Vikan - 08.02.1990, Síða 51
posTURmn
Ég er svo rosalega
óheppin í öllu
Hæ, elsku Vika!
Ég hef skrifað einu sinni
áður og fékk svar sem ég var
mjög ánægð með. Nú er ég al-
varlega farin að halda að það
sé ekki til neinn í heiminum
eins og ég — ég hef alla vega
ekki hitt neinn hingað til.
Ég er venjuleg í útliti, klæði
mig frekar hlutlaust (þó ekki
mjög stelpulega) og er eigin-
lega eins og á milli stelpu og
stráks. Mér líkar ekki við stelp-
ur og kann eiginlega ekki að
umgangast stráka -hef kannski
ekki reynt það eða haft tæki-
færi til. Mér líkar við flippaða
stráka með húmor (dálítinn
aulahúmor) og vil vera með
húmor sjálf (er kannski með
smávegis). Ég á víst að vera
með ágætt hugmyndaflug, en
ég er bara orðin svo bæld og
mér leiðist svo.
Ég er mjög einmana og á
enga vini. Ég er hlédræg eða
ekki málglöð (kannski bara
feimin — eins og flestir vilja
kalla þetta, en ég sætti mig
bara ekki við það orð). Mér
dettur yfirleitt gjörsamlega
ekkert í hug til að segja nema
kannski „já“ og brosa voða
sætt. Núna er eins og ég þekki
ekki sjálfa mig. Ég bý í frekar
litlum bæ eða í rauninni mjög
litlum og ég get bara ekki
hugsað mér að búa hér lengur
— þetta er svo snobbaður og
pempíulegur bær, þar sem allir
þekkja alla og skipta sér af
öðrum. Mig langar að búa í
Reykjavík, en ég bara þori ekki
að flytja suður því ég er svo
viss um að það verði ekkert
betra auk þess sem það hlýtur
að vera svo dýrt.
Ég er svo rosalega óheppin í
öllu að það er ekki eðilegt. Ég
er búin að skipta um skóla
þrisvar sinnum, en þú mátt
ekki halda að ég sé óörugg
þess vegna. Ég klúðraði þessu
alltaf með því að tala ekki strax
ffá byrjun. Ég er komin í verk-
menntaskóla en er á kolvit-
lausri braut. Það er ekki hægt
að læra það eina sem mig lang-
ar til hér og ég þori ekki að
fara ein suður. Jú, jú, ég veit að
maður á ekki að ákveða fýrir-
ffam að maður muni klúðra
þessu, en fýrst ég gat þetta
ekki núna í haust þá get ég það
varla neitt frekar næsta haust.
Hvernig á ég að snúa mér í
þessu? Viltu vera svo góð að
svara þessu bréfi líka og vera
þá svolítið fljót.
Aust- eða Vestfirðingur
E.S.: Ég veit af stafsetningarvill-
unum og svo er ég farin að tala
svo vitlaust, bara allt í einu
upp úr þurru — hvað heldurðu
að sé til bóta við því?
Þinn vandi er semsagt aðal-
lega sá að þú átt erfitt með að
b/anda geði við aðra og ert
þess vegna óörugg með þig. Þú
segir ekkert frá heimili þínu
eða hvort þú hafir einhvem
tíma átt viniþannig að ekki er
svo gott að segja til um það
hvers vegna'þú ert svona ein-
mana og vinalaus. Það skiptir
miklu máli að eiga vin og ein-
hvem til að tala við — oft leysir
það stœrsta hluta vandans,
jafnvel allan. Áttu enga gamla
vinkonu eða vin sem þú hefur
misst sjónar af um stund en
sem þú gætir endumýjað
tengslin við? Ef ekki, skoðaðu
þá skólafélaga þína vel og
vandlega — svo lítið beri á — og
athugaðu hvortþú kemur ekki
fljótt auga á einhvem sem þér
sýnist vera á líkri línu og þú,
hertu svo uþþ hugann og
reyndu hvort þér tekst ekki að
koma á kunningsskap ykkar á
milli.
Ertu svo viss um að fagið
sem þig langar til að lœra í
skólanum í Reykjavík sé ein-
mitt það eina sem þig langar
til að leggja fyrir þig? í þessi
þrjú skipti sem þú hefur byrjað
í nýjum skóla, þá hlýtur þig í
upphafi að hafa langað til að
lœra eitthvað ákveðið í við-
komandi skóla - en hvers
vegna hœttirðu við?
Svaraðu spumingunni sam-
viskusamlega - og sannleikan-
um samkvœmt, þargœti hund-
urinn nefnilega legið grafinn.
Geturþað hugsast að þú leggir
alltaf á flótta þegar málin
verða erfið? Það er eifitt að
tala við ókunnuga, en ein-
hvem tíma verður maður þó
að gera það - og œfingin
skapar meistarann. Aðflýja til
Reykjavíkur mun ömgglega
ekki leysa þinn vanda. Póstur-
inn hefur fengið bréf frá stúlk-
um sem fluttu einar til Reykja-
víkur og tókst svo ekki að
mynda vinskap við neinn hér
þannig að þœr vom meira
einmana en nokkm sinnifyrr,
því í sinni heimabyggð áttu
þœr að minnsta kosti œttingja
sem þær gátu verið í sambandi
við. Hugsaðu þig því vel um
áður en þú tekur ákvörðun
um að flytja ogefþúert ákveð-
in, þá er kannski ekki vitlaust
að auglýsa í bœjarblaðinu eft-
ir einhverjum öðrum sem ætl-
ar líka í skóla hér þannig að
þið getið leigt saman íbúð -
slegið þar með tvær flugur í
einu höggi: sþarað pening og
eignast félaga.
E.S.: Varðandi stafsetninguria
þá geturðu reynt að þjálfa
sjónminnið með því að lesa
mikið af íslenskum bókum og
til að koma í veg fyrir að þú
talir vitlaust þá skaltu hugsa
um það sem þú œtlar að segja
áður en þú byrjar - það getur
líka hjálþað þér að vera ör-
uggari að tala við ókunnuga
ef þú veist að það sem þú ætlar
að segja muni komast óbrengl-
að frá þér. Vegni þér svo vel á
nýja árinu!
Þori ekki að
tala við kann
nema full
Halló kæri póstur!
Ég er hrifm af strák sem við
skulum kalla D. Ég þekki D
ekki mjög mikið en það sem
ég þekki það elska ég og
dýrka! Ég hef eiginlega aldrei
þorað að tala við hann nema
þegar ég er full. Ég fór á rúnt-
inn með honum og vini okkar
beggja og talaði þá heilmikið
við hann, enda full. Þegar ég er
edrú er ég eins og auli ef hann
birtist.
Mér hefur verið sagt að við
pössum illa saman af því að við
erum bæði sporðdrekar og
fædd sama mánaðardag í nóv-
ember, er þetta rétt? Ég veit
ekki hvað í ósköpunum ég á að
gera, en ég er búin að vera
hrifin af honum síðan ég var
15 ára og ég afber þetta bara
ekki lengur.
Ég hef sleppt því að fara út á
kvöldin því ég hélt að ég gæti
gleymt honum með því móti,
en svo er nú ekki. Hann er það
eina sem mér finnst vert að lifa
fyrir. Gerðu það reyndu að
hjálpa mér, ég get ekki meir.
Hjálp, áður en ég geri eitthvað
sem ekki verður aftur tekið.
Doddý
Þetta er ekki auðvelt mál og
því erfitt að gefa þér ráð. Þú
getur ekki talað við hann
nema full, en þá stjómarðu
sjálfri þér ekki eins og þú átt
að gera og gætir því sagt eitt-
hvað sem þú sœir eftir. Það
sem þú verður að reyna að
gera er að manna þig upp í að
tala við hann ófull. Þú skalt
gera þér far um að vera á stöð-
um þar sem þú veist að þú get-
ur átt von á að hitta hann og í
hvert sinn skaltu pína þig til að
tala við hann um eitthvað sem
þú heldur að hann gæti haft
áhuga á. Ef þú gerir þetta þá
œttirðu að komast að því að
það verður sífellt auðveldara
að tala í hvert sinn sem þú tal-
ar við hann. Svo er aftur ann-
að mál hvort þið eigið saman,
en stjömumar em ykkur aftur
á móti í hag samkvæmt
stjömumerkjatöflunni okkar
góðu, þannig að þú skalt ekki
gefast upp alltof auðveldlega.
3.TBL. 1990 VIKAN 49