Vikan


Vikan - 15.12.1949, Qupperneq 13

Vikan - 15.12.1949, Qupperneq 13
Jólablað Vikunnar 1949 13 Frá FINNLANDI Eftir E. 0. STENiJ, verkfræðing. Finnland liggur millli 60. og 70. gráðu norðlægrar breiddar og nær þannig 3,5° lengra til norðurs og 3,5° lengra til suð- urs en íslands. Stærðin er 337,113 km2 og er það því liðlega þrisvar sinnum stærra en Island að flatarmáli. Ibúatalan er rúmar 4 milljónir, og koma þá um 12 manns á hvern ferkílómetra. Finnland er því talsvert stórt, en strjálbýlt land. Þéttbyggðastir eru suður og suðvestur- hlutinn, en norður og norðvesturhlutinn strjálbýlastir. Landið er yfirleitt sléttlent, nema norð- urhlutinn. Víða er það þó smáhæðótt. Það er að mestu leyti vaxið barrskógi, og er viðurinn notaður til byggingu og elds- neytis, og einnig sem hráefni til iðnaðar í ríkum mæli. I skógunum er víða mýrlent, og er þar unninn mór. Inni í landinu eru mörg og stór vötn, og renna úr þeim mik- il fljót til sjávar. Þessi fljót hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulífið: Fossar milli vatna og í fljótunum eru beizlaðir til þess að framleiða raforku fyrir iðnaðinn og heimilin. Vötnin og fljótin, og jafnvel smálækir eru þýðingarmiklar flutninga- leiðir, þar sem viðinum er fleytt eftir þeim til verksmiðjanna. Á sumrin sigla gufu- og mótorskip á vötnunum, og á vet- urna eru þau notuð sem akbrautir, því að ísinn er rennisléttur. Meiri hluti íbúanna eru Finnar, sem tala finnsku. Nokkur hluti íbúanna á ströndinni og í skerjagarðinum eiga ætt sína að rekja til Svíþjóðar og tala sænsku. I borgunum er til fólk af þýzkum og rúss- neskum uppruna, og einnig Gyðingar. I Lapplandi búa Lappar, og Sigúnar flakka um sveitirnar. I Finnlandi eru alls 35 borgir, 25 minni kaupstaðir og fjöldi þéttbýlla byggða- hverfa. Bo^girnar á ströndinni standa við við hafnir, en bæjirnir inn í landi við meiriháttar verzlunarstöðvar. Minni kaupstaðir hafa skapast umhverfis þýð- ingarmikla staði, svo sem járnbrautar- stöðvar og mikil iðjuver. Stóru hafnar- borgirnar eru líka miklar iðnaðarmið- stöðvar, þar sem unnið er úr innfluttum hráefnum. Stærsta borgin er höfuðstaður- inn Helsinki (Helsingfors) með um 400 þús. íbúa. Ibúatala borganna og smærri kaupstaðana er jrfir 1 milljón, eða 14 af allri íbúatölu landsins. Sveitahéruðin skiptast í um það bil 500 hreppa. Af atvinnuvegunum er fyrst að telja akuryrkju ásamt búfjárrækt, og skógar- högg. Jarðirnar eru flestar meðalstórar eða litlar, enda þótt nokkur stórbýii séu enn við lýði. Þróunin stefnir í þá átt, að jarðirnar séu litlar, enda ýtti það undir þessa þróun, að fólkið sem missti býli sín í friðarsamningunum 1944, fékk nýtt jarð- næði með skiptingu stærri jarða. Smá- býlin hafa sína kosti með tilliti til vinnu- aflsins, en þau geta ekki notfært sér land- búnaðarvélar í eins ríkum mæli og stór- býlin. En með góðri samvinnu stendur þetta til bóta. I sambandi við búfjárræktina er rétt að nefna mjólkuriðnaðinn. Mjólkurbúin eru flest lítil og eru dreifð um landið. Flest þeirra framleiða smjör, sem er að miklu leyti flutt út; nokkur framleiða ost. Við ströndina og í skerjagarðinum leggja íbúarnir mikla stund á fiskveiðar. Fiskurinn er ýmist seldur nýr, saltaður eða reyktur til neytendanna eða hann er soðinn niður. Finnar stunda einnig út- hafsveiðar, jafnvel í námunda við Island. Iðnaðurinn hefur á síðustu 100 árum orðið mikill atvinnuvegur og hafa risið upp stór iðnfyrirtæki með nýtízku véla- kosti. Sögunarverksmiðjurnar eru niður Ferja á skipaskurði við sjóinn, við mynni stórra fljóta, sem viðnum er fleytt eftir. Verksmiðjurnar framleiða allskonar borðvið, einkum furu, til útflutnings. Ný iðngrein er smíði til- búinna húsa, og hefur sú framleiðsla haft mikla þýðingu í sambandi við stríðs- skaðabæturnar og útflutninginn eftir styrjöldina. Hjá sögunarverksmiðjunum eru trjákvoðu- og pappírsverksmiðjur, sem framleiða brúna trjákvoðu og um- búðapappír úr sagi. Hvíta trjákvoðan og hvíti pappírinn, er framleitt úr greni, aðal- lega í verksmiðjum inni í landi. I landinu er einnig mikill námugröftur, og færir hann landsbúum steina í bygg- ingar, kalkstein og málma. I jarðlögum finnast málmar, en ekki er allsstaðar svo mikið magn af þeim, að það borgi sig að vinna þá. Hinsvegar eru engar kolanámur í landinu og engin olíuvinnsla. Allmikill vélaiðnaður er í Finnlandi, og sér hann öðrum atvinnuvegum fyrir vélum. I hafn- arborgunum eru skipasmíðastöðvar og dráttarbrautir. Margskonar annar iðnaður, sem fram- leiðir nauðsynjavarning handa íbúunum, er rekinn í borgum landsins. Þar sem byggðin er dreifð um víðáttu- mikið svæði, hafa skapazt ólíkar sam- gönguleiðir. Elztu samgönguleiðirnar eru Nýjasti hluti Hclsingforsborgar

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.