Vikan


Vikan - 08.02.1990, Síða 26

Vikan - 08.02.1990, Síða 26
5MA5AC5A Franski rithöfundurinn Henri René Albert Guy de Maupassant ertalinn snjallasti smásagnahöfundur nítjándu aldar. Einfaldur stíll og góð uppbygging gera bestu sögur hans að fáguðum listaverkum enda þótt viðhorf höfundarins mótist jafnan af kaldhæðni og bölsýni. Á tæpum tólf árum gaf Maupassant út tíu smásagnasöfn. Þrettán bestu smásögur hans hafa verið gefnar út á ensku undir nafninu The Odd Ones og hefur sú bók notið mikilla vinsælda. Guy de Maupassant fæddist 5. ágúst 1850. Hann gerðist skrifstofumaður en gegndi einnig herþjónustu í franska hernum. Þegar hann hóf ritstörf tók hann franska rithöfundinn Gustave Flaubert sér mjög til fyrirmyndar enda var hann persónulega kunnugur honum. Maupassant fékkst mikið við skriftir milli tvítugs og þrítugs en var vandlátur og gagnrýninn á sjálfan sig og jafnan óánægður með árangurinn. Hann hafði skrifað lengi fyrir ruslakörfuna þegar hann áræddi loks að birta fyrstu sögu sína. Þrítugur að aldri gaf hann út fyrstu bók sína. Hún hlaut svo góðar undir- tektir að á sama árinu gaf hann út tvær bækur til viðbótar, Ijóðasafn og leikrit. Auk smásagnanna, sem frægastar eru, samdi hann einnig nokkrar skáldsögur. Árið 1890 varð hann að hætta að skrifa vegna heilsuleysis. í síðustu verkum hans hafði þess orðið vart að hann hefði naumast hemil á tilfinningum sínum. Tveimur árum síðar varð hann geðveikur. Hann lést á hæli 6. júlí 1893, aðeins 43 ára gamall. Dag nokkurn þegar rigndi... Eg var viti mínu fjær af ást til henn- ar og ég ætla að segja ykkur sögu okkar. Ég kynntist henni og lifði fyrir ástúð hennar og ástaratlot; lifði í örmum hennar og svalg hvert orð sem gekk fram af hennar munni. Ég var svo fanginn og heillaður af öllu sem henni viðkom að ég spurði ekki lengur hvort það væri dagur eða nótt, hvort ég væri lifandi eða dauður. Og svo dó hún. Hvernig gerðist það? Ég veit það ekki. Ég veit yfirleitt ekki neitt. En dag nokkurn var hún holdvot þegar hún kom heim því að það hafði rignt mikið. Næsta dag hóstaði hún. Hún hóstaði næst- um í heila viku og varð síðan að leggjast í rúmið. Hvað gerðist man ég ekki nú en læknar komu, skrifúðu lyfseðla og fóru. 26 VIKAN 3. TBL. 1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.