skuli vera bent á að leggja áhersluna á týnda sauðinn en ekki þessa 99. Við eigum að finna okkar týnda sauð og koma honum í hóp hinna, jafnvel án þess að hann viti af því. Ég álít að það sé mikið ævistarf ef manneskju tekst að finna einn slíkan sauð og koma honum inn í birtuna. Þarna tel ég viðleitni til góðra hluta vera þyngsta á vogarskálunum. Þó ég geti ekki alltaf lifað samkvæmt því sem lesa má um þarna hef ég væntanlega einhvern tíma og tækiferi til að halda áffam að beina hugsun minni inn á réttar brautir. Ég held að það sé líka ágætt fyrir fólk að hafa í huga að gera ekki of miklar andlegar kröfur til sín heldur gera sér grein fyrir því að það er erfiðara að vera góður því það eru svo margar fyrirstöður í okkur sjálfiim; það er svo auðvelt að gera rangt. Okkar eigin innri uppbyggingu má líkja við byggingu húss; það þarf svo mikið út- hald og andlegan stöðugleika, svo mikla fórnfýsi, vilja, heflun og ögun til að byggja upp eitthvað gott í sjálfum sér, þvert á það sem haldið er að okkur. Það er auðveldara að hlaupa með vindinn í bakið heldur en á móti sér.“ Það er farið að rökkva í stofunni og páfa- gaukarnir eru komnir í ró en það er eins og Jónu Rúnu hafi vaxið ásmegin og hún heldur ótrauð áffam: „Við horfum á verk Guðs og þá sérstak- lega þegar við sjáum andlega eða líkam- lega fötluð böm og við hugsum með okkur: Hvaða réttlæti er í þessu? En vandi okkar gagnvart Guði er sá að við erum allt- af að ákveða hvernig hann á að vinna og í hvert sinn sem við lendum í vanda segjum við: Nei, þetta er óréttlátt! Um leið erum við að vanvirða almættið því Guð er ó- skeikull. Og ef ekki væri fyrir þetta fatlaða fólk myndum við ekki þroskast eðlilega. í mannlífinu þarf að vera bæði sterkt og veiklundað fólk til þess að við getum þroskast í gegnum hvert annað og beitt vilja okkar réttlátlega. Hugfatlað fólk mýkir okkur og mildar og það göfgar okkur. Það á svo mikinn tær- leika og hreinleika sálarlega því það getur ekki beitt sömu vitsmunalegu brögðum og við. Þetta fólk á allt undir velvilja okkar því það er ekki fert um að skipuleggja líf sitt sjálft en á móti á það mjög margt mannlegt til sem við hin erum horfin ffá af því okkur finnst það svo lítils virði miðað við persónulegan frama og álit annarra á okkur.“ Ævintýraheimur „í flestum tilvikum er útgeislunin frá hugfatlaðri manneskju eins og að detta inn í ævintýri, svo fagurt er orkusviðið. Ef ég ætti til dæmis að velja mér fólk til að vera nálægt yrði þetta fólk fyrir valinu. Þó hef ég ekki styrkinn til að leiðbeina því en það gæti hjálpað mér. Ég hef gert mér erindi til Við eigum ekkert nema það sem við höfum eignast innra með okkur. Það sem bíður við skilin á milli heimanna er það sem við höfum sjálf unnið fyrir. hugfatlaðs fólks - þegar ég stóð ffammi fyrir aðstæðum sem voru þannig að mér fannst allar aðrar leiðir þrjóta — bara til að snerta þá göfgi sem í því býr af því ég hef þörf fyrir að finna mótvægi ef ég hef verið í miklu argi og þvargi. Hinn póllinn er hroki og hann er orðinn allt of fyrirferðarmikið fýrirbæri í mannlíf- inu. Menntun á ekki að gera fólk hrokafullt heldur milda það. Menntun á að gera fólk færara andlega til að koma rétt að náung- anum. Mér finnst sjást í ýmsum stéttum þjóðfélagsins ofimat á sér og vanmat á venjulegu fólki. Ef mikil áhersla er lögð á ytri hluti er fólk metið eftir því sem hinn maðurinn sér. Hroki er óþægilegur og sá sem verður fyrir honum getur fyllst ó- öryggi með sig eða fundið fyrir andúð og hefhigirni og orðið verri maður af.“ Inn að sálinni „Við eigum ekki að meta fólk eftir hús- um þess, stöðu, kyni eða ytri aðstöðu. Metum fólk eftir þeim kynnum sem við höfum sjálf fengið tækifæri til að eiga af viðkomandi og reynum þá að horfa framhjá umbúðunum, inn að sálinni. Manneskjan, sem á þessa sál, verður þá líka að bera gæfu til að auðvelda okkur verkið með því að vera ekki að beita fyrir sig kulda, hroka eða mannfyrirlitningu. Það kemur að því í lífi okkar allra að við fyllumst tómi og lífsleiða, finnst við ekki hafa unnið til sérlega mikils og að eitthvað vanti inn í líf okkar. Þá fýrst finnum við að við þurfum að leggja rækt við sálræna, til- finningalega og andlega hluti. Þegar við svo komumst að því að ýmislegt vantar í okkur sjálf förum við að leita alls konar leiða. Ég trúi að fræðileg þekking sé mjög mikilvæg en ég trúi því einnig að reynslu- þekking einstaklinga, sem hafa lifað sjálfa sig af við ákveðnar aðstæður og komist í gegnum samansafh rauna og mótlætis, sé ómetanleg. Ef þetta sama fólk er í ofanálag betra fólk sem afleiðing af sinni reynslu þá á að virkja það til að styðja leitandi sálir sem þó kæra sig ekkert um að láta gera sig að einhverjum vandamálapakka. Það er afskaplega eðlilegt að finna þetta lágnætti og lífsfirringu í sér en það á ekki að kynda undir þá hugsun sem grípur okk- ur í þessu ástandi - að við séum eitthvað gölluð. Þarna er nefhilega ábending um að komið sé að augnabliki í lífi okkar þar sem við þurfum ákveðinn stuðning en við eig- um sjálf að bera ábyrgðina. Þarna höfúm við val og eigum að hafa val. Við finnum firringuna og finnum að við viljum hana ekki en af því að við höfúm ekki gefið gaum þessum einföldu Ieiðum kynslóða, sem áttu ekki neitt en áttu þó virðinguna fyrir Guði og náttúrunni, þyrftum við jafn- vel að fara aðeins afturábak til varanleik- ans — til minni ytri krafna og meiri tíma fyrir sinn innri mann. Ég hvet því fólk til að byggja sitt innra hús með það fyrir augum að á því muni ýmislegt dynja. Sá sem ekki byggir á rétt- um grunni getur ekki tekið þeirri andlegu veðurhæð sem lífið hefúr upp á að bjóða. Með sjálfsuppeldi getum við losað okkur við óöryggi, afbrýði og hegðunarörðug- leika í mannlegum samskiptum. Við eigum að hafa metnað gagnvart þessu innra húsi sem við erum að byggja og til þess að eignast verulega fallegt hús þarf ekki að sækja um nein lán, eiga neitt undir ríkis- stjórninni né undir því kerfi sem þrífst hið ytra, aðeins vilja til að laga okkur til. f framhaldi af því þurfum við að eiga hugrekki til að fýlgja þessum vilja eftir og bera svo gæfu til að vanda til minnstu smáatriða. Við eigum ekkert nema það sem við höfúm eignast innra með okkur. Ég vil líka að fólk geri sér grein fyrir því að það sem bíður við skilin á milli heimanna er það sem við höfúm sjálf unnið fyrir. Ein- staklingurinn ber ábyrgð á sjálfúm sér og sú ábyrgð felst fyrst og fremst í því að gera engum illt og ganga ekki á annarra manna rétt.“ Það er orðið aldimmt úti. Borgundar- hólmsklukkan er að slá í stofunni sem ber vott um varanleika án íburðar. Við kveðj- um Jónu Rúnu í þeirri von að sem flestir beri gæfú til að hlýða á hennar hlýlegu heimspeki um það sem við öll vitum innst inni en reynist þó svo óhemju erfitt að breyta samkvæmt. 3.TBL1990 VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.