Vikan - 02.11.1939, Blaðsíða 7
Nr. 44, 1939
V I K A N
7
— Bráðum deyrðu! segir Bette Davis við sjálfa sig í kvikmyndinni „Dark Victory“. Myndin sýnir
unga konu, sem veit, að hún á skammt ólifað. Þrátt fyrir það kynnist hún ástinni, en þegar stund-
in kemur, stendur hún sig vel.
Hún lætur hann ráða. Læknirinn verður
ástfanginn af henni og blður hennar þegar
uppskurðinum er lokið. Þau ætla sér að
búa upp í sveit, þar sem hann geti stundað
læknavísindi í ró og næði.
Kvöldið fyrir brúðkaupsdaginn verður
henni ljóst, að hún er dauðadæmd. Hún
Bette Ðavis sem hinn dauðvona milljónamæringiir
heldur, að ást læknisins sé tóm meðaumk-
un og ætlar að yfirgefa hann. Hann reynir
að koma vitinu fyrir hana, segir, að öll
deyjum við, og fæstir viti, hvenær, en hún
sé svo heppin að vita, hvenær stundin komi
og geti því verið örugg og róleg. Þau
giftast.
I sveitinni lifa þau kyrrlátu lífi og minn-
ast ekki á það, sem yf'r vofir. Flann vinn-
ur á rannsóknarstofu sinni, og hún gætir
hans. Þau eru bæði ánægð, þar til stundin
er að koma, einmitt þegar hann verður að
fara að heiman. Hún sendir hann brosandi
í burtu. — —
Kvikmyndastjórarnir Warner Bros eru
ekkert hræddir við, að þeir tapi á því að
hafa endirinn þannig. Þeir álíta, að fólk
sé nógu þroskað til að horfa á þessi sorg-
legu endalok. Þeir eru ólíkir öðrum kvik-
Framh. á bls. 17.
Bette Davis getur brosað þrátt fyrir allt. Hér sést hún með leikaranum isetta Davis og George Brent. Brent leiltur lækninn, sem varð ástfanginn
Humprey Bogart. af sjúklingi sinum.