Vikan


Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 28

Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 28
TEXTI: GUNNHILDUR HEIÐA AXELSDÓTTIR Á undanförnum árum hefur vaxandi hópur sálfræðinga og geðlækna haldið því fram að rekja megi rætur sjúkdóma í bernsku og á fullorðinsárum til fæðingarreynslunnar og áfalla I móðurkviði. Myron Hofer, geðlæknir við Montefiore sjúkrahúsið í New York, segir að nýlegar rannsóknir vísinda- manna staðfesti að „áhrif fyrir fæðingu, af áfengi, methadoni, heróíni, sterkum svefnlyfjum, róandi lyfjum og amfetamíni, kalli fram langvinn áhrif á hegðun afkvæmisins, hvort heldur er á gelgjuskeiði eða fullorðið, mörgum vikum og mánuðum eftir að það varð fyrir áhrifum af þessum efnum í móðurkviði". Jafnframt aukast sífellt sannanir fyrir þvi að streita barnshafandi móður, reykingar, kaffineysla, mikill og langvarandi hávaði og jafnvel neikvætt hugarástand hafi áhrif á framtíðarheilsu barnsins. ÁHRIF FÆÐINGAR REYNSLUNNAR í heimahúsum. Sænsk sjúkra- hús hafa verið gagnrýnd fyrir að gleyma manneskjulegum þáttum í kapphlaupi um hag- kvæmni og skipulag. í Dan- mörku starfar jafnframt svipuð hreyfing. Ekki alls fyrir löngu fjallaði þýska tímaritið Der Spiegel ítarlega um mismun- andi fæðingaraðferðir og þær sálfræðilegu skemmdir sem sumir telja að fæðingaraðferð- ir sjúkrahúsa hafi f för með sér. Þar var meðal annars rætt við breska geðlækninn R. D. Laing en hann hefur sett fram þá skoðun að orsakir alvar- legra geðsjúkdóma, eins og til dæmis ýmissa afbrigða geð- Ahrif fæðingarreynsl- unnar á líf okkar hafa löngum verið kunn meðal sálfræðinga á Vestur- löndum. Sigmund Freud varp- aði til dæmis fram þeirri tilgátu að sum form kvíða og öryggis- leysis mætti rekja til fæðingar- reynslunnar, þegar hið ný- fædda barn verður fyrir áfalli vegna aöskilnaðar við móður- ina. Otto Rank, sem var einn af lærisveinum Freuds, taldi að fæöingin væri ungviðinu skelfileg reynsla og megin- ástæðan fyrir taugaveiklun, þunglyndi og jafnvel sefasýki. Wilhelm Reich var hins vegar þeirrar skoðunar að fæðingin væri i eöli sínu á engan hátt skaðleg barninu heldur þær fæðingaraðferðir sem tíðkast á nútímasjúkrahúsum. VAXANDI UMRÆÐA UM FÆÐINGARAÐFERÐ Aðstæður á fæðingardeildum nútímasjúkrahúsa hafa verið mikið til umræðu á Norður- löndum á síðustu árum. í Sví- þjóð hefur til að mynda verið stofnuð hreyfing foreldra, sál- fræðinga, lækna og Ijós- mæðra sem hvetja eindregið til þess að konur fæði börn sín Breski barnalæknirinn og sálkönnuðurinn Donald W. Winnicott hefur greint frá því hvernig sumir sjúklinga hans hafi endurlifað nákvæman gang fæðingar sinnar. Ýmsir aðrir hafa bent á mikilvægi fæðingarinnar og hvernig jafn- vel sársauki ófædds barns getur greypst í undirmeðvit- undina og valdið erfiðleikum síðar á ævinni. Þróaðar hafa verið sérstakar aðferðir í sál- lækningum sem eiga að auð- velda fólki að endurlifa fæð- ingaráfall sitt og bælda reynslu úr móðurkviði. Meðal áhrifa- manna á þessu sviði má nefna breska geðlækninn Frank
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.