Vikan - 08.02.1990, Síða 40
HEIL5A
tannskemmdum
TEXTI: ÞORSTEINN ERLINSSON
Tannskemmdir verða að veru-
leika þegar sýklar og sykurefni
eru til staðar í munninum. Sýkl-
arnir nærast á þeirri fæðu sem
við látum upp í okkur. Þeim fjölg-
ar mjög mikið yfir daginn og til-
vist þeirra verður til þess að
glerungurinn eyðist á sumum
stöðum og á öðrum myndast
tannsteinn. Sykrinum breyta
sýklarnir í sýrur sem eyðileggja
glerung tannanna, draga út úr
honum ýmis steinefni og mynda
tannstein úr þeim.
Sem betur fer hefur móðir náttúra séð
okkur fyrir varnarkerfi til að vinna á móti
fyrrnefndri þróun og er það munnvatnið.
Munnvatnið inniheldur mismunandi eíni
sem gera sýrurnar óvirkar og leggja sam-
tímis sitt af mörkum til enduruppbygging-
ar tannanna eftir að sýrurnar hafa unnið
skemmdarverk sín á þeim. Því meira
munnvatn sem við framleiðum því minni
er hættan á tannskemmdum.
Það tekur að meðaltali um þrjátíu til
fjörutíu mínútur fyrir munnvatnið að hlut-
leysa sýrurnar í munninum. Ef tennurnar
verða fyrir langvarandi ertingu af völdum
sýra, eins og gerist með miklu sætindaáti,
hefur munnvatnið ekki við að hlutleysa
sýrurnar og niðurstaðan verður sú að við
fáum holur í tennurnar okkar.
Flestir bursta tennurnar bæði kvölds og
morgna en það er ekki nóg til að viðhalda
heilbrigði þeirra því nær helmingur þeirra
reynist vera alsettur tannsteini ef aðeins
þessar varúðarráðstafanir eru gerðar.
Yfir daginn neytum við fæðu bæði á
aðalmáltíðum og þegar við fáum okkur
aukabita á mifli mála. Það segir sig sjálft að
við höfum ekki tíma til að bursta tennumar
eftir hvert skipti sem við borðum. Það
PH
veldur því að tannsteinn nær að setjast
utan á og á milli tannanna og skemmdir
koma í kjölfarið. Á þessu sjáum við að ekki
er nóg að bursta tennurnar aðeins kvölds
og morgna.
Það er fiil hjálp
Með mikilli samvinnu norrænna rann-
sóknaraðifa, meðal annarra Danska tann-
læknaháskóians í Árhus, hefur tekist að
framleiða vöru sem verndar heilbrigði
tannanna á milli þess sem þær em burst-
aðar.
Vísindamenn hafa komist að því að
tyggigúmmí er mjög hentugt til að koma í
veg fyrir tannskemmdir. Það er hægt að
nota án fyrirhafiiar eða truflunar fyrir
neytandann og ekki þarf að nota vatn þeg-
ar þess er neytt eins og nauðsynlegt er við
burstun.
Tyggigúmmíið, sem varð útkoman úr
rannsóknunum og er talið vernda tenn-
urnar best, nefnist V6. Það inniheldur
virka efnið carbamíð sem leitast við að
hlutleysa sýrurnar sem valda tannsteinin-
um. Þegar sýrustigið er lægra en pH 5,5
(allt sem er undir 7 er súrt og því súrara er
efnið sem talan er lægri) aukast mögu-
leikarnir á tannskemmdum til muna. Þegar
við borðum sætindi lækkar sýrustigið
mjög verulega.
Þegar tyggigúmmíið er tuggið flyst það
stöðugt um aflan munninn þannig að
carbamíðið dreifist jafnt yfir tennurnar og
sérstaklega á milli þeirra. Eftir um það bil
tíu mínútur er um 90% af carbamíðinni-
haldinu komið úr tyggigúmmíinu.
Við að tyggja V6 gerist eftirfarandi:
1. Munnvatnsframleiðslan eykst fjórum til
fimm sinnum.
2. Virka efhið losnar úr tyggigúmmíinu.
Hvert stykki af V6 gefur um 20 mg af
carbamíði.
Það er vel þekkt að sjálft tugguferlið
eykur eitt sér munnvatnsffamleiðsluna
verulega. Tyggigúmmí eykur hana enn
frekar. Komið hefur í Ijós við rannsóknir
■ Það tekur að meðal-
tali um þrjátlu til
fjörutíu mínútur fyrir
munnvatnið að
hlutleysa sýrurnar í
munninum.
Tyggigúmmíið V6
inniheldur efni sem
leitast við að hlut-
leysa sýrurnar sem
valda tannsteininum
og styttir þannig
verulega þann tima
sem sýrurnar eru
I munninum.
að V6 tyggigúmmíið er mun virkara í þessu
tilliti en önnur framleiðsla þessarar gerðar
á markaðnum.
Rannsókn á 106 sjúklingum, sem þjást
af sjúklegum munnþurrki (herostomi),
var gerð í Svíþjóð. Hver sjúklingur var
beðinn um að nota átta mismunandi teg-
undir tyggigúmmís yfir hálfsmánaðar
tímabil. Eftir það áttu þeir að segja hvaða
tyggigúmmí þeim fannst hafa best áhrif til
munnvatnsffamleiðslu. Niðurstöðurnar
voru þær að 84% fannst V6 tyggigúmmíið
hafa „mjög góð áhrif' eða „allnokkur áhrif
til batnaðar" og 67% óskuðu eftir því að fá
að halda áffam að nota það.
Notkun V6 kemur ekki algerlega í veg
fyrir tannskemmdir en það er mikilvæg og
virk vörn sem kemur að mestum notum
eftir að fæðu hefur verið neytt eins og á
aðalmáltíðum og að loknum aukabita þar
sem erfitt er að koma tannburstun við.
7 8 9 10 11 12 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 W 7 8 9 10 11 12 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
Þessar tvær myndir sýna hvemig sýrustig lækkar við matarneyslu. V6 tyggigúmmíið styttir vemlega þann tíma sem sýmmar eru
í munninum, með því að hlutleysa þær, eins og mynd 1 sýnir.
38 VIKAN 3. TBL. 1990