Vikan


Vikan - 07.03.1991, Síða 16

Vikan - 07.03.1991, Síða 16
svo má bera mýkjandi krem á svæðið á eftir. Hvað hálshúð- ina varðar segja þær að byrja þurfi að vernda hana upp úr 25 ára aldri. „Við bjóðum hálsin- um á okkur allt,“ segir Sigríð- ur. „Við erum berar að framan og notum ekki slæður eins og mæður okkar og ömmur gerðu. Sem dæmi þá er mamma mín 24 árum eldri en ég en hefur miklu fallegri háls en ég.“ REGLA SKIPTIR MÁLI Bæði áfengisneysla og reyk- ingar fara illa með húðina, valda því að háræðar slitna og húðin þornar. Svo álíta þær stöllur mikið atriði að konur reyni að halda þyngd sinni stöðugri og Sigríður nefnir að heit böð séu stórvarasöm fyrir húðina. „Þau eru góð til að slaka á - en þvílík þensla á húðinni. Konur verða að sætta sig við aö heit böð eru eitt af því sem mátti á unglingsárum en eru óæskileg fyrir þroskaðar konur. Það þýðir heldur ekki að bjóða andlitshúðinni það sama og við gátum boðið henni fimmtán ára. Þegar farið er í gönguferðir eða á skíði þarf að verja húöina vel. Hár- æðarnar eru komnar utar eftir fertugt og tiltölulega lítið þarf til að fá háræðaslit á þeim aldri, annaðhvort vegna of mikils kulda eða of mikillar sólar. Annars er meginmálið kannski að hafa reglu á hlutunum, fara reglulega til tannlæknis, í hár- greiðslu og sama máli finnst mér gegna með snyrtifræðing- inn, við eigum að heimsækja hana reglulega líka. Hún getur verið með einhverjar nýjungar og svo er á snyrtistofum boðið upp á allt mögulegt sem stuðl- ar aö vellíðan konunnar. Við erum með vöðvanudd og slökunarnudd og nudd er af- skaplega gott, sérstaklega fyr- ir nútímakonuna sem alltaf er í kapphlaupi við tímann. Svona nudd verkar eins og vítamín- sprauta á flestar konur. „Farði getur verið mjög góð vörn fyrir húðina, til dæmis i frosti," segir Guðrún. „Það er mesti misskilningur að farði fari illa með húðina, svo fremi hann sé hreinsaður af á kvöldin. Farði, sem ekki er hreinsaður af, getur stíflað húðina og lokað henni. Mér „Það þýðir ekki að bjóða andlitshúð- inni það sama og við gátum boðið henni fimmtán ára. finnst alltaf gaman að sjá vel málaðar konur sem leggja áherslu á að undirstrika það sem þær hafa. Of mikill farði er hins vegar hættulegur því hann dregur fram öll aldurs- merki i stað þess að fela þau. Annars fá íslenskar konur al- mennt háa einkunn hjá mér hvað förðun varðar," segir Guðrún í Salon Ritz að lokum. MASKAR Nýjustu maskarnir örva húðina svo hún eigi auðveldara með að gegna sínu eðlilega hlut- verki (framleiðslu á fitu og raka) en hæfileikinn til þess minnkar með aldrinum. Heitir örvunarmaskar eða þeir sem framkalla svita stuðla að því að blóð og fita kemst að yfir- borði húðarinnar svo hún virð- ist stinnari. Virku efnin í mask- anum, svo sem eggjahvíta og leir, gera húðina þéttari meö því að örva svitaholurnar. Árangurinn er húð sem virðist yngri. Salon Ritz býður við- skiptavinum sínum maska sem búinn er til af indverskri konu, lærðum efnaverkfræð- ingi og snyrtifræðingi. Maskinn FEGURSTU KONUR HEIMS? Heiðar Jónsson féllst góðfúslega á að til- nefna nokkrar konur sem allt eins hefðu átt heima meö stöllunum fjórum hér á undan. „Við íslendingar erum orðnir yfirstétt," segir hann. „Við höfum náð þeim staðli að það er fávísi að apa allt eftir hugmyndasnauðum Amerík- önum. Við erum best mennt- aða fólk í heimi, við erum fal- legasta fólk í heimi og sem slík ættum við að vera okkar eigin besta fyrirmynd." Bryndís Schram Sigríður Dúna, hún geislar af hamingju og ást Þuríður Pálsdóttir óperu- söngkona Kristín Jóhannesdóttir kvik- myndaleikstjóri Þórhildur Þorleifsdóttir - hefur alltaf átt svo annríkt en er að finna eigin stíl og persónu núna Þórunn Sigurðardóttir leik- ritahöfundur og leikstjóri er annað dæmi um konu sem fundið hefur sinn stíl. Snúlla i Óperukjallaranum Unnur Arngrímsdóttir

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.