Vikan - 02.11.1939, Blaðsíða 11
Nr. 44, 1939
V I K A N
11
Bláberja-
stuldurinn
SMASAGA
eltir ÞÓRUNNI MAGNtJSDÖTTUR,
eir félagarnir, Jón Valdason og Stefn-
ir frá Bæ, komu samtímis heim að
Hótel Hliðskjálf, þar sem þeir áttu sér vísa
næturgistingu.
Þeir höfðu ólíka sögu að segja. Jón
Valdason hafði farið í bíó með kunningja-
stúlku sinni, og síðan fylgt henni heim til
hennar, og sezt þar að kaffidrykkju.
— Og þá byrjaði nú fyrst þjóðleg
skemmtun, góðurinn.
Stefnir hafði eytt kvöldinu í algjörlega
misheppnaða kvenmannsleit, og hvergi
fengið neitt ofan í sig. Hann var því sváng-
ur og leiður eftir göltrið, og áhyggjufullur
yfir því að verða ef til vill að snúa heim-
leiðis án þess að hafa komizt yfir nokkurn
kvenmann. Og ekki var ástandið gott þar
heima. Abba systir á förum í kvennaskól-
ann, það mundu engin bönd halda henni, úr
því að hún fékk plássið. En mamma svona
eins og hún er, öll úr skorðum gengin af
benvítis gigt, og gat ekki ein verið nokkra
dagstund. En hvað um það, þær verða ekki
gripnar upp úr götusteinunum hérna,
drósirnar.
Næturvörður hótelsins opnaði fyrir þeim
kumpánum, en þar sem þeir höfðu gist í
hótelinu nóttina áður, og áttu að vera í
sama herberginu aftur fannst honum
óþarft að fylgja þeim og sagði aðeins: —
Þið ratið í fletið. Síðan drógst hann inn í
kompuna, sem hann hafðist við í milli þess,
sem hann gegndi skyldum sínum.
Ljós logaði á hótelganginum og það
fyrsta, sem Stefnir rak augun í þegar hann
kom inn úr dyrunum var stór skál, full
af bláber jum. Hún stóð á litla borðinu und-
ir speglinum, sem hann leit alltaf í, þegar
hann var á fram hjá leið.
— Nei, sjáðu, lagsi, sagði hann og dró
höfuðið niður á milli herðanna af einskær-
um feginleik.
— Láttu þau vera, góðurinn, það á
sjálfsagt að nota þau í matinn, sagði Jón
Valdason.
En Stefnir var svo soltinn og gírugur,
að hann hafði engan hemil á sér. Hann
gróf sínar stóru, íhvolfu búandsmanns-
hendur ofan í skálina, tók það, sem toldi
og bar inn í herbergi þeirra félaga. Þar
gæddi hann sér á berjunum og gaf Jóni
Valdasyni með sér. En hann lét frómleik-
ann fjúka, og fór sem fleirum, að honum
smökkuðust forboðnir ávextir vel.
Eitt rúm var í herberginu og urðu þeir
félagar að sænga saman. Þegar þeir voru
lagstir út af togaði Jón Valdason sængina
upp fyrir höfuð og vildi sofna. En Stefni
varð ekki rótt, han gat ekki gleymt blá-
berjaskálinni frammi í mannlausum gang-
inum, ekki væri það mikil synd að taka
eina berjalúku í viðbót, en réttast þó að
láta vera. Hann stríddi ögn á móti freist-
ingunni, en svo fór, að hann yfirbugaðist.
Skylt er að segja hverja sögu eins og
hún gengur og ber því að geta þess, að
vegna þess vítisbruna, sem líkamshiti
tveggja karlmanna, er kúra saman milli
dúns og hlýrra voða, framleiðir, höfðu þeir
félagar kastað öllum þeim klæðum, er þeir
þóttust mega án vera, þar á meðal nær-
brókum sínum. En í kurteisisskyni við
stúlku þá, er mundi færa þeim kaffi um
dagmál, höfðu þeir ekki afklæðst skyrt-
unum, og Stefnir, sem þótti mikill snyrti-
maður í sinni sveit hafði ekki tekið af sér
hálsbindið aukin heldur flibbann.
Þegar bláberjaílöngunin yfirþyrmdi
hann svo, að hann fékk ekki lengur rönd
við reist, brölti hann fram úr rúminu,
brókarlaus, og snaraði sér fram á ganginn,
en hrotur félaga hans fylgdu honum á
leið, og létu í eyrum hans eins og her-
göngumarz, upphefjandi hann yfir auð-
virðilegan frómleika og smáskrítilega
samvizkusemi hversdags mannsins.
Þegar hann var kominn fram í ganginn
kunni hann ekki rétt vel við nekt sína,
en honum þótti illileg tímatöf að því að
snúa við og gera leit að brók sinni, og
því slökkti hann bara gangaljósið, vissi
sem var, að myrkrið er ekki tiltektasamt.
Hann fálmaði sig fram að berjadallinum
og byrjaði að úða í sig berjunum. Þegar
hann hafði etið sig mettan, paufaðist hann
eftir ganginum, og heppnaðist eftir nokkr-
ar árangurslausar áþreifanir í myrkrinu
að finna herbergishurðina.
Honum til óblandinnar ánægju var
rekkjunautur hans hættur að hrjóta,
mundi honum því veitast létt að sofna
jafn saddur og sæll og hann var, og hæfi-
lega rokinn til að njóta rúmylsins. Hann
lagðist fyrir, en þótti Jón Valdason í
meira lagi plássfrekur, spyrnti því hnénu
í hann aftan frá og ætlaði að stjaka hon-
um upp að vegg, en greip um leið yfrum
hann til að verja hann hnjaski. Við það
bullsvitnaði hann og gleypti andann á lofti,
því að það var ekki Jón Valdason, sem
Iá fyrir ofan hann í rúminu, heldur kven-
maður.
Æ, æ, hvaða déskotans óheppni, hugs-
aði Stefnir og þorði sig ekki að hræra
af ótta við, að kvenmaðurinn vaknaði og
ræki upp skaðræðisöskur, sem vekti alla
í hótelinu, og sennilega kæmi því til leiðar,
að hann yrði dreginn fyrir lög og dóm. Ef
til vill ætti hann eftir að enda sína 'daga
á Litla-Hrauni, því að töluvert hlaut að
segjast á því að gera innbrot í rúm hjá
kvenmanni. Og hvað yrði svo sem álitið
annað en hann ætlaði þarna einhverju að
stela.
— Faðir vor, bað hann í kveljandi
ugg. — Hönd þín leiði mig út og inn, svo
allri synd ég hafni.
Hann fann hreyfingu við hlið sér og
skakkskaut augunum, en sá vitanlega
ekki glóru, því að tjald var dregið fyrir
herbergisgluggann. Ástand hans var nú
svo voðalegt, að hann bjóst við að fá
stjarfa á hverju andartaki.
Kvenmaðurinn bylti sér ofan á hann,
faðmaði hann að sér feimnislaust og sagði
í svefnrofunum: — Hvor er det deilig á
mötes igjen, min snille Gregorsen.
Þessu næst kyssti hún hann, og Stefnir,
sem allt vildi til vinna að forða sér frá
æfilöngum ærumissi og betrunarhúsvist,
reyndi að endurgjalda kossa hennar svo
verklega, að hún þyrfti einskis að sakna,
því að hann þóttist vita, að ef hún upp-
götvaði, að það væri vitlaus maður í rúm-
inu hjá henni, mundi hún tryllast og öskra
og þá var voðinn vís.
Þau kysstust nú allt hvað af tók þarna
í myrkrinu, þar til stúlkan fór að bísnast
yfir því á siglfirzkri norsku, hvað Gre-
gorsen sinn hefði verið fundvís að finna
sig þarna um hánótt, en kynlegt þótti
henni, að hann skyldi ekki segja minnsta
grand.
Nú kemst hún að öllu saman, hugsaði
Stefnir, og allt mitt fer í sektina. Sjálfs-
bjargarhvötin er rík hjá manninum. Stefn-
ir tók stúlkuna aftur í faðm sér í von um,
að athafnir dreifðu hugsunum hennar. Ef
til vill tækizt svo vel til, að hún þreyttist
og sofnaði, svo að honum yrði undankomu
auðið.
Allt í einu brá svo við, að hún ýtti hon-
um frá sér og sagði með offorsi miklu:
— Hvert í logandi, syngjandi, þetta er
ekki Gregorsen, þetta er einhver útsmog-
inn, helvízkur fantur, sem leikur sér að
því að svívirða saklaust, varnarlaust kven-
fólk. Hvernig komstu inn á mig, svínið
þitt?
— Ég villtist, það er hverju orði sann-
ara, stundi hann upp.
— Farðu héðan, skepnan þín, á auga
lifandi bragði. Heyrirðu, hvað ég segi?
— Já, mikil ósköp, sagði hann kurteis
og bljúgur. — Ég bið yður að afsaka
ónæðið, ég tók ekki rétta stefnu.
— Ha, kváði hún alveg grallaralaus.
Framh. á bls. 21.