Vikan


Vikan - 08.02.1990, Side 18

Vikan - 08.02.1990, Side 18
Sveinn Guðjónsson, blaðamað- ur á Morgunblaðinu. Sveinn varð þess heiðurs aðnjótandi að taka á móti sínu gamla átrúnaðargoði í baeði skiptin og kynntist Domino lítillega á meðan hann dvaldi hér á landi. Kubbslegar hendur hans hlaðnar skrautlegum hringum Þeir eru ekki margir sem spilað hafa fjórhent á píanó eða fengið einkakennslu í píanóleik hjá Fats Domino. Hér er Domino að kenna Sveini lagið „Song for Rosemary" í einkasamkvaemi þar sem sá gamii hélt uppi fjörinu með spili og söng. SVEINN GUÐJÓNSSON: „Domino kokkoði jambolæjo- réftisína á hótelherberginu" Hvernig er þetta fræga fólk í viðmóti? Þessar persónur sem við kynnumst gegnum fjölmiðlana með margvíslegum hætti svo árum skiptir. Við sjáum fræga fólkið í kvikmyndum, á myndum, í blöðum, heyrum það tala eða syngja á hljómplötum, heyrum af þvj í fregnum eða fréttum. Til verður í huga okkar ímynd þessa fólks og hún þarf alls ekki alltaf að gefa rétta mynd af persónunni. Vikan ræðir við nokkra íslendinga sem vegna starfs sins hafa hittfyrir þetta svonefnda FRÆGA FÓLK. - Hvernig fundum þeirra bar saman og hvað situr eftir i huganum eftir stuttleg kynni. Med frægu fólki í þessari Viku og þeim næstu. TEXTI: ÞORGEIR ÁSTVALDSSON Fats Domino hefur í tví- gang komið hingað til lands til hljómleika- halds, í fyrra skiptið 1986, i seinna skiptið 1987. Með hon- um var hljómsveit hans, skip- uð þrautreyndum spilurum sem Bartolomew stjórnaði en sá maður uppgötvaði Domino fyrir 35 árum og fylgir honum enn. Hann hefur samið fjölda frægra rokklaga sem fjölmargir frægir söngvarar hafa sungið inn á plötur gegnum tíðina. Domino á fjölmarga áhangend- ur hér á landi eins og aðsókn að hljómleikum hans bar með sér. Einn þeirra tryggustu er „Ég hafði skrifað allítarlega grein um kappann og einhvern veginn vildi það til að ég var í móttökunefhdinni. Ég hreifst af honum þegar á bamsaldri. Ætli ég hafi ekki verið tíu ára gamall þegar ég heyrði lögin hans fyrst og upp ffá því fór ég að fikta við píanóið. (Sveinn lék um árabil með þeirri lands- firægu sveit Roof Tops og síðar með Haukum.) Þessi sérstæði stíll Dominos hefur alltaf heill- að mig. Spilamennskan er ein- föld í eyrunum á manni en erf- ið þar sem laglínan er gjarnan leikin með vinstri hendi og hægri höndin látin styðja við með ákveðnum hætti. Þessu kynntist ég ffá fyrstu hendi þegar ég fékk hann til að setj- ast við píanóið með mér i einkasamkvæmi og kenna mér lagið Song for Rosemary sem hann samdi á sínum tíma til konu sinnar. Ég sá þá að ég á margt ólært á hljómborðið svo ég geti talist útskrifaður í Domino-stílnum. Kubbslegar hendur hans, hlaðnar skraut- legum hringum, fóru létt um nóturnar á píanóinu. Að sjálf- sögðu gleymi ég þeirri stund sennilega aldrei enda ekki á hverjum degi tækifæri til að spila með manni eins og hon- um svona eina huggulega kvöldstund. Hann birtist mér sem hæglátur og góðlegur náungi í fyrra skiptið, þegar hann kom hingað, birtist hann mér sem hæglátur og góðlegur náungi, ekkert ýkja mann- blendinn — svona maður sem er búinn að reyna sitthvað á ffægðarbrautinni. Hann hafði ekki mikið samband við spila- félaga sína, lét þá eiga sig. Hann ferðaðist einn og sér og bjó einn í betri vistarverum Hótel Loftleiða. Hann er Frh. á bls. 20 MEÐ FRÆC5U FÓLKI \ 18 VIKAN 3. TBL. 1990

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.