Vikan


Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 40

Vikan - 07.03.1991, Blaðsíða 40
Kœra Jóna Rúna! Mig hefur lengi langað til að skrifa þér og lœt verða af því nú. Ég er kona á órœðum aldri og er í forsvari fyrir stéttarfélagi. Mig langar til að spyrja þig hvernig ég get orðið félögum mínum og samferðafólki að liði á komandi tímum. Ég treysti þér best allra til að ráða mér heilt í þessum efnum, hvaða aðferð eða leið er farsœlust til þess að ná til dœmis trausti fólks og komajafnframt máium í höfn. Eins vœri áhugavert að þú skoðaðir manngerðina og gœfir mér umsögn um hana með innsœi þínu. Það vefst fyrir mér hvort ég get mögulega látið gott afmér leiða. Efþú hefur nokkur tök á að svara mérþœtti mér sérlega vœnt um það. Með þakk/œti og kœrum kveðjur, Mjallhvít Kæra Mjallhvít! akka þér innilega fyrir bréfið og það traust sem þú sýnir mér með því að óska eftir mati minu á vilja þínum til góöra verka. Við skoðum þessar vangaveltur þínar og spurningar i gegnum innsæi mitt og hyggjuvit og þú velur svo úr með eigin dóm- greind það sem þér finnst ein- hvers virði. MIKILVÆGT AÐ RÆKTA INNRA LÍF SITT Þegar mannlífið er skoðað kemur iðulega fram sú afstaða hjá okkur mörgum að það sé of mikill hraði og streita í gangi. Það veldur því að við erum andlega séð sum heldur langt frá upplagi okkar vegna alls kyns ytri hluta sem glepja. Ef þetta er sannleikur er full ástæða til að hvetja til frekari vilja okkar til að meta mikil- vægi innri þátta mannsins líka, þannig að þeir komi að gagni í þjóðfélaginu og á viökvæmum sem sigursælum augnablikum í lífi okkar flestra. Viö verðum að gæta þess - af og til að minnsta kosti - að persónu- legri þættir mannlífsins fái sitt pláss sem víðast í samskipt- um okkar hvert við annað. Þannig erum við betur búin undir sorg og gleði sem okkur fellur í skaut í lífsins ólgusjó. Það er nefnilega oft þannig [ lífi okkar og athöfnum, að við stöldrum ekki við og íhugum hver við erum fyrr en kemur að einhvers konar áfalli í ytri að- stæðum okkar, svo sem at- vinnumissi, eignatjóni, heilsu- fari hrakar eöa að við missum ástvini okkar. Við þurfum ekki að vera ýkja spámannlega hugsandi til að sjá að þannig lífsmynstur er rangt. Að verða fyrir áfalli og uppgötva í framhaldi af því að við höfum ekki andlegan undirbúning til að takast skynsamlega á við erfiðar til- finningar og hugsanir, sem koma í kjölfar þannig atburða, er mjög sorglegt en því miöur alltof algengt. TILFINNINGALEG ÞJÁLFUN KOSTUR Vissulega fáum við flest á VIKAN 5.TBL. 1991 MYNDSKREYTING: ÓLAFUR GUÐLAUGSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.