Vikan - 08.02.1990, Side 52
TI5KA
Rjver Phoenix*.
Hefur áhyggl'w a{
lífinu ájörðinnt.
S.
s&s-
Kelly McGillis: VltHl
fyrir sœkjandann
/? 'lH*»nah
Ted Danson:
Ábyrgðarfullur
og áhugasamur
borgari.
kwLíiiir'
fíntad
vera
gáfum
gæddur
TEXTI:
BRYNDÍS KRISTJÁNSDÚTTIR
Þ að er viðurkennt að
I Hollywood — eða rétt-
ara sagt Suður-Kalifornía
— sé sá staður þar sem tísku-
straumar í Bandaríkjunum
verða til. Allir muna eftir vaxt-
arræktaræðinu — hinum full-
komna líkama. Síðan menn
komust að því hversu mikillar
vinnu það krefst og hversu
leiðigjarnt það er að viðhalda
þessum fullkomna líkama hafa
þeir notað þá fljótlegu og auð-
veldu aðferð að fara í upp-
skurð hjá lýtalækni. Pað er líka
miklu þægilegra, ekki satt?
Gleraugun og Ijóðin
Síðan kom sálin. Fyrir þá
sem hennar leituðu var hægt
að kaupa allt — allt frá kristal-
kúlu til fyrra lífs. En leitin að
sálinni hafði í för með sér
mikla umhugsun um dauðann
og það getur orðið niðurdrep-
andi þegar á líður. Æðið núna
er mannshugurinn. Það er fínt
að vera gáfaður! Eða að
minnsta kosti að líta útfyrir að
vera gáfum gæddur. Þeir hátt
skrifuðu í Los Angeles, stjörn-
urnar, notfæra sér þetta óspart.
Þeir auglýsa nýuppgötvaðan
áhuga sinn á bókalestri með
því að bera með sér torræð
bókmenntaverk í kvikmynda-
verin, í myndatökur og í
viðtöl. Þessu fylgir að þetta
fólk er í stöðugum bókakaupa-
leiðangri, þaðan sem það fer
með fangið fullt — í sama til-
gangi eru gleraugu keypt. En
eru öll þessi gleraugu nauð-
synleg?
Einn af þekktari gleraugna-
sölum Los Angelesborgar segir
að það sé leyndarmál en að
margar af þekktu stjörnunum
gangi með gleraugu með
venjulegu gleri í! Það gerir þó
lítið gagn að sitja einn heima
og vera gáfulegur. Sumar
stjörnur hópa sig saman til
þess og aðalaðdráttaraflið á
vinsælum næturklúbbum nú
er að hafa ljóðakvöld þar sem
þekktar stjörnur lesa ljóð —
sumar lesa sín eigin. Leikarinn
Michael O’Keefe segir um
þetta: „Það er ljóðræn skyn-
semi yfir ungu Hollywoodleik-
urunum ... þeir eru að reyna
að styrkja gáfumannslega
ímynd sína.“ „Þetta er
menning; menning á Holly-
woodvísu. Og það eru ljóð-
skáldin sem eru útverðir þess-
arar menningar," segir ein af
þeim sem sjá um að koma á
slíkum ljóðakvöldum.
Sjálfsnám
Satt er það að stjörnurnar
koma nýju straumunum af stað
en það er fólkið í Los Angeles
sem sér um að koma þeim á
hreyflngu. Það hefur gert „gáf-
urnar“ að hinum nýja lífsstíl,
þar sem sjálfsnám er aðalinn-
takið. Samkvæmt vinsælu tíma-
ritunum eru núna allir í því að
vera gáfaðir, forðast yflrborðs-
mennsku og öðlast menningu.
Leshringir hafa verið stofnaðir
þar sem komið er saman og
rætt um góðar bókmenntir,
skylda er að fara og skoða sýn-
ingar og söfh. Samræður fólks
snúast um erlendar, listrænar
kvíkmyndir og þær samræður
fara fram á espresso-kafflhús-
um. Samt er það í bókabúðun-
um sem hlutirnir virkilega
gerast. Fólkið flykkist þangað
til að skoða, horfa og láta sjá
sig og það sem mestu máli
skiptir — til að kaupa.
Á leið til íslands?
Eins og allir aðrir góðir
tískustraumar mun lesturinn
ganga yfir líka og eitthvað ann-
að tekur við. - Hvað ætli það
verði? Garðyrkja? Flugukast?
Hvað sem það verður þá er
gaman á meðan áhuginn á bók-
menntum, menningu og list-
um stendur yflr - og án efa fer
hans að gæta hér fljótlega því
við erum nú stödd í leitinni að
sálinni.