Vikan


Vikan - 08.02.1990, Side 27

Vikan - 08.02.1990, Side 27
eftir Hendur hennar voru heitar og ennið log- andi heitt og augun sorgmædd og tóm. Þegar ég talaði við hana svaraði hún mér en ég man ekki lengur um hvað við ræddum. Ég hef gleymt öllu, öllu, öllu. Hún dó og ég man eftir síðasta veikburða andardrætti hennar. Hjúkrunarkonan sagði: - Ó! Og ég skildi. Ég skildi. Ég veit ekki meira. Ekkert. Ég man eftir presti sem sagði: — Var hún ástmey yðar? , Mér fannst hann móðga mig. Fyrst hún var dáin hafði hann engan rétt til að segja svona nokkuð. Ég vísaði honum á dyr. Það kom annar mjög vingjarnlegur og blíður og ég táraðist þegar hann talaði um hana. Ég var spurður hvers ég óskaði í sam- bandi við jarðarförina en ég man ekki hvað ég sagði. Hins vegar man ég eftir kist- unni og hamarshöggunum þegar hún var negld aftur. Ó guð! Það komu nokkrir — vinir og ættingjar. Ég dró mig í hlé og lagði á flótta. Næsta dag fór ég mína leið. í gær kom ég aftur til Parísar og sá íbúð- ina mína. — íbúðina okkar, rúmið okkar, húsgögnin okkar, allt sem menn láta eftir sig þegar dauðinn hefur knúið dyra. Þá varð ég aftur gripinn slíkri skelflngu og vonleysi að ég var að því kominn að opna gluggann og fleygja mér út á götuna. Ég gat ekki lengur verið hér innan um þessa hluti. Ég tók hatt minn og ætlaði að fara mína leið. En þegar ég var rétt kominn að dyrunum rak ég augun í spegilinn hennar í forstofúnni. Hún hafði sjálf hengt hann þarna upp til þess að geta á hverjum degi skoðað sig í krók og kring — sérstaklega þegar hún fór eitthvað út. Þá þurfti hún að athuga vel hvort fötin færu vel og væru falleg, allt frá litlu skónum og upp í hattinn. Ég stóð fyrir ffaman þennan spegil sem svo oft hafði speglað hana, svo oft að hann hlaut að geyma mynd hennar. Mér fannst ég elska þennan spegil. Ég kom við hann. Hann var ískaldur. Ó, þessi minning! Þú skuggalegi spegill, brennandi spegill, hræðilegi spegill sem lætur mig líða slíkar kvalir! Hversu hólpinn er ekki sá maður hvers hjarta gleyrriir öllu sem í því var geymt; öllu sem þar hefur gerst; öllu sem þar hefúr speglast eða endurspeglast — hjarta sem getur gleymt ást sinni? Hugsunarlaust og gegn vilja mínum gekk ég út í kirkjugarðinn. Ég fann einfaida gröf hennar, hvítan marmarakross sem á voru letruð þessi orð: - Hún elskaði, var elskuð og dó. Þarna niðri liggur hún. Hvað það var hræðilegt! Ég lá hér og snökti með ennið við jörðina, lá lengi, lengi. Þá veitti ég því eftirtekt að farið var að skyggja og varð gripinn einkennilegri, brjálæðislegri ósk, ósk hins örvinglaða elskhuga. Mig langaði til að dveljast hér um nóttina og gráta við 5MÁ5AGA Guy de Maupassant gröf hennar. En áreiðanlega yrði tekið eftir mér og ég rekinn út samstundis. Hvernig átti ég að fara að þessu? Ég fékk góða hugmynd, stóð á fetur og fór að ganga um þennan bæ hinna dauðu. Ég gekk og gekk. Ég hugsaði um hversu lítill þessi bær væri í samanburði við hinn sem við bjuggum í. Og samt eru hinir dauðu miklu fleiri en þeir sem lifa. Við verðum að hafa há hús, breið stræti og mikið rými fyrir fjórar kyn- slóðir sem samtímis líta ljós dagsins, drekka vatnið úr lindunum, vínið úr þrúg- unum og eta ávexti jarðarinnar. Þegar ég var kominn í annan enda kirkjugarðsins uppgötvaði ég skyndilega Ég þekkti hana strax aftur, án þess að sjá framan í hana. Andlit hennar var hulið líkklœðum og á legsteininn hafði hún skrifað... að ég var kominn í elsta hluta garðsins, þar sem hinir dauðu og moldin voru þegar orðin eitt og hið sama; þar sem krossarnir voru þegar rotnaðir; þar sem aðrir yrðu kannski grafnir næsta dag. Hér var fallegt. Hér voru villtar rósir og stór og dimmur kýprusviður — þungbúinn en fallegur garð- ur sem fékk næringu sína frá líkömum mannanna. Ég var einn. Aleinn. Ég faldi mig undir þykku limi trjánna - huldist allur þykkum og skuggalegum greinum. Þegar aldimmt var orðið yfirgaf ég felu- stað minn og byrjaði að fera mig varfærn- islega ffam eftir, hægt og hljóðlega yfir þessa jörð þar sem hinir dauðu hvíldu. Ég gekk lengi án þess að fmna gröf hennar. Ég ráfaði áffam eins og blindingi, þreifaði á steinum, krossunum, járngrindunum, skrautmyndunum og visnum blómum kransanna. Ég las nöfnin með því að strjúka fingri yfir bókstafina. Ég gat ekki fúndið hana. Það var ekki tunglskin. Ég var hræddur, hræðilega hræddur, meðan ég gekk eftir þröngum malarvegunum milli grafanna. Grafir, aðeins grafir; til hægri, til vinstri, fyrir ffaman mig, fyrir aftan mig — alls stað- ar grafir. Ég settist á eina þeirra af því að ég gat ekki gengið lengur. Ég skalf í hnjá- liðunum. Ég heyrði hvernig hjartað barð- ist í brjósti mér. Og ég heyrði líka dálítið annað. Hvað var það? Undarlegt hljóð sem ég hafði aldrei heyrt áður. Var þetta hljóð innan í mér, í kolsvartri nóttinni eða niðri í hinni leyndardómsfullu jörð, þessari jörð sem var blönduð mannslíkömum? Skyndilega fannst mér marmarasteinn- inn, sem ég sat á, hreyfast. Hann hreyfðist — sem ég er lifandi, og það var eins og hann ætlaði að reisa sig á rönd. Ég tók snöggt viðbragð og stökk á gröfina við hliðina. Það var ekki um að villast. Steinn- inn, sem ég hafði setið á, var að reisa sig á rönd af sjálfsdáðum. Andartaki síðar kom hinn dauði í Ijós, beinagrind sem var bog- in í baki og hélt á legsteininum. Ég gat les- ið á honum: „Hér hvílir Jacques Olivant, lést sjötíu og eins árs. Hann elskaði fjölskyldu sína, var dagfarsprúður og heiðarlegur og dó í trú á lfelsara sinn.“ Hinn dauði las þetta líka. Að því búnu tók hann lítinn stein upp af malarveginum, lítinn, oddmjóan stein og byrjaði varfærn- islega að strika yfir bókstafina. Hann gerði þetta hægt og rólega og virti fyrir sér stað- inn með tómum augntóttunum. Síðan skrifaði hann með oddmjóum enda beina- kögguls, sem einu sinni hafði verið vísi- fingur hans, með sjálflýsandi stöfum, eins og þegar drengur skrifar með fosfór á vegg: „Hér hvílir Jacques Olivant sem lést sjötíu og eins árs. Hann flýtti fýrir dauða föður síns til þess að geta erft eignir hans. Hann skapraunaði konu sinni, píndi börn- in sín, sveik náunga sína, féfletti hvern ein- asta mann sem hann gat komið nálægt og dó glataður maður.“ Þegar hann hafði lokið við þetta stóð hann grafkyrr og virti fyrir sér verk sitt. Og þegar ég sneri mér við sá ég að allar grafir stóðu opnar. Allir hinir dauðu höfðu stigið upp úr þeim og allir höfðu strikað út þau orð sem eftirlifendur höfðu valið þeim og látið höggva á legsteina þeirra. í staðinn höfðu þeir letrað sannleikann. Og ég sá að allir höfðu skapraunað sínum nánustu, að þeir höfðu verið illa innrættir og óheiðar- legir, hræsnarar, rógberar, lygarar, skúrkar — að þeir höfðu stolið og svikið, að þeir höfðu gerst sekir um alls konar óheiðar- leika — þessir góðu feður, þessar tryggu eiginkonur, þessir elskulegu synir, þessar hreinlífu dætur, þessir heiðarlegu kaup- sýslumenn, allir þessir menn og konur, sem sagt var um að lægju óbætt hjá garði. Allir skrifuðu á legsteina sína sannleikann, sinn eilífa dóm - hinn skelfilega, heilaga sannleika sem hafði sofið vært í undirvit- undinni á meðan þeir lifðu. Mér datt í hug að einnig hún hlyti að hafa skrifað eitthvað á sinn legstein. Ég fann ekki lengur til minnstu hræðslu innan um opnar líkkistur, líkama og beinagrind- ur. Ég hraðaði mér í áttina að gröf hennar, sannfærður um að ég mundi finna hana án nokkurra erfiðleika. Ég þekkti hana strax aftur, án þess að sjá framan í hana. Andlit hennar var hulið flaksandi líkklæðum. Á marmarakrossinn, þar sem ég hafði áður lesið: „Hún elskaði, var elskuð og dó...“ — las ég nú: „Dag nokkurn, þegar rigndi, gekk hún út til að svíkja elskhuga sinn, varð innkulsa og dó.“ □ 3.TBL.1990 VIKAN 27

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.