Vikan


Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 9

Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 9
„í dag líta konur svo vel út og halda sér svo vel að manni getur skeikað um áratug eða svo.“ „Það er hræðileg þróun að konur velji sér það frekar að sleppa barneignum til að geta sinnt starfsframa." viku og syndir hina daga vik- unnar. „Þetta er hluti af minum degi og ég get alls ekki án þessa verið," segir hún. Hún reykir ekki og segir að það sé sér metnaðarmál að halda sér i góðu formi. „Til að mynda synti ég hvern einasta dag báðar meðgöngurnar,“ segir hún. „Ég var íþrótta- manneskja og hef aldrei leyft mér að slaka á. Ég geri kröfur til mín með að halda mér við og það hefur vissan forgang hjá mér. Ég fer snemma að sofa á kvöldin því ég verð að fá átta tíma svefn á nóttu og svo er ég komin í líkamsrækt- ina klukkan hálfátta á morgn- ana.“ AÐ ÖÐLAST ÞROSKA OG RAUNSÆI Lóló hefur lifað og hrærst í tískuheiminum um árabil því auk tískusýningarstarfa kaupir hún inn fatnað fyrir verslunina. „Ég kaupi aðallega inn frá París, Amsterdam og London og það er alltaf spennandi að sjá hvað boðið er upp á í byrj- un hverrar árstíðar," segir hún. „Sjálf klæðist ég ávallt sportlega enda á það best við mig. Þó er viðhöfn hjá mér þegar ég klæði mig upp til að fara til dæmis í nýársboð til Báru vinkonu minnar Sigur- jónsdóttur eða á fegurðarsam- keppni fslands á Hótel íslandi. Þetta eru mjög hátíðleg augnablik hjá mér." Aldurinn? „Bæði finnst mér erfitt að gera sér grein fyrir aldri fólks í dag og svo tel ég aldur ekki vera það sem fólk vill fyrst fá að vita um eða það sem mestu máli skiptir. í dag líta konur svo vel út og halda sér svo vel að manni getur skeikað um áratug eða svo. Það sem mér finnst best við að eldast er það raunsæi og sá þroski sem maður öðlast. Þá er hægt að láta sér þykja vænt um lífið sjálft og það sem manni er gefið i því.“ Daglegt líf? „Ég læt dreng- ina mína og umönnun þeirra ganga fyrir og það er besta hlutverk sem ég hef fengið um ævina. Það þýðir að vísu að ég get ekki sinnt fyrirtækinu eins mikið og ég gerði áður en það lendir þá bara á Sævari. Það er hræðileg þróun að kon- ur velji sér það frekar að sleppa barneignum til að geta sinnt starfsframa." EKKISKREYTA LISTANA MEÐ KVENFÓLKI Þjóðmálin? „Þó ég sé sjálf- stæðismaður í mér þýðir það ekki endilega að ég samsinni alveg öllu sem Sjálfstæð- isflokkurinn gerir. Konum er ekki gert hátt undir höfði innan flokksins. Ég hugsa að meira mark sé tekið á konum innan A-flokkanna en þetta er líka okkur sjálfum að kenna, við höfum ekki sótt fram sem skyldi og höfum oft látið troöa á okkur. Ég er líka alfarið á móti því að konur séu settar á lista einungis í krafti síns kyn- ferðis og til að skreyta listann. Ég er alveg á móti kerlinga- rembu og finnst konan verða að vinna til þess að komast á lista. Því miður þurfum við oft- ast að sanna okkur tvöfalt á við karlana við hliðina á okkur. Kona getur verið alveg jafn- góður stjórnandi og karlmaður og það er fásinna að staður konunnar sé innan veggja heimilisins eins og oft má heyra á eldri mönnunum. Karl- arnir hafa meiri tækifæri til að vera frjálsir en það er sem bet- ur fer að breytast. Konan hefur vitanlega alltaf stjórnað karlin- um og það um þúsundir ára en alltaf verið á bak við tjöldin. Nú „Konan hefur vitanlega alltaf stjórnað karlin- um og það um þúsundir ára en alltaf verið á bak við tjöldin. Nú langar okkur fram og okkur tekst það með tíð og tíma.“ langar okkur fram og okkur tekst það með tíð og tíma. Ég hef enga trú á öðru.“ Heiðar Jónsson litgreinir Inger sem vetur en litir vetrar eru öðrum fremur svart, hvítt og rautt. „Inger hefur aldrei viljað berast á og hún gerði allt sem hægt var til að hverfa í fjöldann," segir Heiðar. „Ég reyndi hvað ég gat að pota henni í keppni og hún fyrirgef- ur mér seint að tilkynna, þegar Unnur systir hennar varð feg- urðardrottning, að fyrir framan sviðið væri stúlka sem hefði átt aö fá þessa kórónu fyrir nokkrum árum. Hún Inger er svo falleg að henni tókst aldrei að hverfa í fjöldann og nú finnst mér að hún ætti að hætta að reyna það og fara bara að sjást.“ Þótt Inger sé ekki með fullt hús af börnum lengur bætir hún sér það upp með gælu- dýrunum. Hún er meö stóran hund og tvo síamsketti heima auk hestanna. „Núna eru dýrin eins og börnin mín og maður- inn minn segir stundum að ég hugsi betur um dýrin en hann. Eitt er víst, ekki vildi ég vera án þeirra," segir þessi glæsi- legi fulltrúi íslenskra kvenna að lokum. □ 5. TBL. 1991 VIKAN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.