Vikan - 07.03.1991, Side 60
TEXTI OG MYNDIR: ÞORSTEINN ERLINGSSON
Mikið af fólki hvaðanæva
úr þjóðfélaginu hópar
sig saman á þorranum til
að blóta hann. Mikið er
um að samstarfsfólk
haldi þorrablót og mun
vera algengast að slíkir
hópartaki sig saman um
hátíðahöld sem þessi.
Það er þó ýmislegt
annað sem tengir fólk
saman en vinnan og
verður þess valdandi að
það vill blóta þorrann
saman.
Eitt af því er ástundun
sundlauga. Fólk, sem fer
daglega í sundlaugar og
alltaf á sama tíma, fer
smám saman að kynnast
og vinskapur myndast.
Það hefur síðan orðið
kveikjan að því að blóta
þorrann saman. Vikan
hafði spurnir af því að
tveir slíkir hópar væru í
sundiaugum borgarinn-
ar, annar í Laugardals-
lauginni og hinn í sund-
laug Fjölbrautaskólans í
Breiðholti.
Það voru nokkrir hressir
sundlaugargestir í
Laugardalslauginni sem
tóku sig saman á þorranum
árið 1985 og ákváðu að halda
þorrablót saman i lauginni.
Þau sem stóðu fyrir þessu
voru dr. Gunnlaugur Þórðar-
son ásamt hjónunum Vigdísi
Birgisdóttur og Þórði Her-
mannssyni sem nú er látinn.
Þetta fólk kom reglulega í
laugina á virkum dögum á
tímabilinu frá rétt fyrir klukkan
tólf til rúmlega eitt.
Þetta fyrsta þorrablót var
haldið í einum heita pottinum.
Maturinn var framreiddur á
plastbökkum og voru um tíu
manns sem tóku þátt. Flest
árin á eftir var þessi gleðskap-
ur hafður innandyra og fékkst
aðstaða í kjallara undir stúk-
unni og var þá þátttaka nokkru
meiri en í fyrstu. Þorrablót hef-
ur verið haldið reglulega á
hverju ári frá upphafi á ýmsum
stöðum í sundlaugarbygging-
unni, allt eftir því hvar hentað
hefur best.
Margt hefur verið sér til
gamans gert samhliða því að
borða matinn. Oft hafa tónlist-
aratriði verið fyrirferðarmikil og
Steingr/mur
Hermann:
kum^T^ fervalln vestfirs
a«m afs 09 má SM Jói
ðHmanna, wrða fyrir sér
1 felagsmönnum.
Doktor Gunnlaugur Þórðarson,
einn af stofn- og heiðursfélög-
um Heita pottsins, heldur ræðu
við setningu blótsins. Hægra
megin við hann er annar
heiðursfélagi, Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra,
og til vinstri stendur Jón
Einarsson, kaupmaður í Sunnu-
kjöri, en hann sá um matföngin.
sem dæmi hefur hornaflokkur,
trompetsveit, félagar úr
Sinfóníuhljómsveit íslands og
rokkband leikið á liðnum árum.
Alltaf er einnig mikið sungið af
íslenskum sönglögum. Hefur
Stefán Edelstein verið virkur í
að halda uppi heiðri tónlistar-
innar á þessum samkomum.
Fljótlega eftir fyrsta blótið
varð Páll Steingrímsson kvik-
myndagerðarmaður og Vest-
mannaeyingur aðaldriffjöðrin i
að undirbúa þessi blót og hef-
ur hann verið gerður að heið-
ursfélaga og yfirpottormi í
félagsskapnum Heiti potturinn
i Laugardal eins og þau vilja
kalla hann. Var honum afhent
skinnbevís upp á það. Aðrir
óformlegir heiðursfélagar, það
er bevíslausir, eru þeir dr.
Gunnlaugur Þórðarson lög-
fræðingur og Steingrímur Her-
mannsson, núverandi forsæt-
isráðherra. Þeir hafa báðir ver-
ið mjög áhugasamir um þessi
blót og hefur sá síðarnefndi
alltaf komið með ýmsa smá-
rétti, meðal annars sérstak-
lega valinn vestfirskan hákarl
ásamt öðru munn- og maga-
konfekti.
Síðustu sex árin hefur Jón
Einarsson, kaupmaður í
Sunnukjöri við Skaftahlíð, séð
um hlaðborðið. Hefur þar
kennt ýmissa grasa eins og
gerist og gengur með þorra-
hlaðborð og var matnum í ár
hrósað i hástert af viðstöddum
eins og hin fyrri.
Starfsmenn sundlaugarinn-
ar hafa með velvilja séð um að
skrá fólk og innheimta að-
göngugjaldið. Aðgöngumiðar
hafa verið með ýmsu móti. Til
dæmis giltu leirplattar, sem
Edda Óskarsdóttir sá um að
gera, sem aðgöngumiðar eitt
árið. Tveir verkstjórar hjá
Múlalundi, þeir Eysteinn og
Steinar, hafa í mörg ár lagt til
ýmsa minjagripi tengda blótinu
og í ár voru það plastmerki
sem hengd voru um hálsinn
og báru áletrunina þorri 1991.
í stjórn félagsins og undir-
búningsnefnd að þessu sinni
og undanfarin ár voru Páll
Steingrímsson, Sigrún Axels-
dóttir, Jón Einarsson og Kristj-
án Sveinbjörnsson. Nokkuð
annasamt hefur verið hjá
stjórninni og er það ekki skrítið
þar sem um fimmtíu manns
tóku þátt í gleðinni.
Meðlimir félagsins eru að
miklum meirihluta karlmenn,
því miður segja þeir en hlutur
kvenna er alltaf að vænkast.
Meðalaldur fólksins er um
fimmtíu ár en að sjálfsögðu
má sjá bæði unga sem aldna í
hópnum og eru allir sem
stunda laugina í hádeginu á
virkum dögum velkomnir í
félagsskapinn.
Ýmislegt annað gerir þessi
hópur sér til gamans en að
halda þorrablót. Eggjaveisla
stendur fyrir dyrum í júní og
eru þá svartfuglsegg frá Vest-
mannaeyjum aðalmaturinn,
grillveisla er oft haldin á
sumrin, fólk hefur farið saman
á pöbbarölt, haft jólaglögg og
fleira og fleira.
POTTORMAFÉLAGIÐ
Árið 1983 fréttist það upp í
sundlaugina í Breiðholti að
sundlaugargestir í Laugar-
dalslauginni hefðu tekið sig
saman og haldið þorrablót á
staðnum. Fannst sundlaug-
argestunum í Breiðholti þetta
sniöugt uppátæki og langaði til
að gera slíkt hið sama. Nokkrir
úr hópi fólks sem stundar
laugina reglulega á tímabilinu
frá fimm til sjö höfðu frum-
kvæðið að því að undirbúa
slíkt blót. Meðal þeirra voru
Páll Michaelsen, Guðjón Pet-
ersen, Gunnar Borg, Hörður
Daníelsson, Lilja Laxdal og
Arngrímur Marteinsson. Hóp-
urinn fékk húsnæði fyrir blót-
ið í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi og mættu tuttugu
og þrír á þetta fyrsta þorrablót
sundlaugargestanna í Breið-
holti. Félag var stofnað og
nefnist það Pottormafélagið.
Frá því að þetta var hefur
þorrablót á vegum félagsins
verið haldið árlega. Mest hefur
verið um eitt hundrað og
tuttugu manns. Nú í ár mættu
um hundrað og fékk Vikan að
fylgjast með. Það voru þau
Ásta Guðlaugsdóttir, Jens
Þorsteinsson, Kristín Ásgeirs-
60 VIKAN 5. TBL. 1991