Vikan - 08.02.1990, Page 22
5KILMAÐIR
Hörmuleg místök
68 - kynslóðarinnar
„68 kynslóðin gekk um með blóm I höndunum en hennar eigin blóm, börnin,
visnuðu og þögðu í kringum hana,“ segir Synnöve Söe, 25 ára gömul, í ný-
útkominni bók sinni um blómafólkið sem lagði áherslu á „frjálst“ uppeldi —
með alvarlegum afleiðingum. Hér í opnunni er sagt frá bók Söe og einnig
kenningum Mortens Nissen, sem er í hópi fremstu barnasálfræðinga.
ENDURUNNIÐ Á (SLENSKU:
BORGÞÓR S. KJÆRNESTED
Rithöfundar á aldrinum
25-30 ára stíga nú fram á
ritvöllinn. Þeir eiga það
sameiginlegt að vera af-
komendur 68-kynslóðar-
innar. Eitt af börnum
þessa „blómafólks“ er
Synnöve Söe, 25 ára, en
hún hefur nýlega gefið út
litla bók sem vegur þungt
í danskri þjóðfélagsum-
ræðu um þessar mundir.
Bókin heitir FARS - en
fortælling og er gefin út af
bókaútgáfunni Tiderne
skifter.
Bókin er óvægin ádeila á 68-
kynslóðina almennt. Hún er
kölluð „blinda og eigingjarna
kynslóðin sem sat og dásamaði
sjálfa sig, foreldrar sem upp-
hófu sjálfa sig á endalausum
hugsjónasamkundum, bjuggu í
kommúnum og kollektífum og
fundu til með öllum heimin-
um en gleymdu eigin börnum
í hassreyknum."
Ádeilan er hörð og beinist
ekki sérstaklega að þeim for-
eldrum sem slitu samvistum
eftir að hafa búið í kollektífúm
og kommúnum. Þetta sambýli
byggðist á hugmyndarugli um
„frelsi", þar sem enginn gaf en
allir tóku. Kynslóð stúdenta-
óeirðanna brást börnum sín-
um. Orð eins og umhyggja,
nærgætni eða tillitssemi átti
hún ekki til í orðaforða sínum.
Hugtakið hlýðni var enn á sín-
um stað, án þess að foreldrarn-
ir væru færir um að uppfylla
sínar skyldur á móti.
68-kynslóðin gekk um með
blóm í höndunum en hennar
eigin blóm, börnin, visnuðu og
þögðu í kringum hana. Synn-
22 VIKAN 3. TBL. 1990