Vikan


Vikan - 08.02.1990, Síða 31

Vikan - 08.02.1990, Síða 31
KYNLÍFIÐ Hvað varð um goff kynlíf og einhleypu stúlkuna? TEXTI: BRYNDÍS HÓLM Mun kynlífið lifa af þá náttúrulegu gagn- byltingu sem nú herjar á mannkynið? Hvert stefnir varðandi alnæmi? Hvað er orðið um alla karlmennina? Eru hin nýju lífsviðhorf æski- leg? Er lokaskeið ffjóseminnar runnið upp? Það fer víst ekki fram hjá neinum að tímarnir hafa verið að breytast. Þetta kemur í ljós á flestum sviðum þjóðfélags- ins, ekki síst á því sviði sem er hvað viðkvæmast, sviði kynlífs- ins. Núna er tiihugsunin um að sofa hjá tveimur á einum sólar- hring algjörlega út í hött fyrir flestar konur og karla. Nú er það sem gildir að vera „einnar konu maður“. Ábyrgðarfullum mæðrum fjölgar stöðugt og karimennirnir skoppa nú um syngjandi af gleði því þeir hafa skotið föstum rótum sem um- hyggjusamir eiginmenn og hamingjusamir feður. Er ein- hleypa stúlkan, sem einu sinni var ímynd hins seðjandi lífs- stíls og kynferðisiegrar full- nægju, horfin af sjónarsviðinu? Kynfífið er orðið hversdags- iegt og fátítt umfjöliunarefni. Að mestu leyti á það eflaust rætur sínar að rekja til mikils ótta við kynsjúkdóma en einn- ig til breyttra viðhorfa. í sívax- andi mæli vilja konur ein- göngu tengja kyniíf við lang- varandi tilfinningasamband. Hvað varð þá um „gott“ kynlíf og einhleypu stúlkuna? Fólk forðast skyndikynni vegna ótta við alnæmi. Alnæmi hefiir nú þegar dregið tuttugu og eitt þúsund Bandaríkja- menn til dauða og enn er eng- in lækning í sjónmáli á þessum bölvaldi. Hversu mikil er áhættan sem konur taka þegar alnæmi er annars vegar? Jafn- vel þótt enginn viti hvert stefhir varðandi alnæmi í ffam- tíðinni eru flestir sérffæðingar sammála um eitt. Hættan á því að konur smitist af alnæmi er sáralítil ef ákveðnar forvarnir eru stöðugt hafðar í huga. Verjur eru góð vörn gegn sýk- ingu og þær ætti ávallt að nota þangað tii konan veit allt um kynlífssögu elskhuga síns. En fyrsta og besta vörnin er að halda aftur af sér þegar elsk- hugarnir eru valdir. Best er að forðast skyndikynni því þar gæti mesta hættan legið. Kon- an veit afdrei hverjum hún iendir hjá — eiturlyfjaneytanda, tvíkynhneigðum eða samkyn- hneigðum körlum og körlum sem hafa átt í kynferðislegu sambandi við einhvern í áhættuhópi síðastliðin fimm ár. Konum, sem fylgja ráðum sérffæðinganna og spyrja ávalit karlmanninn um kynlífc- sögu áður en þær afklæðast, verður ljóst að girndinni verð- ur auðveldar hrundið af stað heldur en traustinu. En það er hægt að tala um kyniíf án þess að þurfa að stunda það. Hin mikla kynlífsbylting, sem átti sér stað á miðjum sjö- unda áratugnum, á sér sögu- legar orsakir. Pillan varð eign allra stúlkna, fjöldi einhleypra kvenna fór ört vaxandi og kyn- slóð barnasprengjunnar miklu effir stríð náði fullorðinsaldri. Slagorðið var þá: „Elskumst í ffiði á jörð.“ Nú nota æ fleiri konur grundvallarrétt sinn og segja blákalt „nei“, jafhvel þó þær þurfi að horfast í augu við langvarandi kynlífcbindindi. Þetta tengist að sjálfcögðu breyttum viðhorfum til lífeins. Hinir svokölluðu nútíma „uppar“ stefna óðfiuga upp metorðastigann í þjóðfélaginu í von um fjárhagslegt öryggi í lífcgæðakapphlaupinu. Löngun eftir kynlífi er á undanhaldi en það sem hefur náð heljartök- um á mannskapnum er löngun effir peningum. Nú er mark- miðið fjárhagsleg fúllnægja, ekki kynferðisleg. Annað vandamál, sem hefur komið upp á yfirborðið, er skortur á karlmönnum. Sam- kynhneigðir karlmenn eru þrisvar sinnum fleiri en sam- kynhneigðar konur. Þessi staðreynd hefúr haff mikil áhrif á hlutfallið milli karla og kvenna. Önnur staðreynd er að þær konur sem tilheyra barnasprengjunni mikiu þurfa að horfast í augu við þennan skort. Fæðingar þeirra tíma voru margfalt fleiri en á árun- um áður. Þar sem konur leita effir maka sem er nokkrum árum eldri þurfa konur barna- sprengjutímabilsins að horfast í augu við skort á lífcförunaut- um. Einnig hefúr komið í ljós að æ fleiri sambönd byggjast upp á „eldri" konu og „yngri" manni. Hvað veldur því? Við skulum líta á þá karlmenn sem fæddust í enda barnasprengj- unnar miklu. Þeir eru fleiri en konurnar sem þá fæddust. Þetta verður til þess að á með- an konurnar, sem nú eru um og yfir þrítugt, búa við skort á karlmönnum mega karlmenn á þrítugsaldri líka þola skort á kvenmönnum. Hvað varð eiginlega um gott kynlíf og einhleypu stúlkuna? Svarið við þessari spurningu hefitr verið rakið til stað- reynda níunda áratugarins. Konur verða sífellt kröfúharð- ari og hafa öðlast æ meiri hlut- deild í ábyrgðarstöðum þjóð- féiagsins. Alnæmi, sem nú herj- ar á mannkynið ásamt öðrum kynlífskvillum, kemur í veg fyrir sambönd tveggja einstakl- inga sem þóttu eðlileg áður. Lífsgæðakapphlaupið og ör- væntingarfull leit okkar að fjár- hagslega öruggu lífi hafa leitt til breytts lífcstíls þar sem önn- ur viðhorf gilda. Kynlífcbylt- ingin er á undanhaldi og nú hlusta karlar og konur bara á slátt síns eigin hjarta og eigin kynhvatar. Öll uppgötva þau að hjartað slær hraðar þegar kynhvötinni er tímabundið haldið niðri. Hin kynferðislega umferðarregla níunda ára- tugarins hefúr fleiri stöðvunar- merki en „já“ og „nei“. Það er deginum ljósara. □ 3.TBL.1990 VIKAN 31

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.