Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 54
Þetta var ekki á stefnu-
skránni hjá þeim, þvert
á móti. Frank hreinlega
keyrði á Elke í hjólaskautahöll-
inni og þau urðu ástfangin uþp
fyrir höfuð. Ekki löngu seinna
varð Elke ófrísk en að það yrðu
þríburar - nei, það hafði eng-
an grunað. Allt er þegar þrennt
er, er málsháttur sem Frank
Frank og Elke eru ánægð með dætur sínar en það er
erefitt fjárhagslega. Hún þurfti að hætta að vinna og
hann er lærlingur.
ALLT ER ÞEGAR
án og Elke var tuttugu og
þriggja ára þegar hann bók-
staflega keyrði á hana á hjóla-
skautabrautinni. Hann greip i
hana til að detta ekki en féll nú
samt - þó á annan hátt. Hann
féll nefnilega fyrir Elke. Þau
kynntust, urðu ástfangin og
ekki löngu eftir fyrsta kossinn
varð Elke ófrísk. Þegar þau
fengu aö vita það ákváðu þau
að gifta sig, þó ekki fyrr en eftir
tvö ár. Frank fór með Elke i
sónarskoðunina. Læknirinn
starði lengi á skerminn ...
eitt...tvö...þrjú, þríburar! Þau
giftu sig í einum grænum.
Hvernig mun þetta ganga?
sagði faðir Elke áhyggjufullur.
Hún getur ekki haldið áfram að
vinna við þessar aðstæður.
Og Frank átti margar
svefnlausar nætur fram
undan. En Frank þakk-
ar það sfnum unga
aldri að áhyggjurnar
skyldu ekki sliga hann.
Mestu skipti að Elke og
börnunum liði vel.
Það eru engir smáhlaðar
af dóti sem fylgir komu
þriggja barna. Mamma
Franks, Erika, prjónaði til
dæmis tuttugu og fjórar peysur
og sokkabuxur. Rúm, sængur,
sængurföt, pelar, snuddur, að
ógleymdum bleiunum - allt
kostaði þetta sitt og þar sem
Frank er aðeins lærlingur með
lágt kaup er ekki furða að
hann hafi áhyggjur.
Þegar stóri dagurinn rann
upp gat Frank ekki staðið í
fæturnar. Hann sat fölur í bið-
stofunni og beið. Loksins gat
hann andað léttar, það var yfir-
staðið. Þrjár dætur; Nadine
2200 grömm, Jacqueline 1950
grömm og Nicole 2000 grömm.
Lífið verður aldrei samt
aftur. Frank getur ekki skropp-
ið út í fótbolta, í bíó eða hang-
ið á kránni með kunningjun-
um. Nei, eftir vinnu liggur leið-
in beint heim til kvennanna.
Frank er mjög góður pabbi,
segir Elke. Þrátt fyrir ungan
aldur er hann mjög þroskaður
og hefur mikla ábyrgðartilfinn-
ingu.
Sér Frank eftir að missa af
bestu árunum sínum?
Nei, segir hann. Mér finnst
ég ekki vera svo „ungur" leng-
ur því ég hef axlað mikla
ábyrgð. Ég er mjög stoltur af
dætrum mínum og það er
gaman að fylgjast með þeim.
Ein er mjög róleg og lætur lítið
fara fyrir sér, önnur eins og
hálffeimin og sú þriðja
brosmild. Þrátt fyrir þetta rugl-
umst við oft á þeim því
þær eru svo líkar.
Skyldu þau nú vera
búin með barna-
kvótann?
Nei, ég gæti hugsr.ð
mér að eignast tvo
syni í viðbót - seinna,
segir Frank.
Þá hlær Elke og segir:
Nei, bara einn, held
ég...
q Woerman, átján ára lærlingi
O frá Bielefeld í Þýskalandi,
'■q~ finnst hann vera búinn að
___i heyra einum of oft upp á síð-
<C kastið hjá vinum og kunningj-
© um. En sönnun þessara orða
<r eru dæturnar þrjár sem brosa
blítt til hans. Það var tilviljun
ni ein að hann varð ástfanginn
Z og að afleiðingin yrði þessi!
—1 Það hefur eflaust margur orðið
ástfanginn við fyrstu sýn en ör-
ugglega ekki eignast þríbura
nokkrum mánuðum síðar.
Þeim lá við yfirliði þegar Elke
fór í sónarskoðun og læknirinn
sagði að börnin væru þrjú.
Frank var ekki orðinn sautj-
Frank með
fangið fullt af
dætrum og
allar eins.
JAPANIR
HYGGJAST
BYGGJA
HÆSTA HÚS
HEIMSINS
Bandaríski arkitektinn
Norman Foster hefur
hannað háhýsi sem jap-
anska fyrirtækið Obayashi
ætlar að byggja í Tókýó á
næstunni. Byggingin verður
um 800 metra há eða meira,
tvöfalt hærri en Empire State
byggingin í New York sem
lengi vel var hæsta hús heims-
ins. Ef japanska byggingin yrði
lögð á hliðina væri hún
snöggtum lengri en allur
Skólavörðustígurinn í Reykja-
vík þannig að Hallgrímskirkja
er bara smápeð í samanburð-
inum. Húsinu hefur verið valið
nafnið Millenium Tower og þar
verður vinnuaðstaða fyrir um
fimmtíu þúsund manns. □