Vikan - 08.02.1990, Qupperneq 32
KVIKMYHDIR
Ég mun aldrei búa
í Hollywoocl
- það er mannskemmandi, segir leikarinn Tom Hanks
TEXTI: BRYNDÍS HÓLM
Trf om Hanks er nafn
sem flestir kvikmynda-
unnendur kannast við.
Hann heftir leikið í
mörgum myndum sem hafa
slegið í gegn en hann hefur
einnig leikið í myndum sem
þótt hafa misheppnaðar. Svona
er Hollywood, aldrei að vita
við hverju má búast. Annað-
hvort eru menn stjörnur eða
hundsaðir. í kvikmyndabrans-
anum er skammt öfganna á
milli, skammt á milli hláturs og
gráts.
sem ekki eiga við rök að
styðjast. Pað er ekki mannlegt
að hegða sér svona. Biaða-
menn þekkja ekki takmörk sín
og það eina sem þeir hugsa um
er að græða peninga á ódrengi-
legri vinnu sinni. Það er hættu-
Iegt að vera kvikmyndastjarna
í Hollywood. Oft vill það enda
með snöggu stjörnuhrapi,"
segir hann.
32 VIKAN 3. TBL. 1990
Eiginhandaráritanir
varasamar
Tom Hanks lítur ekki á
glæsilifinaðinn í Hollywood
sem eitthvert takmark í lífi
sínu, því fer fjarri. Hollywood
getur verið mannskemmandi,
flestir í „bransanum" eru sam-
mála um það. Frægðin er sæt í
sjálfú sér en fólk þarf að kunna
að meðhöndla hana. Margir
þola ekki álagið sem fylgir
frægðinni en aðrir komast
klakklaust í gegnum hana.
Tom Hanks er einn þeirra
heppnu. „Best er að byrja aldr-
ei á að gefa eiginhandaráritun.
Ef einn fær áritun verður að
gefa öllum. Um leið eyðileggur
fólk líf sitt. Lífið verður „Hoily-
wood“.“ Þetta er regla sem
Tom hefúr reynt að fylgja og
hingað til hefúr honum tekist
vel að vera bara hann sjálfúr.
Hann segist vera lítið fyrir að
láta bera á sér á almannafæri,
fær næga útrás samt. Tom
Hanks tilheyrir þeim fjölmiðli
sem hefur hvað mest áhrif á
fólk, kvikmyndinni.
Gulltryggdur leikari
„Fjölmiðlarnir eru af hinu
góða en fjölmiðlafólk er oft
óþolandi, sérstaklega blaða-
menn. Ástæðan er sú að þeir
nota ómerkilegar aðferðir til
að ráðast á aðra, brjóta aðra
niður með kjaftæði og sögum