Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 8
hennar er þó hve sönn hún er
og heilsteypt," segir Heiðar.
Hún er tveggja barna móðir
en hvað var hún að gera tram
á daginn í dag? Hér áður fyrr
keppti hún [ sundi í mörg ár og
var í landsliði íslands. Til gam-
ans má geta þess að Lóló setti
fyrsta Islandsmetið sem sett
var í Laugardalslauginni á
vígslumóti laugarinnar árið
1966. Eftir sundferilinn tók við
íþróttakennaranám en að því
loknu kenndi hún sund og leik-
fimi í nokkur ár. Lóló flaug s(ð-
an sem flugfreyja hjá Loftleið-
um og vann auk þess við
tískusýningar. Hún tók þátt í
fegurðarsamkeppni árið 1971
og vann og var í framhaldi af
því send á Langasand og það-
an til Thailands í keppni. „Ég
var í Bangkok yfir jól og ára-
mót og það eru ömurlegustu
jól sem ég man eftir, fjarri öll-
um ástvinum," segir hún.
Lóló var einn af stofnendum
Módel 79 og var fram-
kvæmdastjóri þeirra fyrstu
árin. Lóló hefur í 12 ár rekið
tískuverslunina Plaza við
Laugaveg ásamt manni
sínum, Sævari Baldurssyni en
nú er hún einnig upptekin af
móðurhlutverkinu því þau eiga
tvo drengi, Orra sex ára og
Sindra fimmtán mánaða.
GERI KRÖFUR TIL MÍN
Lóló heldur sér í formi með því
að stunda líkamsrækt þrisvar í
meðal annars í mánaðarlanga
ferð til Bandaríkjanna í tilefni
af heimsókn Vigdísar Finn-
bogadóttur þangaö árið 1983.
„Þegar ég kom til Reykja-
víkur hætti ég í pólitík og hætti
í ITC og átti þá allt í einu 18
tíma á sólarhring sem ég ekki
hafði átt fyrr,“ segir hún. „Ég
vissi vart hvað ég átti af mér
að gera því börnin mín eru
uppkomin en nú erum við ný-
búin að kaupa gamalt hús sem
ég er að gera upp og svo
ákvað ég að fara í leikfimi og
sund þrisvar (viku. Nú geri ég
ýmislegt sem ég hef ekki kom-
ist til að gera í tíu ár. Ég geri
húsið upp sjálf, spasla, mála
og flísalegg, því ég hef aldrei
getað setið auðum höndum."
Hvað gerir hún til að halda
sér (formi? „Ég geng mikið og
er svo í hestamennsku. Þcr tæ
ég hreina loftið. Ég hef aldrei
reykt og er þess fullviss að
það hefur sitt að segja líka.
Svo þarf ég mikinn svefn, sef
að minnsta kosti níu tíma á
nóttu. Ég beiti engum sérstök-
um ráðum til að halda mér og
held í rauninni að útlit ráðist
mikið af erfðum."
GAMAN AÐ KLÆÐA
SIG UPP
Fatastíll? „Ég hef farið í þann
fatnaö sem mig hefur langað
til hverju sinni, alveg frá því að
ég var unglingur," segir Inger.
„Mór finnst gaman að klæða
mig og sérstaklega að klæða
mig upp,“ bætir hún við. „Ég
vill nota liti og er alveg tilbúin
að prófa allt mögulegt. Skart-
gripaverslanir virka mjög
freistandi á mig og ég á eyrna-
lokka og armbönd í tonnatali."
Henni finnst þó verðlag virka
letjandi á fatakaup og segir að
sér líði raunar best í grófum
flauelsbuxum og góöri peysu.
„Einu flíkurnar sem ég hef
aldrei getað kunnað við eru
gallabuxur. Dóttir mín leggur
oft til við mig að við kaupum
okkur einhverja flík „saman"
og svo nýt ég stuðnings móður
minnar, Jórunnar Karlsdóttur,
sem er minn besti hönnuður
og saumakona. Annars lít ég
oft á föt frá þekktum frönskum
hönnuðum, til dæmis frá Karli
Lagerfeld, og segi við sjálfa
mig að gaman væri að klæð-
ast svona. í mörgum tilvikum
hefur lausnin verið sú að fara
til mömmu til að athuga hvort
hún geti saumað svona flík.
Annars hef ég aldrei bundið
mig við einhver merki, sjálf-
sagt af því að ég hef aldrei
haft efni á því. Núna er ég
komin með nógu mikið sjálfs-
traust til að þurfa ekki á því að
halda að vera í merkjavöru til
að vera viss um mig.“
Skiptir það hana máli að
vera í hjónabandi? „Það hafa
ýmsar sviptingar átt sér stað
innan vinahópsins og sannar-
lega vildi ég ekki vera einhleyp
í dag. Maðurinn minn tekur
undir þetta því okkur virðist
sem það hljóti að vera afar erf-
itt að þurfa að fara aftur út „á
markaðinn" og finna sér lífs-
förunaut upp á nýtt. Fyrir mitt
leyti sé ég þessa stöðu ekki al-
veg fyrir mér en þessi mál hafa
verið rædd í okkar vinahópi og
svo virðist sem það sé hrein-
lega fullt starf að ná sér í
sæmilegan maka. Ég held þó
að þetta sé auðveldara fyrir
unga fólkið. Það þarf ekki að
binda sig við að leita að félaga
á skemmtistööum, það getur
bara farið f líkamsræktar-
stöðvarnar. En hvar leitar fólk
sem orðið er fertugt, fimmtugt
eða sextugt? í fyrsta sinn í
rúman áratug eigum við hjónin
mikinn frítíma saman og þá
finn ég það best hvað það er
gott að eiga góðan félaga. Nú
erum við að þróa með okkur
að gera skemmtilega hluti
saman því þessa stöðu þekkt-
um við ekki hér áður fyrr þó við
séum ekki nema 43 ára. Þetta
skeið kemur kannski fyrr hjá
mér en þeim konum sem eiga
fleiri börn, því mín tvö eru
komin upp. Nú erum við hjónin
að kynnast upp á nýtt og það
er mjög gaman og gott. Þetta
er svolítið átak og kemur
kannski ekki sjálfkrafa en í
staðinn fær maður góðan
félaga sem þar að auki er
maðurinn manns.“
8 VIKAN 5. TBL. 1991