Vikan


Vikan - 15.12.1949, Síða 10

Vikan - 15.12.1949, Síða 10
10 Jólablað Vikunnar 1949 Ljótunn leit á mig. — „Ég held ég sé að ganga alveg inn í sjálfa mig, að vera að tala um þetta við þig, barn.“ Ég þagði. Bara hún hætti nú ekki við að segja méi* þetta, hugsaði ég. Ljótunn sá víst hvað mér leið, því hún sagði hátíðlega: „Þú verður að lofa að skvaldra aldrei frá þessu.“ „Ég segi aldrei frá, ég safna öllu efni,“ sagði ég. Gamla konan leit á mig, eins og hún vissi ekki hvað ég ætti við. „Þú skilur, ég ætla að skrifa um það, þegar ég er orðin stór.“ Ljótunn hnykklaði brýmar, og hvessti á mig augun. Klaufi gat ég verið að segja henni þetta. — En þá mildaðist augna- ráð Ljótunnar aftur, og hrukkumar sem hún setti á ennið hurfu. „Þetta getur verið alveg rétt athugað hjá þér Dóra mín,“ sagði hún. „Við smæl- ingjamir emm þannig sett í mannfélags- heildinni, að við getmn ekkert látið eftir okkur liggja, nema ef minningamar fá að geymast í verkum þeirra, sem taka það að sér að skrifa um smæð okkar og baráttu. Blessuð vertu Dóra mín. Taktu nú vel eftir: Sigurður á Bakkanum var bæði nágranni og leikbróðir Guðrúnar í Miklubraut. En þrátt fyrir kunningsskap þeirra, kom það öllum á óvart, þegar þau opinbemðu trú- lofun sína, hún og Sigurður. Við sem þekktum geðofsa Gunnars bónda í Miklu- braut, héldum að hann myndi algjörlega sleppa sér, ef hún tæki ekki þetta áform sitt aftur. Allt þetta rifjaði Sigurður á Bakkan- um upp, þegar ég vakti yfir honum. Hann átti oft bágt með svefn, og þegar af honum bráði, talaði hann við mig um baráttu sína og reynslu. „Þú manst,“ sagði hann einu sinni, „hvað hann Gunnar gamli varð æfur, þeg- ar við Guðrún hans opinbemðum, og það var líka von hann yrði það, vesalings karl- inn. Ég vissi vel hvað hann setti fyrir sig, og hann hafði sínar ástæður fyrir því. Hann treysti mér aldrei sem vönduðum manni, og það var rétt hjá honum. Vertu ekki að áfellast sjálfan þig, Sig- urður minn, — sagði ég. „Ég áfelli mig ekkj, Ljótunn. Ég þekki sjálfan mig. Öll baráttan sem ég hef átt í, hefur lamað lífsorku mína. Það er nú það. — Einu sinni hélt ég að mér myndi auðnast að stíga yfir allar þær vegleysur sem urðu á leið minni, en sannleikurinn er sá, að mér hefur aldrei tekizt það Ljót- unn, og nú á ég ekki neitt annað eftir en að deyja.“ Ljótunn stundi. Þetta sagði hann, bless- aður maðurinn. Það þýddi ekki að reyna að tala fyrir honimti, hann var viss í sinni sök, — og söguna sína sagði hann mér eitthvað á þessa leið: Einu sinni um vortíma, var ég að líta eftir lambám í Miklubrautarlándi. Þá hitti ég Guðrúnu, þar sem hún lá í svo- litlum grasbotni, eystra megin við Gránu- gil. Hún lá þar og barðist um í ofsafengn- um grátköstum. Ég óskaði þess þá, að ég hefði aldrei gengið þessa leið, en um það þýddi ekki að ræða. Nú stóð ég þama, og hundurinn minn hafði þegar fengið Guðrúnu til að hrökkva við og líta upp. Hún horfði skelfd á mig, — en yfir mig breiddist dýpri og meiri ró, en ég hef nokkurn tíma þekkt fyrr eða síðar. „Guðrún, því grætur þú svona?“ Ég settist hjá henni. — Heimurinn varð mér allt í einu víður og stór. Hugur minn, sem ávallt hafði verið hálf ljósfælinn, varð fleygur. Hann þráði beint í faðm birt- unnar. „Þú verður að segja mér eins og er, hvað það er, sem hefur sært þig svona." „Segja þér,“ sagði hún hastarlega, eins og hún hefði viljað slá mig með orðunum. „Já, segja mér,“ tók ég upp. „Þó ég sé lítilmótlegur fyrir þínum sjónum, þá máttu vera viss um það, að ég get þag- að. Þú getur verið viss um, að vinir mínir freista mín ekki til að segja neitt, því ég stend aleinn um allt, sem mér við kemur.“ Guðrún leit á mig bláum, grátnum aug- um. Hún var svo annarleg og breytt, að ég átti engan skilning til að gera mér grein fyrir, hver væri ástæðan fyrir þeirri breytingu. Hún þagði, en mér flaug í hug, hvort hún væri búin að missa vit- ið, svo var hún ólík sjálfri sér fyrir sjón- um mínum. „Mér er reyndar sama,“ sagði hún loks. — „Ég get aldrei hugsað mér að lifa hvort sem er.“ „Ekki þó minna,“ tautaði ég. Guðrún leit á mig. Mér virtist hún ró- legri. Með sjálfmn mér var ég glaður að nærvera mín skyldi hafa róandi áhrif á hana. Það bætti mér ögn upp einstæðings- skapinn, sem alltaf lokaðist um mig. „Já, líf mitt er algjörlega búið,“ tautaði hún. Mér fannst þetta undarleg fullyrðing. Ég fann það á mér, að hún myndi aldrei gera hvorki sér né öðrum mein. „Þú veist það ekki Sigurður, hvað ég er óskaplega stödd. Ég á von á bami, sem ég má ekki feðra.“ Hún horfði á mig með þeim skelfingar- svip, að mér virtist snöggvast hún hætta að draga andann. — Hún hálfhljóðaði við. — Hvað heldurðu hann faðir minn gerði, ef hann vissi þetta ? Hann myndi reka mig af heimilinu tafarlaust, og svifta mig því litla, sem ég gat átt tilkall til. — Svona farðu nú Sigurður, — farðu strax, segi ég. — Ég horfði á Guðrúnu, eins og ég hefði aldrei séð hana fyrr. En hvað hún var undarleg í dag. Það var furðulegt, þetta með hana og þetta barn. „Guðrún,“ sagði ég. „Þú ert alltof ung til að deyja strax, þó þú eigir von á þessu barni. Gæti ég ekki gengist við því fyrir þig?“ Öll hennar sorg virtist breytast í undr- un, — en svo fór hún aftur að gráta. Hún grét nokkra stund, en reyndi þá að stilla sig. „Þú veizt að það yrði lítið betra. Hvað heldur þú að pabbi segði við því?“ „Ég mundi ekki hugsa um það,“ sagði ég. ,, Við stöndum saman, það er allt ann- að fyrir þig. Ég gæti séð um barnið með þér, og það gæti borið mitt nafn, svo lengi sem þú vildir. Konan mín yrðir þú aldrei, nema að nafninu til, og aðeins vegna. barnsins þíns.“ — Guðrún reyndi að vera róleg. Nú horfði hún tortryggnislega á mig. — „Ég veit ekki hvað bezt væri,“ sagði hún loks. „Það er margt erfitt, líka fyrir mér, Guðrún. Þú vissir nú um þetta með hann pabba, og ég hef kannske erft eitthvað af því. Ég hef gert mér það ljóst, að það er slæmt fyrir menn með slæmar erfðir að eiga börn. Ég hef fengið að kenna á því. Sjálfur hef ég heitið því Guðrún, að eiga aldrei barn. Ég vildi ekki þurfa að vita til þess, að afkvæmi mitt þyrfti að berjast minni baráttu." Guðrún fékk ennþá einu sinni grátkast. Það áttu þá fleiri bágt en hún. „Heldurðu þú getir þetta,“ sagði hún með ekka í röddinni. „Já, ég get það Guðrún,“ sagði ég. „Það verður mér svolítill raunaléttir, að mega hjálpa öðrum, annars ætlaði ég að lifa einn afskiptalaus um aðra, þegar mamma yrði dáin, — það ætlaði ég. — En barnið þitt Guðrún, myndi veita okkur báðum heimili." Ljótunn gamla vökukona þurrkaði sér mn augun, en þó voru þau þurr og gljá- andi. Hún var orðin svo margreynd, að jafnvel tár hennar höfðu smám saman þorrið. „Svona er nú lífið, barnið gott,“ sagði hún. „Þú trúir því ekki, hvað tónbrigði þess eru margvísleg. Á meðan þú ert á þessum aldri, heyrir þú fátt, nema þín eigin brek, og þína eigin rödd. — — „Já, en Ljótunn, er hann Grímur á Bajíkanum þá ekki sonur hans Sigurðar?" „Nei, nei, góða mín. Það segi ég þér satt, að hann er það ekki. Hann er líka ólíkur sínu fólki, það sjá bæði Guð og menn. Grímur er eina barn Guðrúnar, glaður og góðlyndur piltur, og í fyllsta máta heið- arlegur, það gladdi vesalings Sigurð í allri hans baráttu.“ Síðan Ljótunn gamla sagði mér þessa sögu, eru liðin nokkur ár. En hvert at- vik frá þeim tíma rifjaðist upp fyrir mér, þegar ég heyrði að Grímur á Bakkanum hefði fengið allmikinn arf eftir ónafn- greindan mann úr Reykjavík. — Og í arf- leiðsluskrá Gunnars gamla í Miklubraut kom það reyndár glöggt fram, að hann hafði ekki gleymt dóttur sinni, hver svo sem verið hafði tilgangurinn að skapa alla þessa baráttu? Ekki alveg nýtt! Krossviður, sem notaður er „allsstaðar til alls“ var þekktur með Fom-Egyptum. Hafa fundizt kistur 3500 ára gamlar, gerðar úr krossviði.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.