Vikan - 08.02.1990, Qupperneq 53
5TOÐ 2
Whoopi Goldberg
í aðalhlutverlci
í sakamálamynd
Leikkonan Whoopi Goldberg á sér
marga aðdáendur hér á landi, ekki
vegna þess að hún sé svo falleg, því
t um hana má segja að hún sé
skemmtilega ljót, heldur vegna þess að
hún er mjög góð leikkona — enda hóf hún
að leika á sviði í New York þegar hún var
ekki nema 8 ára. Hún var tilnefnd til ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn í fyrstu kvik-
myndinni sem hún lék í, The Colour
Purple, sem Steven Spielberg leikstýrði.
Föstudaginn 9. febrúar, nánar tiltekið á
miðnætti, verður sýnd á Stöð 2 lífleg og
spennandi mynd með leikkonunni í aðal-
hlutverki og er þetta íjórða myndin sem
hún leikur í. Myndin heitir Fatal Beauty
og þar leikuf Whoopi leynilögreglukon-
una Ritu Rizzoli, sem veit að gálgahúmor
hennar og dálitlar fortölur geta oft á tíðum
verið jafh áhrifarík vopn og byssan hennar.
Hún er meistari í að dulbúast og hennar
vinnusvæði er það hættulegasta í Los Ang-
elesborg. Það kemur þó að því að góð
kímnigáfa kemur ekki að notum, en það er
þegar hún þarf að fást við harðsvíraða
glæpamenn sem eru að dreifa vímuefnum
sem koma notendunum í banvæna vímu.
Eiturlyfjasalarnir kalla efnið Fatal Beauty,
eða banvæna fegurð og það er í verkahring
Ritu að sjá til þess að það hverfl af mark-
aðnum.
Mörg atriðanna gerast í miðbæ borgar-
innar þar sem margar götur eru í algjörri
niðurníðslu. Ein slík var notuð sem sviðs-
mynd fyrir eitt atriða myndarinnar en við
hana stóð húsið þar sem vímuefnið var
selt. Rita fer þangað inn í dulbúningi og í
atriðinu koma fram um 100 manns sem
léku vímuefnaneytendur, eiturlyfjasala,
mellur, sölufólk götunnar og óaldarflokk
sem varði glæpamennina. Aðstandendur
myndarinnar vissu ekki að gatan var í
næsta nágrenni við glæpahreiður sem lög-
reglan var að fýlgjast með. Allt í einu þutu
6 lögreglubílar eftir götunni og stöðvuð-
ust hjá þeim. Þetta voru eins bílar og áttu
að vera í atriðinu, en þegar lögreglu-
mennirnir komu út þá voru þeir með
haglabyssur og leikstjórinn mundi ekki til
þess að hann hefði beðið um slíkar. Hans
lögreglumenn áttu að nota skammbyssur
og það var þá sem uppgötvaðist að þarna
voru raunverulegir lögreglumenn á ferð —
en þeir höfðu haldið að þarna væri verið
að ffemja rán.
Á ferð og flugi
mei Steve Marlin
Gamanmyndin Planes, Trains
and Automobiles eða „Flugvél-
ar, lestir og bílar“ með leikaran-
um Steve Martin í aðalhlutverki
ætti að koma allri fjölskyldunni í gott skap.
Myndin verður sýnd á Stöð 2 föstudaginn
17. febrúar kl. 21.20.
Steve Martin leikur framkvæmdastjóra
auglýsingafyrirtækis, Neal Page, sem er á
leið heim með flugvél til fjölskyldu sinnar
til að njóta með henni þakkargjörðarhátíð-
arinnar. En það gengur sjaldnast stór-
slysalaust fyrir sig að ferðast rétt fyrir stór-
hátíðir og að því kemst Neal á áþreifanleg-
an hátt. í flugvélinni átti hann að fá sæti á
fýrsta farrými þar sem enginn sæti við
hliðina á honum. Þess í stað situr sölumað-
ur sem selur hringi í sturtutjöld við hlið-
ina á honum og samkjaftar ekki. Sölumað-
urinn heitir Del Griffith og hann er ekki
feiminn við að segja Neal hversu reyndur
ferðalangur hann er og að hann hafl ráð
undir rifi hverju.
Þeim fer Neal að kynnast þegar vélinni
er snúið til baka sökum fannfergis og Del
tekur að sér að koma þeim báðum heim
með öðrum leiðum. Hver hörmungin á
Whoopi Goldberg í hlutverki sínu sem
leynilögreglukonan Rita Rizzoli.
fetur annarri hendir þá — og hver verri en
sú næsta á undan — þannig að ekki virðist
líklegt að Neal verði með fjölskyldunni
yflr hátíðina; mun líklegra að hann verði
með bjánanum. „Bjáninn" er leikinn af
John Candy, en leikstjóri myndarinnar og
höfundur er John Hughes sem á sér að
baki myndir eins og Sixteen Candles, The
Breakfast Club, VC'eird Science, Pretty in
Pink, Ferris Buel/er’s Day Off og Some
Kind of Wondetful sem allir kvikmynda-
unnendur þekkja.
John Hughes segir að það sem fyrst og
fremst vaki fyrir sér í myndum srnum
sé að skapa persónur sem virka raunveru-
legar, að viðbrögð þeirra við því sem kem-
ur fyrir þær séu mikilvægari en það sem er
að gerast. Við sköpun sína á myndinni
hafði hann í huga eigin reynslu af ferðalög-
um um Bandaríkjunum frá því hann sjálfur
var textahöfundur fýrir auglýsingar.
Áhorfendum Stöðvar 2 ætti að vera
reglulega skemmt þetta föstudagskvöld og
þess má geta að önnur gamanmynd með
Steve Martin t einu aðalhlutverkanna verð-
ur sýnd í febrúar, en það er myndin Tres
Atnigos sem sýnd verður laugardaginn 24.
febrúar.
•4 Steve Martln í hlutverki firamkvæmda-
stjórans Neal Page í myndinni Planes,
Trains and Automobiles.
3. TBL. 1990 VIKAN 51