Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 34
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
Hársnyrtistofa
Ármúla 17a S. 32790
Hárgreiðslustofa
:ú
Bleikjukvísl 8, Sími 673722
Erna Guðmundsdóttir
Porgerður Pálsdóttir
Kristín Kristjánsdóttir
HA RGREIÐSL US TOFA N GRESIKA
Raudarárstíg 27-29, 2. hæð
Sími 22430
>s
a ir
HARGREIÐSLUSTOFA
Skipholti 50c Slmi 688580
\m 13314
rnnsi
RAKARA- & HÁRqRE/ÐSMZTVfA
HVERFISGÖTU 52 • 101 REYKJAVÍK
Z
o
C0
co
cc
o
o
<
2
cr.)
o
X
Fjórir glaðbeittir félagar í Framanda sjást hér matreiða fyrir
uppskriftakort Vikunnar.
Frh. af bls. 32
ir þessa keppni. Baldur Ö.
Halldórsson hefur sérhæft sig
í sykurskreytingum, eftirrétta-
gerð, súkkulaðigerð og kon-
fektgerð í Sviss og Bandaríkj-
unum. Hinir eru með haldgóða
alhliða þekkingu. Ásgeir hefur
starfað f Frakklandi. Sömu-
leiðis Örn og Bjarki sem hefur
líka starfað á Tahítí í Kyrra-
hafi. Úlfar hefur starfað í Dan-
mörku og vann til verðlauna í
fyrstu nemakeppninni sem ís-
lendingar tóku þátt í í Finn-
landi 1986. Sigurður fjáröfl-
unarmaður var svo með veit-
ingarekstur í tíu ár á stærsta
vetrarferðamannastað Norð-
urlanda. Það var í Geilo í Nor-
egi. Þeir hafa líka kynnt sér
vinnubrögðin á heimsmeist-
aramótinu EXPO i Lúxem-
borg.
Svona ferðalag er bæði dýrt
og viðamikið en keppendurnir
vonast til að styrkjendur og
stuðningsmenn komi til sög-
unnar til að létta þeim róður-
inn. Þeirra verður sérstaklega
getið í sambandi við keppnina.
Það verður líka unnin mikil
aukavinna og sjálfboðastörf á
næstunni. Til dæmis ætlar
keppnisliðið að efna til sér-
stakra kvöldverða í fjáröflunar-
skyni næstu þrjá eða fjóra
sunnudaga. Þeir verða í Setr-
inu, þeim bráðfallega veitinga-
sal Holiday Inn, dagana 17.
og 24. mars og 7. apríl. Hægt
verður að halda verðinu mjög
hóflegu á þessum málsverð-
um en gæðum í hámarki
vegna sjálfboðavinnu áhuga-
samra matreiðslumannanna
og Ifka vegna þess að styrkt-
araðilar útvega hráefnið. Þetta
verður sameiginlegt borðhald,
fjórir til fimm réttir. Að minnsta
kosti einn af réttum hvers
kvöldveröar kemur á óvart,
það er að segja gestirnir vita
ekki um hann fyrirfram. Mat-
reiðslumönnunum verður þó
komið enn meira á óvart því
að þeir vita ekki úr hvaða hrá-
efni þeir eiga að vinna fyrr en
þeir koma til vinnu á sunnu-
dagsmorgni en að sjálfsögðu
vinna þeir samkvæmt keppn-
isreglum. Seinasta sunnudag-
inn verður svo lokaæfing fyrir
stóru keppnina. En þetta verð-
ur allt auglýst rækilega og
að sjálfsögðu mun Vikan fylgj-
ast vel með þar sem keppend-
urnir hafa lagt til uppskriftir í
blaðið undanfarin misseri.
Fólk getur svo keypt sér áskrift
að þessum kvöldverðum, ef
það vill vera með og fylgjast
með þróuninni allt tímabilið.
Þá má og geta þess að
meistarakokkarnir okkar í
Framanda hafa tekið að sér að
matreiða fyrir fegurðarsam-
keppnina, sem fram fer á
Hótel Austurlandi 22. mars og
á (safirði vikuna áður eða 16.
mars. Það er þvi Ijóst að auk
þess að vera veisla fyrir augað
verður það sem fram fer þau
kvöld sömuleiðis stórveisla
fyrir munn og maga.
MEIRA SÍÐAR
Á næsta ári verða ólympíu-
leikarnir í matreiðslu haldnir í
Frankfurt í Þýskalandi. Aö
vísu eru þetta óopinberir
ólympíuleikar en ólympíu-
merkið verður notað. Þar verð-
ur eflaust mikið um dýrðir því
að 1992 er mikilvægt ár í sögu
Evrópu þegar mestur hluti álf-
unnar verður sameinaður í
stóra heild. Ólympíuleikarnir
eru frábrugðnir heimsbikar-
mótinu í Chicago að mörgu
leyti. í Frankfurt verður meira
úrval keppnisgreina. Liðin
geta til dæmis sérhæft sig í
heitum mat og verða þá að
matreiða fyrir hundrað og
fimmtíu manns. Þar verða
bæði hópkappleikir og eistakl-
ingskeppni. Þar verður líka allt
stærra í sniðum. Klúbbur
matreiðslumeistara á íslandi
hefur úrslitavald um hverjir
verða sendir þangað. En fyrst
er að sjá tii hvernig íslending-
unum gengur í Chicago. Sú
keppni er reyndar svo ströng
og mikilvæg að Bandaríkja-
menn senda til dæmis lið
þangað sem gerir ekkert ann-
að allt árið en að æfa sig og
undirbúa fyrir átökin. □
\
34 VIKAN 5.TBL. 1991