Vikan


Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 24

Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 24
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON/LJÓSM,: BRAGI Þ, JÓSEFSSON MAÐUR VERÐUR AÐ HAFAGAMANAF HLUTUNUM TIL AÐ GETA GERT ÞÁ VEL - VIKAN R/ÍÐIR VIÐ EINAR JULIUSSON UM MEGRUN, SÖNGFERILINN, V/ÍNTANLEGA SKEMMTIKRAFTA Á BREIÐVANGI OG FLEIRA Það eru ýmsar hliöar á Einari Júlíus- syni, söngvaranum með breiða brosið, þótt hann hafi ekki sungið inn á eins margar hljómplötur og söngferill hans hefur boðið upp á. Kannski er það vegna þess að hann hefur alltaf kunnað betur við sig innan um áhorf- endur en upptökutæki. Utan söngs vann hann lengi sem verslunarstjóri, fæddurog uppaiinn í Keflavík og býr þar enn. Nú vinnur hann hins vegar í Fteykjavík sem skemmtanastjóri á Breiðvangi. Starfið felst í skrifstofuvinnu frá hádegi til klukkan sex á kvöldin. Þar að auki er hann í húsinu um helgartil klukkan hálffjögurá næturnar þegar það er opið vegna dansleikja, skemmtana eða annarra mannfagnaða. Fljótt á litið gefst honum því ekki mikill tími til söngs en hann fæst ekki bara við poppmúsík og dægurlög. Þegar ég leit inn á skrifstofuna til hans um daginn var hann að koma af æfingu í Dómkirkjunni þar sem hann átti að syngja við brúðkaup daginn eftir. Konan hans vinnur líka [ Reykjavík svo mér fannst liggja beinast við að fá hann til að Ijóstra því upp hvort hann væri kannski að hugsa um að flytja til Reykja- víkur á næstunni. Einar: Við erum ekkert búin að gera það upp við okkur ennþá. Þetta er meira mál en við héldum. Við búum í gömlu einbýlishúsi (Kefla- vík og ef ég seldi það fengi ég ekki nema þriggja herbergja íbúð í Reykjavík - ef ég yrði svo heppinn. - Nú varst þú fyrstur manna f langri röð söngvara frá Suðurnesjum en ég man ekki til að hafa heyrt skoðanir þínar á músík- byltingunni mikiu frá Keflavík. Hvaðan kemur þessi músíkáhugi? Einar: Það er ekki gott að gefa einfalt svar við þessu. Það kemur þarna meiri háttar góður ár- gangur af hljómlistarmönnum, strákar sem lögðu allan sinn metnað í að gera hlutina vel og þótti gaman að því. Svo höfðum við náttúr- lega kanaútvarpið daginn út og daginn inn. Það hefur vafalaust haft einhver áhrif en ég held samt að þessi góði árgangur hafi haft mest að segja. Það sama er alltaf að gerast af og til úti á landi. Á Húsavtk eru Greifarnir og á Akureyri hefur fullt af góðum hljómlistarmönn- um komið fram undanfarið. Það hefur ekki komið mikið frá Keflavík á undanförnum árum, þó einn og einn. Að vísu er ýmislegt í deiglunni þar núna, til dæmis hljómsveitin Pandóra. - Ólöf dóttir þín er nú farin að syngja. Einar: Já, hún er yngst. Það er óskaplega mikil músík í henni. Hún hefur gífurlega gaman af því aö syngja. Maður verður að hafa gaman af hlutunum til að geta gert þá vel. Minn dómur er sá að ef hún heldur þessu áfram eigum við eftir að heyra gott betur í henni en heyrst hefur hingað til. Hún hefur troðið mikið upp með mér OBBBni 'v „Ég held að ég hafi aldrei haft neina sérstaka fyrirmynd. Ég reyndi bara að gera hlutina vel - eins og ég vildi hafa þá.“ í einkasamkvæmum. Við komum til dæmis fram á fjörutíu ára afmæli Keflavíkur og þar heillaði hún alla, eins og hún gerir reyndar allt- af þegar hún fer á svið. Hún er óskaplega ein- læg og það kemur einmitt fram í sviðsfram- komu hennar. - Þegar þú varst kominn á fullt skrið f söngnum þótti mörgum sjálfgefið að þú værir tilvalinn í að stæia Fats Domino en svo söngstu bara lög með Paul Anka í staðinn. Hverjar voru fyrirmyndir þínar? Einar: Ég veit það ekki. Mitt þroskaskeið í þessu var á þeim tíma þegar gífurlegur fjöldi kom upp af skemmtilegum söngvurum; Paul Anka, Fats Domino, Pat Boone hélt ég óskap- lega mikið upp á, Neil Sedaka dýrka ég enn þann dag í dag, en ég held að ég hafi aldrei haft neina sérstaka fyrirmynd. Ég reyndi bara að gera hlutina vel - eins og ég vildi hafa þá. - Þú hefur sungið með ýmsum söngkon- um gegnum árin. Er einhver ástæða fyrir því? Einar: Nei, ekki beinlínis. Mörg falleg lög eru einmitt tvísöngslög og það er gaman að syngja þau með góðum söngkonum eins og til dæmis Önnu Vilhjálms. Við höfum átt yndislega daga saman í Þórscafé og á Hótel Islandi. Svo fannst mér meiri háttar tækifæri að syngja inn á plötu með Elly Vilhjálms, þó svo að við hitt- umst aldrei við upptökurnar. - Hvernig stóð á því? Einar: Það var svo skrýtið meö þá plötu. Svav- ar (Gests) hafði samband við mig og ég var auðvitað hissa aö Vilhjálmur, bróðir Ellyar, væri ekki með í spilinu en þá var hann kominn í allt aðra útgáfu svo að ég var næsti valkostur. Mér þótti mikill heiður að fá að taka þátt í plöt- unni. Svo þróuðust málin þannig að Þórir Bald- ursson var fenginn til að útsetja og spila með ýmsum listamönnum í Munchen. Þú veist að ég bý við hliðina á foreldrum hans í Keflavík. Nú - svo kom hann heim, 30. apríl 1976, með undirleikinn. Ég hitti hann fyrir utan heimili for- eldra hans 1. maí. Þeir feögar voru að bisa við að setja kassettutæki í bíl Baldurs og Þórir hóar í mig og segir: „Ertu ekki með til Reykja- víkur að tala við hann Svavar? Ég ætla að leyfa honum að heyra undirleikinn." Jú jú, ég hélt það nú. Ég hafði ekki hugmynd um hvaða lög þetta voru svo hann segir mér að þarna sé meðal annars Ömmubæn. Það datt náttúrlega Frh. á næstu opnu 24 VIKAN 5. TBL. 1991
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.